Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 27
FÓLK - VIÐTAL 2721. desember 2018 afskiptum af stjórnmálum. Árið 1983 bauð Ellert sig aftur fram í prófkjöri Sjálfstæðismanna fyrir alþingiskosningar. Þar endaði hann í öruggu fjórða sæti. „Ég gerði það í raun og veru til að sanna mig og átta mig á því hvar ég stæði í þinginu og pólitík- inni allri. Þegar ég kom inn í þing- flokkinn bauð ég fram krafta mína sem ráðherra eða formaður þing- flokksins. Hvorugt var samþykkt. Þá gekk ég út og hætti að mæta á fundi hjá flokknum. Ég sat á þingi til ársins 1987 af því að það var búið að kjósa mig. Ég tók til mál- anna og hafði afskipti af ýmsum frumvörpum en var ekki virkur í mínum gamla flokki. Í rauninni var ég óháður þingmaður.“ Var ekki reiði í þinn garð af hálfu Sjálfstæðismanna? „Ég veit ekkert um það, ég talaði ekkert meira við þá,“ segir Ellert og hlær. „Geir Hallgrímsson var formaður á þessum tíma og ég taldi hann vera mikinn vin minn. Við höfðum unnið vel saman hjá Reykjavíkurborg áður. Ég held að Geir hafi sjálfur verið í vandræð- um og ekki haft kraft eða tíma til að hjálpa mér. Hann hafði nóg með sjálfan sig. Geir var yndis- legur maður en stundum allt of kurteis. Og svo lenti hann í bar- daga gegn Gunnari Thoroddsen.“ Urðu vinslit hjá ykkur? „Nei, nei. Ég fór mína leið og hann sína.“ Hvernig fór það saman að vera ritstjóri dagblaðs og þingmaður? „Ég var með annan fótinn á þinginu og hinn á blaðinu. Skrifaði til dæmis leiðarana niðri í þingi. Þetta hafði þau áhrif á mig að sjón- deildarhringurinn stækkaði. Þegar maður er virkur í stjórnmálaflokki og í baráttu um að komast til valda þá verður maður að passa sig að vera á réttri línu. En eftir að ég fór að skrifa fyrir blað sem var frjálst og óháð, þá þurfti ég að skoða alla atburði í stærra ljósi. Ég þurfti að taka tillit til þeirra sem voru ekki endilega sammála mér.“ Hvernig var samstarfið við Jónas? „Jónas var frábær penni og snillingur. Hann sagði það sem honum sýndist, hvort sem það var í leiðurum eða í samtali. Okkur kom meira og minna vel saman. Ég held að sameining Dagblaðsins og Vísis hafi styrkt stöðuna og ver- ið áfram í þeim anda sem Jónas hafði skapað. Blaðið var frjálslynt og hafði enga þræði til neinna sem sögðu okkur fyrir verkum. Þetta var frjálst og við fengum að skrifa það sem okkur sýndist.“ Útvörpuðu úr kjöllurum Ellert og Jónas störfuðu saman í fimmtán ár og skiptu með sér verkum. Jónas sá mestmegnis um morgnana og Ellert síðdegið. Ell- ert skrifaði einnig laugardagsgrein- ar um margra ára skeið. Blaðið rokseldist og fór upp fyrir Morgun- blaðið á tímabili. Dagblaðið og síðar DV voru á þessum tíma leiðandi í barátt- unni fyrir frjálsri og óháðri blaða- mennsku. Einnig fyrir afnámi ríkis- einokunar á ljósvakamiðlum. Þetta var eitt af baráttumálum Ellerts á þingi og þegar starfsmenn RÚV fóru í verkfall árið 1983 gripu hann, Jónas og eigendur blaðsins, Sveinn Eyjólfsson og Hörður Einarsson, til beinna aðgerða. Þá settu þeir upp eigin útvarpsstöð, Fréttaútvarpið. „Við settum upp stöðvar og hlupum með þetta út um allan bæ,“ segir Ellert og hlær. „Við tók- um upp í einhverjum kjöllurum og læddumst með upptökur á milli húsa og hverfa. Svo var það mjög dramatískt þegar lögreglan kom og braust inn á skrifstofuna. Við vissum að lögreglumenn væru á leiðinni og ég steig þá fram og hélt mjög alvörugefna ræðu. Ég talaði nú ekki vel um þá, lögregluna og meirihlutann í þinginu. En einnig um hve mikilvægt það væri að til væri fleiri en ein útvarpsstöð. Við vissum að það sem við vorum að gera var ólöglegt en létum það yfir okkur ganga. Ég fékk meira að segja dóm í héraði fyrir þetta. En honum var reyndar vísað frá í Hæstarétti.“ Eftir þetta fór Ellert í þingið og hélt langa og innblásna ræðu um málið. „Hún bar árangur. Ragnhildur Helgadóttir var þá nýorðin menntamálaráðherra og hún tók undir margt af því sem ég sagði og lét á það reyna að breyta lögunum um ríkiseinokun.“ Ein minnisstæðasta upplifun Ellerts hjá DV var á erlendri grundu. Árið 1990 lýstu Eystrasalts- ríkin yfir sjálfstæði frá Sovétríkjun- um og Íslendingar voru fyrsta ríkið til að viðurkenna það. Ellert fór þá út til að kynna sér aðstæður. „Á tímabili leit út fyrir að Rússarnir myndu hefja innrás. Jón Baldvin Hannibalsson stóð sig ákaflega vel í þessu máli og bauð okkur fulltrúum fjölmiðla út með sér. Við ferðuðumst frá einu landi til annars. Það var búið að hlaða upp sementspokunum og stilla upp byssum því að þeir bjuggust við að Rússarnir kæmu þá þegar.“ Varstu smeykur? „Nei, ég var það nú ekki, en mér fannst þetta ógnvænlegt og það hafði mikil áhrif á mig að upplifa þetta ástand.“ Kratablóð í æðum Ellert starfaði sem ritstjóri DV til ársins 1996. Samhliða því hafði hann starfað sem formaður Knattspyrnusambandsins til ársins 1989 og árið 1991 var hann kjörinn forseti Íþróttasambandsins. Þar að auki starfaði hann innan UEFA, knattspyrnusambands Evrópu. Ellert var löngu búinn að kúpla sig út úr öllum stjórnmálum þegar hann dúkkaði, flestum að óvörum, upp á lista hjá Samfylkingunni fyr- ir kosningarnar árið 2003. Fjórum árum síðar vann flokkurinn mik- inn sigur og Ellert var aftur kjörinn á þing, mjög óvænt að hans mati. „Það voru einir þrír eða fjórir flokkar sem vildu fá mig í framboð með sér,“ segir Ellert. „Ég áttaði mig á því að ég væri eftirsóttur og velti því fyrir mér hvort ég ætti að fara aftur í Sjálfstæðisflokkinn. En mér fannst að flokkurinn hefði horfið frá sinni gömlu meginstefnu um stétt með stétt. Þá var flokkurinn kominn langt til hægri og stefnan var að auka frjálshyggju og minnka eftirlit. Bankarnir voru seldir og kvótinn gefinn. Það var aðeins ver- ið að hjálpa þeim sem áttu mestu peningana. Ég átti ekki samleið með þeim lengur.“ Af hverju valdir þú Samfylk- inguna? „Mér fannst Ingibjörg Sólrún góð og sá flokkur vera á réttri leið. Sennilega var þetta líka í genunum. Mamma mín, Aldís Brynjólfsdótt- ir, og hennar fjölskylda voru alla tíð miklir jafnaðarmenn. Hún kaus alltaf Alþýðuflokkinn nema þegar ég var í framboði fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Mamma var krati.“ Árið 2007 fór Samfylkingin í stjórn með Sjálfstæðisflokknum en sú stjórn varð ekki langlíf. Í kjölfar bankahrunsins var stjórninni slitið og boðað til nýrra kosninga eftir að- eins tvö ár. „Mér fannst stundum sem ég og mínir menn ættu sök á þessu, af því að ég sat á þingi þegar þetta dundi yfir. Þetta var gríðarlega erfiður tími og við þurftum að taka margar erfiðar ákvarðanir. En mér fannst mitt fólk í Samfylkingunni standa sig vel. Þegar ég lít til baka finnst mér það hafa tekið Ísland mun skemmri tíma að rísa en ég átti von á. Auðvitað hafa utanaðkomandi áhrifaþættir spilað þar inn í, ferða- mannasprengjan og gott gengi í fiskveiðum.“ Óttaðist þú að mótmælin færu úr böndunum? „Þau gerðu það og fólk gerði árás inn í þinghúsið. Ég vissi ekki hvar þetta myndi enda og hafði áhyggjur af þessu. Ég hafði líka samúð með því fólki sem lenti illa í hruninu, og ekki aðeins þeim sem stóðu úti á Austurvelli. Ég óttaðist það ekki að út myndu bresta blóð- ug átök en áttaði mig á því að þetta var alvarlegasta tímabil sem ís- lenska þjóðin hefði gengið í gegn- um. Þetta hafði áhrif á alla sem störfuðu í þinginu og fólk grét þar innanhúss. En það var ekki hægt að gera neitt samstundis, þetta tók allt tíma. Mér fannst þetta vera hugrekki hjá þeim sem stóðu vakt- ina í ríkisstjórninni á þessum tíma. Jóhanna stóð fyrir sínu.“ Vorið 2009 sá Ellert sína sæng upp reidda og ákvað að best væri að hleypa nýju fólki að til að takast á við uppbygginguna eftir hrunið. Stærsta stundin að ganga út á Anfield Ekki er hægt að sleppa Ellerti án þess að ræða um fótboltann. Hann lék allan ferilinn með sínu heittelskaða KR, var fyrirliði, rað- aði inn mörkunum og vann fjölda titla. Markametið átti hann í um hálfa öld og skorað samanlagt 119 mörk. Var þetta rokkstjörnulíf? „Það var náttúrlega ekki mikið sýnt í sjónvarpi. Þannig að við vor- um ekki frægar stjörnur, nema bara hjá sumum. En við vorum með mjög gott lið og unnum www.gilbert.is GEFÐU ÞEIM SEM ÞÉR ÞYKIR VÆNT UM TÍMA UM JÓLIN Landsliðsæfing Vísir 11. ágúst 1962 „Við tókum upp í ein- hverjum kjöllurum og læddumst með upptökur á milli húsa og hverfa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.