Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 4
4 28. desember 2018FRÉTTIR Það er staðreynd að… Í Hawaii er jólasveinninn kallaður Kanakaloka. Gervijólatré hafa verið söluhærri en ósvikin tré á heimsvísu síðan árið 1991. Hátt í þrjátíu Legósett eru seld á hverri sekúndu á háannatíð jólanna. White Christmas er söluhæsta jólalag allra tíma, það var samið af tónskáldinu Irving Berlin. Í nýlegri notendakönnun Yahoo var kvikmyndin Home Alone kosin vinsælasta jólamynd allra tíma. Í öðru sæti er Prúðuleikaramyndin The Muppet Christmas Carol og hin sígilda It’s a Wonderful Life lenti í þriðja. Hver er hún n Hún er fædd í Reykjavík 4. október árið 1973. n Hún er með meistaragráðu í alþjóðahagfræði frá Columbia University í New York. n Hún hefur gegnt störfum sem ráðgjafi hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum í Washington. n Hún á þrjú börn og er dóttir fyrr- verandi borgarfulltrúa Fram- sóknarflokksins. n Nafn hennar kom oft upp í Klaustursmálinu umtalaða. SVAR: LILJA DÖGG ALFREÐSDÓTTIR Þ egar litið er til ársins sem er að líða og síðan þess sem í vændum er, þá staðnæmist ég einkum við tvennt sem í mínum huga telst uppörvandi og jákvætt. Jóna Imsland er maður ársins! Fyrst vil ég nefna til sögunnar konu að nafni Jóna Imsland en hún hófst handa þegar vel var áliðið árs um að safna undirskriftum undir hvatningunni, Seljum ekki Ísland. Nokkur þúsund manns hafa þegar skrifað undir áskorunina þrátt fyrir afar litla kynningu. Tildrög­ in eru kunn: Í sumar bárust frétt­ ir af því að erlendir auðmenn væru að kaupa upp stór landsvæði víða um landið, mest á Norðaustur­ landi, í Fljótum, Biskupstungum en einnig víðar. Um þetta var rætt manna á meðal í sumar og var al­ mennt búist við því að ráðist yrði í lagabreytingar, samkvæmt tillög­ um sem þegar liggja fyrir, um leið og þing kæmi saman sl. haust. Sú varð ekki raunin. Áhugaleysi þingmanna var al­ gert og ekki í nokkru samræmi við greinilegan þjóðarvilja. Þá hóf Jóna Imsland átak sitt og bíður framtak hennar þess að við fylkjum okkur saman um það á komandi ári. Vel væri til fundið að við sýndum vilja okkar í verki með því að kjósa Jónu Imsland mann ársins. Ef ekki, þá gerum við það á næsta ári þegar henni, með okkar stuðningi, hefur tekist að vekja stjórnmálamenn af þyrnirósarsvefni sínum. Gleymum því ekki hve kauphallarbröskurum heimsins myndi reynast auðvelt að kaupa Ísland eins og það leggur sig. Gróðinn á góðum degi í kaup­ höllinni myndi fara langt með það. Þar með yrði eignarhald á auð­ lindunum jafnframt að talsverðu leyti komið ofan í vasa auðkýfinga og út fyrir landsteinana í þokka­ bót. Undið ofan af gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu Hitt jákvæða atriðið sem ég stað­ næmist við er ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra nú undir árslokin um að byrja að vinda ofan af gjaldtöku í heil­ brigðiskerfinu. Þessi ákvörðun er gríðarlega mikilvæg og þá jafn­ framt augljós ásetningur ráðherr­ ans að styrkja heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað sjúklings í kerfinu. Upphæðin sem lífeyrisþegum og öryrkjum sparast þegar þeir hætta að vera krafðir um gjald á heilsgæslustöðvum nú um ára­ mótin, er að sönnu ekki ýkja há, en hún hefur ekki aðeins hagræna heldur einnig táknræna þýðingu. Í byrjun tíunda áratugarins, þegar gjaldtakan hófst, var talað um þetta sem „fyrsta skref“. Þáverandi heilbrigðisráðherra hafði reyndar einnig á orði á þessum tíma að gjaldtaka innrætti sjúklingum kostnaðarvitund, nokkuð sem samtökum sjúklinga og verkalýðs­ hreyfingu þótti ekki vera göfugt markmið, nefnilega að þröngva inn í vitund þeirra sem ættu við sjúkdóma að stríða hve mikil byrði þau væru á samfélaginu! Nú er svo komið að fimmtung­ ur kostnaðar heilbrigðiskerfisins kemur beint úr vasa sjúklinga en aðeins áttatíu af hundraði úr sam­ eiginlegum skatthirslum. Kann­ anir hafa ítrekað sýnt að þetta hafi valdið því að fátækasti hluti sam­ félagsins veigri sér við að leita sér lækninga af fjárhagslegum ástæð­ um. Vonandi verður haldið áfram á þessari jákvæðu braut og er mik­ ilvægt að veita heilbrigðisráðherra öflugan stuðning hvað þetta varð­ ar. Vonbrigði ársins Ekki hefði ég trúað því að á fullveldisárinu yrði farið að rukka okkur fyrir að koma á Þingvöll og ekki hefði ég heldur trúað því að aðkoma VG að ríkisstjórn breytti engu um að seldur sé aðgangur að náttúruperlum landsins! Þar með er haldið áfram á braut fyrri ríkis­ stjórna um að kvótavæða náttúru landsins, festa í sessi prívatréttinn til að hagnast á því sem heyrir okk­ ur öllum til. Á komandi ári verður fylgst með framvindunni í þessu efni. Því verður vart trúað að ríkis­ stjórnin lyppist niður gagnvart yfir gangi hagsmunaaðila nema að hún sé sama sinnis, að réttmætt sé að rukka fólk fyrir að horfa á fjall eða foss. Fjölmiðlar gerist vandaðri og gagnrýnni Önnur vonbrigði ársins var um­ fangsmesta hernaðaræfing NATO til þessa á Íslandi. Hvenær skyldi sá tími renna upp að við segjum okkur frá þessu siðlausa hernaðar­ bandalagi? Seinast sáum við til NATO þegar ráðist var á Líbíu með hörmulegum afleiðingum. Svo í vor var gerð árás á Sýrland, skammvinn þó, til að refsa þar­ lendum stjórnvöldum fyrir að beita efnavopnum gegn þegn­ um sínum. Viðeigandi stofnun (OPCW) í Haag myndi eflaust staðfesta þetta eftir að hafa rann­ sakað málið, var okkur sagt í frétt­ um. Rannsóknin fór vissulega fram. Í ljós kom að allur málatil­ búnaður NATO var lygi frá upphafi til enda. Lítið fór fyrir þeirri niður­ stöðu í fjölmiðlum. Vonandi hressist Eyjólfur á komandi ári! n Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra. SELJUM EKKI ÍSLAND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.