Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Qupperneq 14
14 28. desember 2018
LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM
Greiðslulausnir tengdar
helstu afgreiðslukerfum
Sjálfstandandi greiðslulausnir
og handfrjálsir posar
Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060
ANNÁLL - MARS
HÚH!, þvottabjörn á flótta
og aðgerðarsinni fellur
Ari Ólafsson, söngvari og
Eurovision-fari, vekur athygli fyrir
að vera óhræddur við að sýna
tilfinningar sínar og gráta í að-
draganda þess að hann ber sigur
úr býtum í undankeppni söngva-
keppninnar hér á landi.
Kári Stefánsson lýsir yfir van-
þóknun sinni með seinagang
heilbrigðisyfirvalda við að koma
jáeindaskanna, sem Íslensk
erfðagreining færði þjóðinni að
gjöf í september 2015, í gagnið.
Skriður kemst loks á málið og
jáeindaskanninn er vígður við
hátíðlega athöfn í lok árs.
Fregnir berast frá Sýrlandi um að að-
gerðarsinninn Haukur Hilmarsson
hafi fallið í átökum í Afrin í Sýrlandi.
Haukur barðist fyrir þjóðaröryggisveit
Kúrda, YPG, gegn ISIS og tyrkneska
stjórnar hernum. Hann er talinn hafa
fallið í loftárásum hinna síðarnefndu.
Haukur, sem var 32 ára gamall, vakti
þjóðarathygli í búsáhaldabyltingunni
þegar hann klifraði upp á þak Al-
þingishússins og flaggaði fána Bón-
usverslunarkeðjunnar á flaggstöng
hússins.
Eignir hljómsveitarmeðlima Sigur Rós-
ar eru kyrrsettar af Sýslumanninum á
höfuð borgarsvæðinu vegna gruns um
skattalagabrot. Kyrrsetningin nær til
eigna upp á rúmlega 800 milljónir
króna. Þar á meðal fasteignir, öku-
tæki, hlutafé í fyrirtækum og fé á
bankareikningum þeirra Jóns Þórs
Birgissonar, Orra Páls Dýrasonar
og Georgs Hólm. Þremenningarnir
mótmæla kyrrsetningu og segja
að um handvömm
endurskoðanda
hafi verið að
ræða en ekki
ásetning.
Stjórn N1 hf. ákveður að
hækka laun forstjóra félags-
ins, Eggerts Þórs Kristófers-
sonar, um 20% sem verð-
laun fyrir góðan árangur í
rekstri félagsins árið 2016.
Ákvörðunin vekur mikla reiði
í samfélaginu.
Birgir Hauksson er í göngutúr á Reykjanesi ásamt hundinum Tyson þegar
félagarnir ganga fram á torkennilegt býr. Hundurinn lendir í áflogum við
dýrið og hefur það undir. Í ljós kemur að um þvottabjörn er að ræða sem
hafði komið sér vel fyrir í holu skammt frá Höfnum. Ekki er vitað um upp-
runa dýrsins en líklegast er að dýrinu hafi verið smyglað til landsins sem
gæludýri eða það hafi gerst laumufarþegi.
Grínistinn Hugleikur Dagsson
greinir frá því að hann hafi fengið
skilaboð þar sem þess er krafist
að hann hætti sölu á bolum
með myndum af spýtukalli sem
orgar hið víðfræga „HÚH!“ sem
íslenskir stuðningsmenn eru
heimsþekktir fyrir. Umræddur
maður, Gunnar Þór Andrésson,
hafði tveimur árum fyrr sótt um
einkaleyfi fyrir „HÚH!“ á
fatnað og drykkjarvör-
ur. Framtak Gunnars
fellur í grýttan jarð-
veg í þjóðfélaginu
og hann fellur frá
kröfu sinni.