Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 2
2 21. desember 2018FRÉTTIR L esendur DV kusu Mann ársins og niður- staðan var mjög afgerandi. Maður ársins 2018 er Stefán Karl Stefánsson og hlaut hann 72,38 prósent atkvæða. Næst á eftir honum kom Bára Halldórsdóttir, aktívistinn að baki Klaustursupptökunum frægu sem vörpuðu ljósi á fordómafulla og niðrandi orðræðu sex þingmanna á barnum Klaustri. Hún hún hlaut 5,79 prósent at- kvæða. Rétt á eftir Báru var Guðmundur Fylkisson lögreglumaður, sem hefur helgað starf sitt leitinni að týndu börnunum. Hann hlaut 5,21 prósent atkvæða. Stefán Karl, einn ástsælandi leikari lands- ins, lést í ágúst eftir erfiða baráttu við krabba- mein í gallgöngum. Stefán kom víða við á ferlinum en er hvað þekktastur fyrir hlutverki Glanna glæps í þáttunum um Latabæ sem njóta mikilla vinsælda hérlendis sem og er- lendis og einnig fyrir hlutverk Trölla í upp- setningum á jólasöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum, bæði í Bandaríkjunum og í Kanada. Þegar Stefán Karl var barn varð hann fyrir miklu einelti og eftir að hann varð fullorðinn vildi hann reyna að koma í veg fyrir að önnur börn yrðu fyrir því sama. Hann varð því mikill baráttumaður í eineltismálum og vann ötul- lega að því að auka fræðslu og forvarnir. Hann stofnaði eineltissamtökin Regnbogabörn og hélt mörg hundruð fyrirlestra um einelti og félagsmál barna og unglinga í skólum lands- ins. Hann kom fram í fjölda viðtala um mál- efnið og hélt baráttunni áfram, jafnvel eftir að starfsemi Regnbogabarna var hætt. Stefán Karl var í júní sæmdur riddara- krossi fálkaorðunnar fyrir framlag sitt til leik- listar og samfélags. Þegar honum varð ljóst að baráttan gegn krabbameininu væri töpuð skrifaði hann á Twitter: „Það er ekki fyrr en þér er sagt að bráðum munirðu deyja sem þú áttar þig á hvað lífið er stutt. Tíminn er það verðmætasta í lífinu, því hann kemur aldrei aftur. Hvort sem þú verð tímanum í fangi ástvinar eða einn í fanga- klefa er lífið hvað sem þú gerir við hann. Dreymi ykkur stóra drauma.“ n skattar sem ríkið ætti að taka upp Samkvæmt samgönguáætlun á að setja skatt á fólk sem keyrir eftir þjóðvegum inn og út af höfuðborgarsvæðinu. Í rauninni er þetta skattur sem leggst fyrst og fremst á þá sem búa í nærsveitarfélögunum en starfa á höfuð- borgarsvæðinu. Hér eru 5 aðrar tekjuleiðir sem ríkið gæti tekið upp. Heigulsskattur Heiglar og gungur eru vannýtt tekjulind á Íslandi og auðvelt að knýja þá til að borga. Á tólftu öld setti Hinrik I. Englandskonungur slíkan skatt á þá sem voru of ragir til að berjast fyrir hann. Til að byrja með var upphæðin lág en var fljótlega þrefölduð og riddarar voru rukkaðir þó að friðartímar stæðu yfir. Þetta kallar maður að hugsa í lausnum. alltaf sigur að lokum. Brjóstaskattur Þessi hugmynd kemur frá héraðinu Travancore á Indlandi. Þar var konum úr ákveðnum lögum samfélagsins bannað að hylja brjóst sín og voru rukkaðar ef þær gerðu það. Skatt- heimtumenn mældu þá stærð brjóstanna til að ákveða upphæðina. Free the Nipple-hreyf- ingin gæti sett strik í innheimtuna en á veturna myndi ríkið ná að hala vel inn. Prumpskattur Þessi hugmynd er ný af nálinni. Árið 2003 lagði ríkisstjórn Nýja-Sjálands prumpskatt á bændur. Var það vegna vinds sem kýr þeirra leysa og valda þar með skaða á ósonlaginu. Í viðrekstri er metan sem er mun hættulegra en koltvísýringur. Þetta er tilvalið fyrir Ísland og þá ekki aðeins fyrir húsdýr. Með mikilli fjölgun grænkera er tryggt að nokkrir milljarðar kæmu í ríkiskassann. Skeggskattur Á sautjándu öld setti Pétur mikli Rússlandskeisari sérstakt gjald á skegg karlmanna. Pétur ferðaðist um Evrópu og sá að siðmenntuðustu karlmennirnir rökuðu sig. Hann vildi koma þeim sið á í Rússlandi og lét skeggjaða menn því borga. Þeir sem höfðu borgað fengu sérstakt merki til að staðfesta það. Hipsteravæðingin á Vesturlöndum og sérstaklega Íslandi hefur gert að verkum að skeggskattur yrði góð búbót fyrir ríkissjóð. Sólarskattur Sex jólasveinar fóru íÁ Mallorca, Menorca og nærliggjandi eyjum er sólarskattur sem allir ferðamenn greiða. Hann er á bilinu hálf til fjórar evrur á hvern dag sem ferðamað- urinn er á staðnum og hefur reynst eyjaskeggjum góð búbót. Sólarskattur yrði kannski ekki alveg nógu hentugur fyrir Ísland. Rokskattur væri betri. Á þessum degi, 21. desember 1620 – William Bradford og Mayflower- pílagrímarnir taka land þar sem nú er Plymouth Rock í Plymouth í Massachu- setts. 1907 – Chileski herinn fremur fjöldamorð þegar hann ræðst gegn verkfallsmönnum í saltpétursnámum í Iquique í Chile. Að minnsta kosti 2.000 manns láta lífið. 1967 – Louis Washkansky, fyrsti hjartaþegi sögunnar, deyr í Höfðaborg í Suður-Afríku. Hann lifði í 18 daga í kjölfar ígræðslunnar. 1937 – Mjallhvít og dvergarnir sjö, fyrsta teiknimynd sögunnar í fullri lengd, er frumsýnd í Carthay Circle-sýn- ingarhúsinu. 1995 – Betlehem færist undir stjórn palestínskra stjórnvalda. Síðustu orðin „Slökkvið ljósin.“ – Theodore Roosevelt Bandaríkjaforseti (1858-1919) STEFÁN KARL ER MAÐUR ÁRSINS 2018 n Lesendur DV kusu n Naut mikilla vinsælda erlendis„Tíminn er það verðmætasta í lífinu, því hann kemur aldrei aftur Erla Dóra erladora@dv.is Leikara­ hjón Stefán Karl og Steinunn Ólína. Trölli Stefán í þekktu jólahlut- verki. Glanni glæpur Hlut- verkið sem gerði Stefán frægan á heimsvísu. Bára Halldórs­ dóttir Hlaut næstflest atkvæði. Guðmundur Fylkisson Í þriðja sæti kosningarinnar. Stefán ásamt Hilmi Snæ í sýningunni: Með fulla vasa af grjóti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.