Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Qupperneq 22
22 28. desember 2018ANNÁLL - JÚLÍ Þingvallaskandall og Karl Vignir laus Einn alræmdasti barnaníðingur landsins, Karl Vignir Þorsteinsson, er látinn laus úr fangelsi, eftir að hafa afplánað um fimm ár af sjö, og kemur sér fyrir í lítilli íbúð við Hlemm þar sem hann hefur út- sýni yfir leikvöll. Foreldrar eru slegnir óhug enda hefur Karl Vignir viðurkennt að hafa misnotað allt að 50 börn í gegnum árin, drengi og stúlkur. DV upplýsir um að Guðný Guðnadóttir, einstæð móðir fjögurra barna, neyðist til þess að gista í tjaldi á höfuð borgarsvæðinu með yngsta son sinn í kjölfar þess að íbúð sem hún leigði var seld. Sonur Guðnýjar, sem er þriggja ára, er langveikur en hann fæddist fyrir tímann og er ekki enn byrjaður að tala. Davíð Jónsson, sex- tugur íslenskur karlmaður, læt- ur lífið í bílslysi í Taílandi á flótta frá lögreglu. Bíll hans skall á vörubíl sam- kvæmt erlendum fjölmiðlum. Í bíln- um fannst heilmik- ið af fíkniefnum, svo sem metamfetamín, kókaín og kanna- bis. Davíð var einnig breskur ríkisborgari og hét þar í landi David Sewell. Þingvallafundurinn er settur og í öndvegi situr hinn umdeilda danska stjórnmálakona, Pia Kjærsgaard. Ekki nokkur sála hefur áhuga á fundinum sem er ekki í takt við væntingar ráðamanna. Síðar verð- ur allt vitlaust þegar í ljós kemur að fundurinn kostaði íslenska skatt- greiðendur 87 milljónir króna. Veitingastaðurinn Lof, sem er í eigu framkvæmdastjóra SUS, Jak- obs Helga Birgissonar, og tengda- föður hans, fer í þrot á mettíma. Starfsfólk fær ekki greidd þau laun sem það telur sig eiga rétt á, en á meðan keyrir Jakob Helgi um á rúmlega 15 milljóna króna Porsche-sportbíl. Adolf Örn Adolfsson verður fyrir harkalegri árás nauts í spænska smá- bænum Denia. Myndir af atvikinu birtast í spænskum miðlum og vekja athygli ytra. Adolf Örn tók þátt í árlegri nautahlaupshátíð með þessum afleiðingum. Horn nautsins stungust inn í líkama Adolfs Arn- ar á þremur stöðum en hann slapp afar vel miðað við aðstæður. Kaldunnin þorsklifrarolía Íslensk framleiðsla 120/180 60 220 ml Dropi af náttúrunni „Fyrir mér er Dropi heilindi og lífsorka”
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.