Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Síða 22
22 28. desember 2018ANNÁLL - JÚLÍ
Þingvallaskandall
og Karl Vignir laus
Einn alræmdasti barnaníðingur landsins, Karl Vignir Þorsteinsson,
er látinn laus úr fangelsi, eftir að hafa afplánað um fimm ár af sjö,
og kemur sér fyrir í lítilli íbúð við Hlemm þar sem hann hefur út-
sýni yfir leikvöll. Foreldrar eru slegnir óhug enda hefur Karl Vignir
viðurkennt að hafa misnotað allt að 50 börn í gegnum árin, drengi
og stúlkur.
DV upplýsir um að Guðný Guðnadóttir, einstæð móðir fjögurra barna, neyðist til þess að gista í tjaldi á
höfuð borgarsvæðinu með yngsta son sinn í kjölfar þess að íbúð sem hún leigði var seld. Sonur Guðnýjar,
sem er þriggja ára, er langveikur en hann fæddist fyrir tímann og er ekki enn byrjaður að tala.
Davíð Jónsson, sex-
tugur íslenskur
karlmaður, læt-
ur lífið í bílslysi í
Taílandi á flótta frá
lögreglu. Bíll hans
skall á vörubíl sam-
kvæmt erlendum
fjölmiðlum. Í bíln-
um fannst heilmik-
ið af fíkniefnum, svo
sem metamfetamín,
kókaín og kanna-
bis. Davíð var einnig
breskur ríkisborgari
og hét þar í landi
David Sewell.
Þingvallafundurinn er settur og í öndvegi situr hinn umdeilda danska
stjórnmálakona, Pia Kjærsgaard. Ekki nokkur sála hefur áhuga á
fundinum sem er ekki í takt við væntingar ráðamanna. Síðar verð-
ur allt vitlaust þegar í ljós kemur að fundurinn kostaði íslenska skatt-
greiðendur 87 milljónir króna.
Veitingastaðurinn Lof, sem er í
eigu framkvæmdastjóra SUS, Jak-
obs Helga Birgissonar, og tengda-
föður hans, fer í þrot á mettíma.
Starfsfólk fær ekki greidd þau
laun sem það telur sig eiga rétt
á, en á meðan keyrir Jakob Helgi
um á rúmlega 15 milljóna króna
Porsche-sportbíl.
Adolf Örn Adolfsson verður fyrir harkalegri árás nauts í spænska smá-
bænum Denia. Myndir af atvikinu birtast í spænskum miðlum og
vekja athygli ytra. Adolf Örn tók þátt í árlegri nautahlaupshátíð með
þessum afleiðingum. Horn nautsins stungust inn í líkama Adolfs Arn-
ar á þremur stöðum en hann slapp afar vel miðað við aðstæður.
Kaldunnin þorsklifrarolía
Íslensk framleiðsla
120/180
60
220 ml
Dropi af
náttúrunni
„Fyrir mér er
Dropi heilindi og
lífsorka”