Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Síða 11
KYNNING
UNICONTA:
Bókhaldskerfið sem allir eru að tala um
Uniconta er nýjasta og öflugasta bókhalds-kerfið úr smiðju Eriks
Damgaard. Erik er ókrýndur
konungur bókhaldskerfanna,
byrjaði ungur að árum að
þróa bókhaldskerfi sem
þúsundir fyrirtækja um allan
heim hafa notað, t.a.m.
Concorde XAL og Axapta.
Microsoft keypti fyrirtæki
hans fyrir um 200 milljarða
króna árið 2001 og hafa
lausnir hans verið flaggskipið
í lausnaframboði hugbúnað-
arrisans síðan þá.
Uniconta kom á markað í
Danmörku og á Íslandi árið
2016 og hefur fengið frá-
bærar viðtökur. Önnur kerfi
komast ekki með tærnar
þar sem Uniconta er með
hælana þegar kemur að
virkni og hraða. Kerfið er
skýjalausn þar sem að öll
gögn eru vistuð í ISO vottuðu
skýjaumhverfi en notandinn
vinnur með gögnin í gegnum
forrit eða app á tölvu eða
snjalltæki.
Hraði og virkni
„Okkar reynsla er sú að
Uniconta sem skýjalausn er
að skila gögnum mun hraðar
en bókhaldskerfi sem eru á
gagnaþjónum niðri í kjallara
hjá fyrirtækjum, gögnunum
er þjappað á snilldarlegan
hátt þegar þau er sótt eða
send upp í skýið,“ segir
framkvæmdastjóri Uniconta
á Íslandi, Ingvaldur Thor
Einarsson.
Fjárhagskerfið er hjart-
að í Uniconta og tengist að
fullu við allar kerfiseiningar
eins og viðskiptavina- og
lánardrottnakerfi, birgða-,
framleiðslu-, verkbók-
halds-, kröfu- og CRM-kerfi.
Uniconta byggir á nýjustu
tækni frá Microsoft og for-
ritaskilum (API) þannig að
einfalt er að láta gögn flæða
á milli Uniconta annars vegar
og launakerfa, vefverslana,
bókunarkerfa o.s.frv. hins
vegar. Þá er mjög fljótlegt
að setja upp gagnvirka
teninga í Excel eða PowerBI
sem keyra á raungögnum úr
Uniconta. Í dag eru á annað
hundrað lausnir sem bjóða
upp á tilbúnar tengingar við
Uniconta.
Uniconta má nota á öllum
tækjum: Windows- og Mac-
-tölvum, spjaldtölvum og
snjallsímum.
Frábærar viðtökur
Uniconta er viðskiptalausn á
heimsmælikvarða og styð-
ur nú þegar 30 tungumál.
Kerfið er komið inn á nokkra
markaði í Evrópu, Asíu og
Mið-Austurlöndum. Fjöldi
notenda hér á landi er kom-
inn yfir eitt þúsund og vel á
þriðja hundrað íslenskra fyr-
irtækja af öllum stærðum og
gerðum nota nú Uniconta til
að halda utan um fjármál og
rekstur, birgðir, framleiðslu
og verk.
Í dag eru flest íslensk fyrir-
tæki að nota gömul eða úrelt
bókhaldskerfi með tilheyr-
andi kostnaði og takmörkun
á framleiðni. „Hér eru þessi
gömlu íslensku bókhaldskerfi
eins og DK enn víða í notk-
un. Þessi kerfi voru smíðuð
á síðustu öld og voru mjög
fín á sínum tíma. Þarna var
tækniumhverfið allt annað,
nettengingar voru hægar og
dýrar. Þessi kerfi byggja því
á gamalli tækni sem verður
flöskuháls víða. Notendur
þurfa oft að vinna í gegnum
fjarvinnsluviðmót sem var
ásættanlegt fyrir einhverjum
tíu árum en er ekki boðlegt
í nútímaumhverfi.“ segir
Ingvaldur. „Á hinum enda
markaðarins eru stóru kerfin
eins og Dynamics NAV sem
eru einnig komin til ára sinna.
Þessi kerfi eru dýr í inn-
leiðingu og uppfærslur eru
dýrar og flóknar. Uniconta
er skýjalausn sem uppfærist
sjálfkrafa þannig að fyrirtæki
sem er í Uniconta þarf aldrei
að ráðast í kostnaðarsama
uppfærslu.“
Uniconta er því skynsam-
legasta lausnin fyrir íslensk
fyrirtæki.
Bókhaldskerfi hafa aldrei
verið ódýrari
Uniconta er seld sem hug-
búnaðarlausn í áskrift þar
sem lægsta mánaðargjald
er kr. 2.499 án VSK en sú
áskrift hentar einyrkjum í
einföldum rekstri. „Menn
bæta svo við notendum,
kerfiseiningum, færslum og
viðbótarlausnum eftir þörf-
um. Viðskiptavinir sem skipta
yfir í Uniconta eru að jafnaði
að ná fram 50% sparnaði í
rekstrarkostnaði bókhalds-
kerfis,“ segir Ingvaldur. „Þá er
mun einfaldara að innleiða
Uniconta en önnur kerfi og
hægt að færa öll gögn úr
gamla kerfinu yfir í Uniconta.
Við aðstoðuðum t.d. lítið
fyrirtæki um daginn við inn-
leiðingu Uniconta og það tók
klukkustund að koma öllum
gögnum og færslum síðustu
10 ára úr gamla kerfinu yfir
í Uniconta. Hjá stærri fyrir-
tækjum hleypur innleiðing á
einhverjum dögum en ekki
mánuðum eins og hjá mörg-
um af okkar keppinautum.“
Aldrei minni vinna við bók-
haldið
„Við ætlum okkur ekki aðeins
að lækka kostnað fyrirtækja
við áskrift og innleiðingu
viðskiptalausna, heldur
viljum við einnig hjálpa þeim
að spara dýrmætan tíma
starfsmanna,“ segir Ingvald-
ur. Hjá meðalstóru fyrirtæki
fara hundruð klukkustunda
í innslátt og meðhöndlun
fylgiskjala í hverjum mánuði.
Í byrjun árs mun Uniconta
kynna nýja lausn sem les
upplýsingar af fylgiskjölum
á stafrænu formi og fær-
ir inn í rétta reiti í kerfinu.
Þetta mun spara alla inn-
sláttarvinnu og nær útrýma
mistökum.
Þetta er í takt við fjórða
iðnbyltinging þar sem að
tæknin leysir af hólmi ein-
föld, tímafrek verkefni sem
eru endurtekin í gríð og erg.
„Margir hafa spáð því að
starf bókara muni leggjast af
en okkar sýn er sú að þessi
störf muni ekki leggjast niður
– heldur breytast. Bókarar
munu hafa tíma til að sinna
greiningum og veita stjórn-
endum fyrirtækja endurgjöf
um reksturinn. Þetta skapar
mun meiri verðmæti fyrir alla
en núverandi fyrirkomulag
þar sem heilu stöðugildin eru
að slá inn gögn af pappír og
raða fylgiskjölum í möppur.
Uniconta er í stöðugri
þróun og við leggjum okkur
fram um að hlusta á óskir
viðskiptavina okkar. Bestu
hugmyndirnar koma frá fólk-
inu sem notar kerfið daglega
til að leysa ýmis vandamál
í rekstrinum og kallar eftir
nýjum og snjöllum leiðum til
að gera hlutina.“
Um Uniconta
Uniconta A/S er starfrækt í
Danmörku og hefur um 30
starfsmenn á sínum snær-
um. Fyrirtækið er að mestu
í eigu Eriks Damgaard en
danskir lífeyrissjóðir lögðu
til milljarða fjárfestingu á
síðasta ári. Uniconta Ís-
land ehf. hefur dreifingar-
rétt á Uniconta hér á landi.
Uniconta bókhaldskerfið er
selt í gegnum fjölda sjálf-
stæðra sölu- og þjónustu-
aðila. „Við teljum að þetta sé
besta leiðin inn á markaðinn.
Viðskiptavinurinn getur valið
þann þjónustuaðila sem
hann treystir best en við
höfum lagt mikla vinnu í að
velja og þjálfa öfluga þjón-
ustuaðila sem viðskiptavinir
treysta.“
Sjá nánar á uniconta.is. n