Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Side 14
14 28. desember 2018 LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM Greiðslulausnir tengdar helstu afgreiðslukerfum Sjálfstandandi greiðslulausnir og handfrjálsir posar Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060 ANNÁLL - MARS HÚH!, þvottabjörn á flótta og aðgerðarsinni fellur Ari Ólafsson, söngvari og Eurovision-fari, vekur athygli fyrir að vera óhræddur við að sýna tilfinningar sínar og gráta í að- draganda þess að hann ber sigur úr býtum í undankeppni söngva- keppninnar hér á landi. Kári Stefánsson lýsir yfir van- þóknun sinni með seinagang heilbrigðisyfirvalda við að koma jáeindaskanna, sem Íslensk erfðagreining færði þjóðinni að gjöf í september 2015, í gagnið. Skriður kemst loks á málið og jáeindaskanninn er vígður við hátíðlega athöfn í lok árs. Fregnir berast frá Sýrlandi um að að- gerðarsinninn Haukur Hilmarsson hafi fallið í átökum í Afrin í Sýrlandi. Haukur barðist fyrir þjóðaröryggisveit Kúrda, YPG, gegn ISIS og tyrkneska stjórnar hernum. Hann er talinn hafa fallið í loftárásum hinna síðarnefndu. Haukur, sem var 32 ára gamall, vakti þjóðarathygli í búsáhaldabyltingunni þegar hann klifraði upp á þak Al- þingishússins og flaggaði fána Bón- usverslunarkeðjunnar á flaggstöng hússins. Eignir hljómsveitarmeðlima Sigur Rós- ar eru kyrrsettar af Sýslumanninum á höfuð borgarsvæðinu vegna gruns um skattalagabrot. Kyrrsetningin nær til eigna upp á rúmlega 800 milljónir króna. Þar á meðal fasteignir, öku- tæki, hlutafé í fyrirtækum og fé á bankareikningum þeirra Jóns Þórs Birgissonar, Orra Páls Dýrasonar og Georgs Hólm. Þremenningarnir mótmæla kyrrsetningu og segja að um handvömm endurskoðanda hafi verið að ræða en ekki ásetning. Stjórn N1 hf. ákveður að hækka laun forstjóra félags- ins, Eggerts Þórs Kristófers- sonar, um 20% sem verð- laun fyrir góðan árangur í rekstri félagsins árið 2016. Ákvörðunin vekur mikla reiði í samfélaginu. Birgir Hauksson er í göngutúr á Reykjanesi ásamt hundinum Tyson þegar félagarnir ganga fram á torkennilegt býr. Hundurinn lendir í áflogum við dýrið og hefur það undir. Í ljós kemur að um þvottabjörn er að ræða sem hafði komið sér vel fyrir í holu skammt frá Höfnum. Ekki er vitað um upp- runa dýrsins en líklegast er að dýrinu hafi verið smyglað til landsins sem gæludýri eða það hafi gerst laumufarþegi. Grínistinn Hugleikur Dagsson greinir frá því að hann hafi fengið skilaboð þar sem þess er krafist að hann hætti sölu á bolum með myndum af spýtukalli sem orgar hið víðfræga „HÚH!“ sem íslenskir stuðningsmenn eru heimsþekktir fyrir. Umræddur maður, Gunnar Þór Andrésson, hafði tveimur árum fyrr sótt um einkaleyfi fyrir „HÚH!“ á fatnað og drykkjarvör- ur. Framtak Gunnars fellur í grýttan jarð- veg í þjóðfélaginu og hann fellur frá kröfu sinni.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.