Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 54
54 FÓLK 21. desember 2018
LOKAÐIR STURTUKLEFAR
MEÐ TOPPI, SPORNA
GEGN RAKA OG MYGLU
Kíktu á sturta.is og
skoðaðu úrvalið
S. 856 5566
Jólahefðir, skötuát og nýársheit
Að vakna ofan í blómapotti og kartöflumjölsbaðferðir það eftirminnilegasta
Þ
að hefur líklega ekki far-
ið fram hjá neinum að jólin
eru á næsta leiti. Marglit ljós
í gluggum landsmanna lýsa
upp skammdegið og jólaandinn er
mættur í öllu sínu veldi. Jákvæðni,
náungakærleikur og gleði virðist um-
lykja allt ásamt stressuðum foreldr-
um og spenntum börnum sem fara á
fætur fyrir allar aldir. Búðirnar fyllast
af fólki sem keppist við að kaupa gjaf-
ir handa ástvinum sínum og margir
eru nú þegar búnir að baka nokkrar
sortir af smákökum. Það er bara eitt-
hvað við jólin sem gerir það að verk-
um að við teljum niður í þessa hátíð
ár eftir ár. Bleikt hafði því sérstaklega
gaman af því að heyra í Bigga löggu
og Evu Ruza og spyrja þau út í þeirra
jólahefðir.
Biggi lögga og Eva Ruza sitja fyrir svörum
Bigga löggu þarf vart að kynna en
Biggi hefur verið áberandi í fjölmiðl-
um í dágóðan tíma. Biggi starfar, eins
og nafnið gefur til kynna, sem lög-
reglumaður. Hann er ekki þekktur fyr-
ir að liggja á skoðunum sínum og er
fljótur að taka upp hanskann fyrir þá
sem minna mega sín. Biggi hefur ver-
ið löghlýðinn allt sitt líf og segir hann
jólasveininn aldrei hafa haft tilefni til
þess að gefa honum kartöflu í skóinn:
Borðar þú skötu á Þorláksmessu?
Já, ég borða skötu ef ég kemst í hana.
Núna verð ég á vaktinni en vonandi
næ ég að slafra í mig nokkrum vel
kæstum stykkjum. Vonandi þó ekki
þannig að ég flagni allur í kjaftinum
eins og síðast.
Hvað verður í matinn á aðfangadag?
Ég ólst upp við purusteik en síðustu ár
hef ég haft kalkúnabringur. Það verð-
ur líka á borðum þessi jól.
Hverju finnst þér að megi alls ekki
sleppa á jólunum?
Jólin snúast um hefðir og því er í raun
frekar erfitt að svara þessari spurn-
ingu. Ég hef samt líka komist að því
að jólin koma alltaf, sama hverju
maður sleppir. Til að velja eitthvað
þá vel ég samt heimagerða ísinn og
heitu súkkulaðisósuna. Það er svona
punkturinn yfir jólin.
Hver er uppáhaldsjólahefðin þín?
Að fara upp í hreint rúmið á aðfanga-
dagskvöld með glænýja bók. Það er
eitthvað við það.
Eftirminnilegustu jólin?
Þar sem jólin snúast um hefðir þá eru
eftirminnilegustu jólin sennilega þau
sem brjóta upp þessar hefðir. Ég hef
nokkrum sinnum verið erlendis um
jól og það eru allt eftirminnileg jól.
Ég var t.d. skiptinemi í Bandaríkjun-
um eitt árið og þá ákvað fjölskylda
mín þar á síðustu stundu að setj-
ast bara niður á aðfangadagskvöld,
opna pakkana og halda íslensk jól
mér til heiðurs. Mér fannst það voða
sætt af þeim. Önnur jól var ég í heim-
sókn í Bandaríkjunum og var fárveik-
ur allan tímann. Mér tókst þá meðal
annars að láta líða yfir um miðja nótt
á leiðinni á klósettið og vaknaði hálf-
ur ofan í blómapotti morguninn eftir.
Ofan á það þá fékk ég ofeldað nauta-
kjöt með bragðlausri sósu í jólamat-
inn. Það var hressandi.
Hvert er uppáhaldsjólalagið þitt?
Það er fullt af klassískum og mishall-
ærislegum jólalögum sem ég held
upp á. Svo bætist venjulega eitthvert
nýtt lag við um hver jól. Þessi jól er
það Noel með Lauren Daigle. Þið
getið heyrt það í flutningi Ingu Maríu
Björgvinsdóttur og kór Fíladelfíu á
aðfangadagskvöld á stöð 2. Mæli með
því.
Hefur þú fengið kartöflu í skóinn?
Ég var fáránlega þægur krakki þannig
að jólasveinarnir spáðu aldrei í að
gefa mér kartöflu. Lofa.
Hvort finnst þér aðfangadagur eða
gamlárskvöld skemmtilegri?
Aðfangadagur. Ekki spurning. Það
er hugsanlega ákveðið merki um að
maður sé farinn að eldast.
Ætlar þú að strengja áramótaheit?
Ég hef aldrei strengt áramótaheit og
mér finnst frekar ólíklegt að ég breyti
út af þeim vana þetta árið. Maður
reynir bara alltaf að læra af mistök-
unum, gera betur, verða betri og njóta
meira. Lífið er núna.
Eva Ruza Miljevic er líklega
ein hressasta kona landsins.
Það eru að minnsta kosti ekki
miklar líkur á því að þú náir að
grípa Evu í vondu skapi enda
virðist hún hafa endalausa
orku og gleði til þess að leysa
út. Eva starfar sem skemmti-
kraftur, kynnir, veislustjóri,
Hollywood-expert og áhrifa-
valdur. Ekki virðist vera auð-
velt að múta Evu með háum
fjárhæðum þar sem hún segist
ekki ætla að borða skötu þótt
hún fengi greidda milljón:
Borðar þú skötu á Þor-
láksmessu?
Ég get alveg sagt þér það að
þótt ég fengi borgaða millj-
ón þá færi skata ekki inn fyrir
mínar varir. Mamma og pabbi
hafa alltaf haft skötu fyrir jól,
en þau hafa þurft að kaupa
ýsu fyrir mig, litla barnið. Ég
fæ líkamlega verki af skötu-
lykt, ég get svarið fyrir það og
mæti bara í skötuboð því fé-
lagsskapurinn er svo asskoti
skemmtilegur. En ég þori
varla að viðurkenna næstu
setningu … ég hef eiginlega
aldrei smakkað skötu samt.
Mamma hefur reynt að pína
mig til að smakka en það er
bara ekki séns. Ég er samt til-
tölulega nýbyrjuð að borða
sveppi, sem var mikill sigur
fyrir minn heittelskaða eigin-
mann, þannig að kannski næ
ég andlegum þroska í skötuna
áður en ég fer á elliheimili.
Hverju finnst þér að megi alls
ekki sleppa á jólunum?
Jólin eru komin um leið og ég
fer úr sparifötunum, skipti yfir
í kósígallann strax eftir mat og
heyri þá mömmu segja: „Eva
Ruza í alvöru.“ Það er eigin-
lega möst að heyra mömmu
segja hver einustu jól við okk-
ur systur, hvort við getum í
alvörunni ekki verið ein jól í
sparifötunum heilt kvöld. Við
frussuhlæjum alltaf upphátt
að þessari eilífu baráttu henn-
ar við okkur og sparifötin. Mig
grunar sterklega að hún haldi
að hún vinni ein jólin. Ég rita
það hér með á prenti: „Elsku
mamma, það mun aldrei ger-
ast.“ #alltaf5ára
Hver er uppáhalds-
jólahefðin þín?
Á jóladagsmorgun breytist ég
í Mörthu Stewart í eldhúsinu
og hristi fram svo stórfeng-
legan brunch að annað eins
hefur hvergi sést á Íslandi. Ég
tjalda öllu til á náttfötunum,
kveiki á vini mínum Michael
Bublé og dansa djassspor í
sloppnum um leið og ég kasta
skonsunni sem er á pönnunni
upp í loftið. Eggin snarkla á
hinni pönnunni, beikonið
í ofninum og ferskir ávextir
komnir á disk. Ef þið eruð að
ímynda ykkur mig núna eins
og ég sé í danssöngleikja-
mynd, þá er þetta nákvæm-
lega þannig. Það eru eflaust
einhverjir sem þrá að komast í
jóladagsbrunch hjá mér núna
við lesturinn, sem ég skil vel.
Þetta er mín uppáhaldshefð
og ég hefði aldrei trúað því
þegar ég hóf feril minn í eld-
húsinu að ég gæti multitaskað
svona svakalega mikið án þess
að brenna allt til grunna.
Eftirminnilegustu jólin?
Ætli hlaupabólujólin miklu
flokkist ekki undir slæmu
jólin. En þegar tvíburarnir
okkar Sigga voru þriggja ára
helltist yfir þau svona svakaleg
hlaupabóla að ég hef aldrei
vitað annað eins. Þessi jól ein-
kenndust af kartöflumjölsböð-
um, hinum ýmsu aðferðum til
að lina kláða, froðukremum
og andvökunóttum. Hlaupa-
bólan lagðist yfir litlu kropp-
ana þeirra eins og sæng á Þor-
láksmessu og hékk yfir þeim
öll jólin, áramótin og þrítugs-
afmælið mitt. Ég á „btw“ af-
mæli 5. janúar ef einhver er
áhugasamur um að senda
mér kveðju. Fyrstu jólin okkar
Sigga míns þegar ég var 17 ára
og hann 20 ára eru jól sem ég
verð hrikalega væmin við að
hugsa um. Ég man að ég hugs-
aði „baby, I’m home.“ Enda
erum við að eiga jól nr. 19
saman í ár og ég myndi hvergi
annars staðar vilja vera en þar
sem hann er.
Hefur þú fengið kartöflu í
skóinn?
Ójá, ég fékk einu sinni kartöflu
í skóinn og henni mun ég
aldrei gleyma. Mestu von-
brigði lífs míns var þessi bölv-
aða kartafla. Ég vaknaði eins
og alla morgna rétt fyrir jól að
tryllast úr spenning yfir hvað
væri í skónum, löngu búin að
gleyma frekjukastinu sem ég
tók 9 ára gömul á mömmu og
pabba daginn áður. Kartafla
beið mín og ég man að þetta
var hrikalegur skellur. Ég
laumaðist inn á bað og henti
henni í ruslið þar og fór svo
inn í eldhús og sagði mömmu
þegar hún spurði hvað ég
hefði fengið, að ég hefði ekki
fengið neitt. Mamma sagði
ekki orð. Um kvöldið var svo
fiskur og kartöflur í matinn og
mamma spurði mig eftir mat
hvort kartöflurnar hefðu ekki
verið góðar. Ég jánkaði því. Þá
sagði mamma að þetta hefði
verið THE kartafla. Ég man
að ég roðnaði ofan í maga og
strunsaði inn í herbergið mitt.
Mjög dramatískt kartöflumál.
En ég hef ekki fengið kartöflu
síðan, enda ofboðslega góð og
prúð stúlka.
Ætlar þú að strengja
áramótaheit?
Ég hef ekki verið mikið í því
að strengja eitthvert sérstakt
áramótaheit. Ég vakna bara
alla 365 morgna ársins og tek
ákvörðun um að vera glöð.
Hefur heppnast í ca. 97% til-
fella. Ég ætla að dansa inn
í 2019 eins og diskókúla og
halda áfram að glitra Evu
Ruzu glimmerinu í allar áttir.
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is