Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Side 32
32 28. desember 2018
Faxafen 12 • Sími 534 2727 • alparnir.is
HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA
ALLAR VETRARVÖRURNAR
KOMNAR Í HÚS
VIÐ HJÁ ÍSLENSKU ÖLPUNUM ÓSKUM
YKKUR FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI
ANNÁLL - OKTÓBER
Dýr strá, Björn Bragi og
hasar í Sjómannafélaginu
Reynir Bergmann Reynisson, einn af þekktustu snöppurum lands-
ins, lýsti baráttu sinni við eiturlyfjafíkn í einlægu viðtali við DV. Fyrir
tuttugu árum prófaði hann kókaín í fyrsta skipti og þá breyttist líf
hans til hins verra. Reynir ræddi þessa baráttu og sagði fíkniefna-
heiminn svartari en fólk gæti ímyndað sér.
Meira en tuttugu konur sökuðu Jóhannes Tryggva
Sveinbjörnsson meðhöndlara um kynferðisbrot.
Leituðu þær til lögmanns til að sjá um málið fyrir
sig en áður hafði Jóhannes verið kærður til lögreglu
af minnst þremur konum. Jóhannes, sem með-
höndlar margar stjörnur, hafnaði ásökununum.
Katrín Ingibjörg Kristófersdóttir steig fram í DV
og sagði frá nauðgun samstarfsmanns og brott-
rekstri í kjölfar hennar. Katrín starfaði hjá Fjár-
sýslu ríkisins og í fyrstu virtist sem yfirmenn
hennar hafi ætlað að sýna henni skilning. En
þegar hún var að reyna að vinna úr áfallinu
sneru þeir við henni bakinu.
Heiðveig María Einarsdóttir bauð sig fram til forystu í Sjómannafé-
lagi Íslands. Framboðinu var hins vegar hafnað á grundvelli þess að
hún hefði ekki verið í félaginu undanfarin þrjú ár. Áhöld voru uppi
um hvort sú lagabreyting ætti sér stoð enda var hún ekki auglýst fyrr
en Heiðveig boðaði framboð sitt. Í lok mánaðarins var Heiðveigu
vikið úr stéttarfélagi sínu sem hefur ekki gerst í marga áratugi.
DV greindi frá að Kristinn Sigurjónsson, lektor við
Háskólann í Reykjavík, hefði látið óviðeigandi um-
mæli um konur falla á Facebook-síðu. Sagði hann að
konur reyndu að troða sér þar sem karlmenn vinna
og eyðileggja þá vinnustaði. Kristni var skömmu síð-
ar vikið frá störfum og í kjölfarið hóf hann málaferli
gegn skólanum fyrir ólögmæta uppsögn.
Braggamálið rúllaði áfram. DV greindi frá því
að Reykjavíkurborg hefði greitt 757 þúsund
krónur fyrir strá sem plantað var við bragg-
ann. Þetta voru höfundarréttarvarin strá sem
keypt voru frá Danmörku. Einnig kom fram
að tegundin yxi nú þegar á Íslandi og væri
ágeng og óæskileg planta.
DV greindi frá að Íslendingar ættu kvenkyns klámstjörnu, Tinnu
Gunnarsdóttur. Hún starfar í Bretlandi og gengur undir nafninu
Tindra Frost. Tinna er framarlega í sínu fagi og hefur unnið til
verðlauna.
Skemmtikrafturinn og uppistandarinn Björn Bragi Arnarsson var
gripinn við að þukla á stúlku undir lögaldri á veitingastað á Akur-
eyri. Stúlkan tók atvikið upp á myndband og komst það í dreifingu
á netinu. Í kjölfarið baðst Björn Bragi afsökunar og sagði af sér sem
kynnir spurningakeppninnar Gettu betur á RÚV.