Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 26
26 FÓLK - VIÐTAL 28. desember 2018 Flugferð ársins Katrín Jak- obsdóttir forsætis- ráðherra flaug til Svíþjóð- ar í apríl til að vera viðstödd leiðtoga- fund Norðurlandanna og hitta forsætisráðherra Indlands. Það sem Katrín vissi líklega ekki, var að um borð í vélinni var Sindri Þór Stefánsson sem hafði um nóttina strokið úr fangelsinu að Sogni með því að klifra út um glugga á einni byggingu fangelsisins. Sindri var í gæsluvarðhaldi grunað- ur um innbrot í gagnaver og þjófnaði á Bitcoin-gröfu-tölv- um. Flótti Sindra vakti heims- athygli og hann átti ófáa stuðn- ingsmenn hér á landi sem vildu að hann myndi aldrei finnast. Þeim varð ekki að ósk sinni og var Sindri handtekinn fimm dögum síðar í Amsterdam. En kannski var Sindri einmitt handtekinn vegna þess að hann ákvað að birta mynd af sér í borginni og birta hana á Instagram. Mjög gáfulegt þegar þú ert á flótta enda varð hann afar hissa þegar hann var handsamaður klukkutíma síð- ar. Hann bíður nú dóms. Svarthöfði verðlaunar þá sem stóðu sig best á árinu n Slagsmál n Íbúð ársins n Bygging n Svikarar n Stóllinn Snorri Fyrir utan veitingastaðinn Benzin á Grensásvegi áttu sér stað slags- mál ársins. Þar tókust á Margrét Friðriksdóttir og Sema Erla Serdar. Margrét hafði farið á Benzin til að spila „pool“, hafði ætlað sér á Ölver en þar er hún í banni. Úps! Fyrir utan Benzin lenti Margréti og Semu saman. Margrét sakaði Semu um að hreyta í hana fúkyrðum og hún hefði að lokum ýtt Semu frá sér til að komast undan. Margrét hefur áður komið sér í vandræði vegna neyslu og var meðal annars dæmd í fangelsi fyrir að aka undir áhrifum árið 2007. Vinir Semu og hún sjálf sökuðu Margréti um að fara frjálslega með staðreyndir. Margrét hefði blótað þeim í sand og ösku og hótað því að kærasti hennar, sem kynni karate, myndi lúskra á þeim öllum. Margrét hafi svo kýlt Semu Erlu og haldið áfram hrópum og öskrum sem andsetin væri. Sema ákvað að kæra Margréti og Margrét tók einu réttu ákvörðunina, sem var að hætta að drekka eða fá sér aðeins minna af þeim anda sem hún segir fylla líf sitt á hverjum degi. Inga Sæland grét sig ekki bara inn á þing, hún grét líka nokkrum sinnum á árinu, bæði í skrifuðu máli og svo í pontu á Alþingi. Ari Ólafsson Eurovision-fari sá að þetta virkaði og grét nokkrum sinnum meðan á keppni stóð og náðist vart viðtal við þennan unga, efnilega og tilfinningaríka mann án þess að tár væri á hvarmi. Sjálfur sagði Ari: „Svo var ég líka búinn að gráta svo mikið að ég gat ekki grátið lengur og fór eiginlega í trans.“ Notendur Twitter fóru einnig í trans og uppnefndu Ara „grenjARi“ og líktu við Ingu Sæland. Svarthöfði tekur auðvitað upp hanskann fyrir Ara, það er nauðsynlegt fyrir unga karlmenn að geta grátið og tjáð tilfinningar sínar. Inga og Ari hafa líka kennt okkur, að viljir þú sigra þá er bara að gráta og gera það nægilega oft þangað til að hinir fullorðnu þagga niður í þér með því að rétta þér dótið sem þig langaði svo í. Inga Sæland kemur enn og aftur fyrir í umfjöllun Svarthöfða á ár- inu. Inga Sæland ákvað að skilja við Karl Gauta Hjaltason og Ólaf Ís- leifsson, þingmenn Flokks fólksins, eftir að í ljós kom að þeir voru á fylleríi í vinnutíma á Klaustri bar. Þar drukku þeir ásamt Miðflokkn- um og töluðu illa um mann og annan. Inga fékk nóg og hætti í sam- bandinu. Stóllinn Snorri Hljóð ársins á stóllinn Snorri sem er á Klaustri bar. Hann er líklega í horninu á þeim fræga stað en enginn veit þó ná- kvæmlega hvar Snorri er nákvæmlega er staðsettur. Fólk hefur haft á orði að þegar stóllinn Snorri sé dreginn eftir gólfinu heyrist skerandi selahljóð, sem sumir vilja meina að líkist einnig hjóli sem bremsað er fyrir utan glugga. En ef verulega illa liggur á honum, þá á stóllinn Snorri til að uppnefna fólk og tekur þá alla minnihlutahópa fyrir. Sunna Elvira komst í fréttirnar þegar greint var frá að hún hefði fallið á milli hæða á heimili hennar á Spáni. Sunna hefur borið sig vel og er alltaf jákvæð og býr nú á Íslandi. Fyrrverandi eiginmaður hennar, Sigurður Kristinsson, var handtekinn fyrir að smygla eiturlyfjum í skákvörum sem sendar voru til Íslands. Sunna Elvira hefur ítrekað sagt að Sigurður Kristinsson hafi ekki átt neinn þátt í slysinu örlaga- ríka um kvöldið á heimili hennar. Það má vel vera rétt, enda var skráð á spítalanum að Sunna Elvira hefði slasast eftir bílslys og það er auðvitað ótrúleg tilviljun að bílaleigubíllinn sem Sunna og Sigurð- ur voru með á leigu hafi aldrei fundist. Fyrir ári var það Björt Ólafsdóttir sem auglýsti kjól fyrir vinkonu sína á Alþingi. Í þetta sinn ákvað Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að gera enn betur og auglýsti mjólk í þinghúsinu. Skrifstofustjóri vildi meina að Katrín hefði engar reglur brotið þegar fulltrúar MS afhentu henni nýjar mjólkurfernur. Það er alveg rétt. Katrín brýtur aldrei neinar reglur og svíkur engan og hefur aldrei gert. Eins og allir ís- lenskir pólitíkusar stendur hún við loforð sín og sannfæringu. Henni myndi til dæmis aldrei láta sér detta í hug að fara í eina sæng með Sjálfstæðisflokknum og fara síðan kannski að mæla með vegtollum! Vinstri græn, eins þau leggja sig, eru svikarar ársins. Það er ekkert að marka það sem þau segja og flokkurinn mun þurrkast næstum út í næstu kosningum. Flokknum er meðal annars stýrt af hægri manni, Steingrími Joð sem býr í 400 fermetra einbýlishúsi með fataherbergi og arinstofu. Þau munu ýta öllu í framkvæmd sem þau áður börðust gegn. Trúir þú ekki Svarthöfða? Hvað er búið að vera nýjast í frétt- um? Vegtollar? Hvað með þá? Þeir verða samþykktir. Af hverjum? Ríkisstjórninni. Dagur ársins Dagur ársins 2018 er Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Hann náði að halda sér við völd í Reykjavík með því að fá Viðreisn til liðs við sig. Síð- an fór hann í frí. Þegar hann kom úr fríi komst hann að því að bragginn sem hann var að byggja fyrir HR kostaði of mik- ið. Þá ákvað hann að þá væri rétti tíminn til að fara í veik- indaleyfi. Það er ekki nóg pláss á síð- um DV til að rifja upp allt sem gekk á hjá Degi á ár- inu. Grenj/Ari ársins Slagur ársins Skilnaður ársins Bílslys ársins Auglýsing ársins Svikarar ársins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.