Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Side 11
KYNNING UNICONTA: Bókhaldskerfið sem allir eru að tala um Uniconta er nýjasta og öflugasta bókhalds-kerfið úr smiðju Eriks Damgaard. Erik er ókrýndur konungur bókhaldskerfanna, byrjaði ungur að árum að þróa bókhaldskerfi sem þúsundir fyrirtækja um allan heim hafa notað, t.a.m. Concorde XAL og Axapta. Microsoft keypti fyrirtæki hans fyrir um 200 milljarða króna árið 2001 og hafa lausnir hans verið flaggskipið í lausnaframboði hugbúnað- arrisans síðan þá. Uniconta kom á markað í Danmörku og á Íslandi árið 2016 og hefur fengið frá- bærar viðtökur. Önnur kerfi komast ekki með tærnar þar sem Uniconta er með hælana þegar kemur að virkni og hraða. Kerfið er skýjalausn þar sem að öll gögn eru vistuð í ISO vottuðu skýjaumhverfi en notandinn vinnur með gögnin í gegnum forrit eða app á tölvu eða snjalltæki. Hraði og virkni „Okkar reynsla er sú að Uniconta sem skýjalausn er að skila gögnum mun hraðar en bókhaldskerfi sem eru á gagnaþjónum niðri í kjallara hjá fyrirtækjum, gögnunum er þjappað á snilldarlegan hátt þegar þau er sótt eða send upp í skýið,“ segir framkvæmdastjóri Uniconta á Íslandi, Ingvaldur Thor Einarsson. Fjárhagskerfið er hjart- að í Uniconta og tengist að fullu við allar kerfiseiningar eins og viðskiptavina- og lánardrottnakerfi, birgða-, framleiðslu-, verkbók- halds-, kröfu- og CRM-kerfi. Uniconta byggir á nýjustu tækni frá Microsoft og for- ritaskilum (API) þannig að einfalt er að láta gögn flæða á milli Uniconta annars vegar og launakerfa, vefverslana, bókunarkerfa o.s.frv. hins vegar. Þá er mjög fljótlegt að setja upp gagnvirka teninga í Excel eða PowerBI sem keyra á raungögnum úr Uniconta. Í dag eru á annað hundrað lausnir sem bjóða upp á tilbúnar tengingar við Uniconta. Uniconta má nota á öllum tækjum: Windows- og Mac- -tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum. Frábærar viðtökur Uniconta er viðskiptalausn á heimsmælikvarða og styð- ur nú þegar 30 tungumál. Kerfið er komið inn á nokkra markaði í Evrópu, Asíu og Mið-Austurlöndum. Fjöldi notenda hér á landi er kom- inn yfir eitt þúsund og vel á þriðja hundrað íslenskra fyr- irtækja af öllum stærðum og gerðum nota nú Uniconta til að halda utan um fjármál og rekstur, birgðir, framleiðslu og verk. Í dag eru flest íslensk fyrir- tæki að nota gömul eða úrelt bókhaldskerfi með tilheyr- andi kostnaði og takmörkun á framleiðni. „Hér eru þessi gömlu íslensku bókhaldskerfi eins og DK enn víða í notk- un. Þessi kerfi voru smíðuð á síðustu öld og voru mjög fín á sínum tíma. Þarna var tækniumhverfið allt annað, nettengingar voru hægar og dýrar. Þessi kerfi byggja því á gamalli tækni sem verður flöskuháls víða. Notendur þurfa oft að vinna í gegnum fjarvinnsluviðmót sem var ásættanlegt fyrir einhverjum tíu árum en er ekki boðlegt í nútímaumhverfi.“ segir Ingvaldur. „Á hinum enda markaðarins eru stóru kerfin eins og Dynamics NAV sem eru einnig komin til ára sinna. Þessi kerfi eru dýr í inn- leiðingu og uppfærslur eru dýrar og flóknar. Uniconta er skýjalausn sem uppfærist sjálfkrafa þannig að fyrirtæki sem er í Uniconta þarf aldrei að ráðast í kostnaðarsama uppfærslu.“ Uniconta er því skynsam- legasta lausnin fyrir íslensk fyrirtæki. Bókhaldskerfi hafa aldrei verið ódýrari Uniconta er seld sem hug- búnaðarlausn í áskrift þar sem lægsta mánaðargjald er kr. 2.499 án VSK en sú áskrift hentar einyrkjum í einföldum rekstri. „Menn bæta svo við notendum, kerfiseiningum, færslum og viðbótarlausnum eftir þörf- um. Viðskiptavinir sem skipta yfir í Uniconta eru að jafnaði að ná fram 50% sparnaði í rekstrarkostnaði bókhalds- kerfis,“ segir Ingvaldur. „Þá er mun einfaldara að innleiða Uniconta en önnur kerfi og hægt að færa öll gögn úr gamla kerfinu yfir í Uniconta. Við aðstoðuðum t.d. lítið fyrirtæki um daginn við inn- leiðingu Uniconta og það tók klukkustund að koma öllum gögnum og færslum síðustu 10 ára úr gamla kerfinu yfir í Uniconta. Hjá stærri fyrir- tækjum hleypur innleiðing á einhverjum dögum en ekki mánuðum eins og hjá mörg- um af okkar keppinautum.“ Aldrei minni vinna við bók- haldið „Við ætlum okkur ekki aðeins að lækka kostnað fyrirtækja við áskrift og innleiðingu viðskiptalausna, heldur viljum við einnig hjálpa þeim að spara dýrmætan tíma starfsmanna,“ segir Ingvald- ur. Hjá meðalstóru fyrirtæki fara hundruð klukkustunda í innslátt og meðhöndlun fylgiskjala í hverjum mánuði. Í byrjun árs mun Uniconta kynna nýja lausn sem les upplýsingar af fylgiskjölum á stafrænu formi og fær- ir inn í rétta reiti í kerfinu. Þetta mun spara alla inn- sláttarvinnu og nær útrýma mistökum. Þetta er í takt við fjórða iðnbyltinging þar sem að tæknin leysir af hólmi ein- föld, tímafrek verkefni sem eru endurtekin í gríð og erg. „Margir hafa spáð því að starf bókara muni leggjast af en okkar sýn er sú að þessi störf muni ekki leggjast niður – heldur breytast. Bókarar munu hafa tíma til að sinna greiningum og veita stjórn- endum fyrirtækja endurgjöf um reksturinn. Þetta skapar mun meiri verðmæti fyrir alla en núverandi fyrirkomulag þar sem heilu stöðugildin eru að slá inn gögn af pappír og raða fylgiskjölum í möppur. Uniconta er í stöðugri þróun og við leggjum okkur fram um að hlusta á óskir viðskiptavina okkar. Bestu hugmyndirnar koma frá fólk- inu sem notar kerfið daglega til að leysa ýmis vandamál í rekstrinum og kallar eftir nýjum og snjöllum leiðum til að gera hlutina.“ Um Uniconta Uniconta A/S er starfrækt í Danmörku og hefur um 30 starfsmenn á sínum snær- um. Fyrirtækið er að mestu í eigu Eriks Damgaard en danskir lífeyrissjóðir lögðu til milljarða fjárfestingu á síðasta ári. Uniconta Ís- land ehf. hefur dreifingar- rétt á Uniconta hér á landi. Uniconta bókhaldskerfið er selt í gegnum fjölda sjálf- stæðra sölu- og þjónustu- aðila. „Við teljum að þetta sé besta leiðin inn á markaðinn. Viðskiptavinurinn getur valið þann þjónustuaðila sem hann treystir best en við höfum lagt mikla vinnu í að velja og þjálfa öfluga þjón- ustuaðila sem viðskiptavinir treysta.“ Sjá nánar á uniconta.is. n
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.