Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 30
30 28. desember 2018ANNÁLL - SEPTEMBER
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Collagen Beauty
formula
Inniheldur 500 mg af kollageni ásamt náttúrulegri bætiefnablöndu
sem styður við kollagenframleiðslu húðarinnar.
Regluleg inntaka getur hægt á öldrunareinkennum og dregið úr
líkum á að fínar línur og hrukkur fari að myndast of snemma.
Minni hrukkur og frísklegri húð
3 mánaða skammtur
Natures Aid Collagen 5x10 copy.pdf 1 30/11/2017 15:16
Orka Náttúrunnar, Orri
Páll og stolin kynlífsdúkka
Agnes Sigurðardóttir, biskup Ís
lands, bað séra Þóri Stephen
sen að koma ekki aftur fram fyrir
kirkjunnar hönd. Varð hann við
þeirri beiðni. DV hafði áður greint
frá því að séra Þórir hefði játað
kynferðisbrot gegn barni
fyrir þolanda og bisk
upi sjálfum.
Sólveig Austfjörð Bragadóttir steig fram í einlægu viðtali í DV og
opnaði sig um morðið á syni sínum. Sonur hennar, Hartmann Her
mannsson, var aðeins sjö ára þegar eldri drengur hrinti honum
í Glerá á Akureyri árið 1990. Sólveig kenndi gerandanum Ara ekki
um heldur kerfinu sem brást.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands,
bauð konu 200 þúsund krónur til að losna undan pínlegum réttar
höldum. Hafði Ásgerður nafngreint konuna í útvarpsviðtali sem
olli konunni kvíða. Konan hafði áður lýst yfir vonbrigðum með
mataraðstoð Fjölskylduhjálparinnar fyrir jól.
DV kannaði vændismark
aðinn í miðbæ Reykjavík
ur. Blaðamenn fylgdust með
húsum þar sem vitað var að
vændiskonur hefðu aðsetur,
leiguíbúðum og gistiheim
ilum. Þangað komu meðal
annars íslenskir fjölskyldu
menn til að kaupa þjónustu.
Einar Bárðarson steig fram
og greindi frá kynferðislegri
áreitni á ónefndum vinnustað.
Síðar kom í ljós að vinnustað
urinn var Orka Náttúrunnar
og að eiginkonu Einars, Ás
laugu Thelmu Einarsdóttur,
hafði verið sagt upp. Varð mál
ið mjög umtalað næstu vikur
og mánuði. Síðar kom í ljós að
Áslaugu hafði verið sagt upp á
faglegum forsendum.
Lögreglan rannsakaði mál þar sem erlendir svikahrappar hótuðu
einhverfum pilti ofbeldi ef hann greiddi ekki 150 þúsund krónur.
Var hann narraður til að hafa milligöngu um sölu smáhunds en
eyddi peningunum sjálfur. Hundurinn sem um ræddi var ekki
raunverulegur. Svikahrapparnir létu hins vegar kné fylgja kviði og
réðust á móður drengsins.
Tvær ungar stúlkur
keyrðu í gegnum hurð
kynlífshjálpartækja
búðarinnar Adam &
Eva og stálu úr búð
inni. Þær fóru hins
vegar ekki í búðarkass
ann heldur tóku kyn
lífsdúkku sem metin
var á 300 þúsund krón
ur. Bíllinn og dúkkan
fundust samdægurs
en þjófarnir voru á bak
og burt.
Bandarísk lista
kona, Meagan Boyd, sak
aði trommarann Orra
Pál Dýrason úr Sigur Rós
um að hafa brotið kyn
ferðislega á henni árið
2013. Átti hið meinta brot
sér stað á hótelherbergi í
Los Angeles þar sem liðs
menn Sigur Rósar voru
við upptökur. Orri neitaði
ásökunum en hætti engu
að síður í Sigur Rós.