Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 4
4 28. desember 2018FRÉTTIR
Það er
staðreynd að…
Í Hawaii er jólasveinninn kallaður
Kanakaloka.
Gervijólatré hafa verið söluhærri en
ósvikin tré á heimsvísu síðan árið 1991.
Hátt í þrjátíu Legósett eru seld á
hverri sekúndu á háannatíð jólanna.
White Christmas er söluhæsta
jólalag allra tíma, það var samið af
tónskáldinu Irving Berlin.
Í nýlegri notendakönnun Yahoo
var kvikmyndin Home Alone kosin
vinsælasta jólamynd allra tíma. Í
öðru sæti er Prúðuleikaramyndin
The Muppet Christmas Carol og hin
sígilda It’s a Wonderful Life lenti í
þriðja.
Hver er
hún
n Hún er fædd í
Reykjavík 4.
október árið 1973.
n Hún er með
meistaragráðu í
alþjóðahagfræði frá Columbia
University í New York.
n Hún hefur gegnt störfum sem
ráðgjafi hjá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum í Washington.
n Hún á þrjú börn og er dóttir fyrr-
verandi borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins.
n Nafn hennar kom oft upp í
Klaustursmálinu umtalaða.
SVAR: LILJA DÖGG ALFREÐSDÓTTIR
Þ
egar litið er til ársins sem er
að líða og síðan þess sem í
vændum er, þá staðnæmist
ég einkum við tvennt sem í
mínum huga telst uppörvandi og
jákvætt.
Jóna Imsland er maður ársins!
Fyrst vil ég nefna til sögunnar konu
að nafni Jóna Imsland en hún
hófst handa þegar vel var áliðið árs
um að safna undirskriftum undir
hvatningunni, Seljum ekki Ísland.
Nokkur þúsund manns hafa þegar
skrifað undir áskorunina þrátt
fyrir afar litla kynningu. Tildrög
in eru kunn: Í sumar bárust frétt
ir af því að erlendir auðmenn væru
að kaupa upp stór landsvæði víða
um landið, mest á Norðaustur
landi, í Fljótum, Biskupstungum
en einnig víðar. Um þetta var rætt
manna á meðal í sumar og var al
mennt búist við því að ráðist yrði
í lagabreytingar, samkvæmt tillög
um sem þegar liggja fyrir, um leið
og þing kæmi saman sl. haust. Sú
varð ekki raunin.
Áhugaleysi þingmanna var al
gert og ekki í nokkru samræmi við
greinilegan þjóðarvilja. Þá hóf Jóna
Imsland átak sitt og bíður framtak
hennar þess að við fylkjum okkur
saman um það á komandi ári. Vel
væri til fundið að við sýndum vilja
okkar í verki með því að kjósa Jónu
Imsland mann ársins. Ef ekki, þá
gerum við það á næsta ári þegar
henni, með okkar stuðningi, hefur
tekist að vekja stjórnmálamenn af
þyrnirósarsvefni sínum. Gleymum
því ekki hve kauphallarbröskurum
heimsins myndi reynast auðvelt
að kaupa Ísland eins og það leggur
sig. Gróðinn á góðum degi í kaup
höllinni myndi fara langt með það.
Þar með yrði eignarhald á auð
lindunum jafnframt að talsverðu
leyti komið ofan í vasa auðkýfinga
og út fyrir landsteinana í þokka
bót.
Undið ofan af gjaldtöku í
heilbrigðiskerfinu
Hitt jákvæða atriðið sem ég stað
næmist við er ákvörðun Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
nú undir árslokin um að byrja
að vinda ofan af gjaldtöku í heil
brigðiskerfinu. Þessi ákvörðun er
gríðarlega mikilvæg og þá jafn
framt augljós ásetningur ráðherr
ans að styrkja heilsugæsluna sem
fyrsta viðkomustað sjúklings í
kerfinu.
Upphæðin sem lífeyrisþegum
og öryrkjum sparast þegar þeir
hætta að vera krafðir um gjald á
heilsgæslustöðvum nú um ára
mótin, er að sönnu ekki ýkja há,
en hún hefur ekki aðeins hagræna
heldur einnig táknræna þýðingu.
Í byrjun tíunda áratugarins, þegar
gjaldtakan hófst, var talað um
þetta sem „fyrsta skref“. Þáverandi
heilbrigðisráðherra hafði reyndar
einnig á orði á þessum tíma að
gjaldtaka innrætti sjúklingum
kostnaðarvitund, nokkuð sem
samtökum sjúklinga og verkalýðs
hreyfingu þótti ekki vera göfugt
markmið, nefnilega að þröngva
inn í vitund þeirra sem ættu við
sjúkdóma að stríða hve mikil byrði
þau væru á samfélaginu!
Nú er svo komið að fimmtung
ur kostnaðar heilbrigðiskerfisins
kemur beint úr vasa sjúklinga en
aðeins áttatíu af hundraði úr sam
eiginlegum skatthirslum. Kann
anir hafa ítrekað sýnt að þetta hafi
valdið því að fátækasti hluti sam
félagsins veigri sér við að leita sér
lækninga af fjárhagslegum ástæð
um. Vonandi verður haldið áfram
á þessari jákvæðu braut og er mik
ilvægt að veita heilbrigðisráðherra
öflugan stuðning hvað þetta varð
ar.
Vonbrigði ársins
Ekki hefði ég trúað því að á
fullveldisárinu yrði farið að rukka
okkur fyrir að koma á Þingvöll og
ekki hefði ég heldur trúað því að
aðkoma VG að ríkisstjórn breytti
engu um að seldur sé aðgangur að
náttúruperlum landsins! Þar með
er haldið áfram á braut fyrri ríkis
stjórna um að kvótavæða náttúru
landsins, festa í sessi prívatréttinn
til að hagnast á því sem heyrir okk
ur öllum til. Á komandi ári verður
fylgst með framvindunni í þessu
efni. Því verður vart trúað að ríkis
stjórnin lyppist niður gagnvart
yfir gangi hagsmunaaðila nema að
hún sé sama sinnis, að réttmætt sé
að rukka fólk fyrir að horfa á fjall
eða foss.
Fjölmiðlar gerist vandaðri og
gagnrýnni
Önnur vonbrigði ársins var um
fangsmesta hernaðaræfing NATO
til þessa á Íslandi. Hvenær skyldi
sá tími renna upp að við segjum
okkur frá þessu siðlausa hernaðar
bandalagi? Seinast sáum við til
NATO þegar ráðist var á Líbíu
með hörmulegum afleiðingum.
Svo í vor var gerð árás á Sýrland,
skammvinn þó, til að refsa þar
lendum stjórnvöldum fyrir að
beita efnavopnum gegn þegn
um sínum. Viðeigandi stofnun
(OPCW) í Haag myndi eflaust
staðfesta þetta eftir að hafa rann
sakað málið, var okkur sagt í frétt
um. Rannsóknin fór vissulega
fram. Í ljós kom að allur málatil
búnaður NATO var lygi frá upphafi
til enda. Lítið fór fyrir þeirri niður
stöðu í fjölmiðlum.
Vonandi hressist Eyjólfur á
komandi ári! n
Ögmundur Jónasson,
fyrrverandi ráðherra.
SELJUM EKKI ÍSLAND