Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Síða 39
 28. desember 2018 39Völvuspáin 2019 sem horfir. Það mun ýta enn frekar undir óánægjuna með ríkisstjórnarsamstarfið. Stjórn- völd munu beita sér grimmt í kjarasamningabaráttunni og almannarómur verður sá að þau dragi taum atvinnurek- enda. Stuðningsmenn íhalds- ins og Framsóknarmanna munu mala af ánægju á með- an kjósendur Vinstri grænna munu hvæsa. Hún sér fyrir sér gríðarleg innbyrðis átök í flokknum og álagið á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra verður afar mikið. Hefur áhyggjur af Katrínu Völvan segir að framundan sé erfitt ár hjá Katrínu. Fyrir utan að sinna þeim fjölmörgu, viða- miklu verkefnum sem forsætis- ráðuneytið krefst þá þarf hún að slökkva elda í gríð og erg innan Vinstri grænna, enda er hluti grasrótarinnar afar ósáttur við stjórnarsamstarfið. Þá verð- ur hún fyrir óvægri gagnrýni á samfélagsmiðlum og þrátt fyr- ir þykkan skráp þá nær slíkt að lokum í gegn. „Ég hef áhyggjur af Katrínu og held að hún verði að hugsa meira um sjálfa sig og það sem skipt- ir máli. Ég sé hrikta í stoðum einkalífs henn- ar en allt ætti að fara vel ef tekist er strax á við vanda- málið,“ segir völvan. Framtíð Fram- sóknarflokksins Þá munu verða umskipti innan Framsóknarflokksins. Það hef- ur öllum verið ljóst að Lilja Al- freðsdóttir er framtíð flokks- ins og hún mun taka við sem formaður á næsta ári. Að sögn völvunnar fer Sigurður Ingi Jóhannsson þó ekki frá glað- ur í bragði. „Hann kann því vel að vera í forystunni, þó að sú forysta hafi komið óvænt upp í hendurnar á hon- um. Þetta er traustur og góður maður, en ekki einhver sem sópar að sér atkvæð- um. Það get- ur hins vegar Lilja gert og að lok- um ákveð- ur Sigurður Ingi að hlusta hinar háværu raddir innan flokks- ins og stíga til hliðar úr formannssætinu. Hann er þó hvergi nærri hættur í pólitík,“ segir völvan. Hún slær þó einn varnagla. „Ég skynja einhverj- ar tengingar Lilju við Seðla- banka Íslands. Það var nokk- uð skýrt í draumum mínum. Lilja starfaði þar á árum áður og þekkir þar hvern krók og kima. Það gæti því vel verið að innra með henni bærist áhugi á stóli seðlabankastjóra.“ Hún segir að þótt allt virðist með kyrrum kjörum innan þing- flokks Framsóknarflokksins þá kraumi óánægja þar eins og annars staðar. „Það eru nokkrir þingmenn sem telja að þeir eigi að hljóta stærri vegsemdir, til dæmis Þórunn Egilsdóttir. Það er þó algjört ofmat enda eru flestir sam- mála um að Þór- unn sé illgresi í grænum garði Framsóknar- flokksins,“ segir völvan án þessa að blikna. Hneyksli varð- andi viðskipti Engeyinga Það er kátt innan Sjálfstæðis- flokksins enda gengur Sjálf- stæðismönnum allt í haginn þessa dagana. Völvan segir að leiðtogar Sjálfstæðisflokksins þurfi nánast að klípa sig dag- lega til þess að vera fullvissir um að stjórnarsamstarfið sé ekki einhvers konar draum- ur. Allt gengur flokknum í hag, helstu mál fljúga í gegn og samstarfsflokkarnir eru und- anlátssamir. Þá hafa hin ýmsu hneykslismál haldið kastljósinu frá helstu for- ystumönn- um flokksins. Það á þó eft- ir að breyt- ast. „Hing- að til hefur ekkert bitið á Bjarna Bene- diktsson. En um mitt næsta ár mun koma upp hneyksl- ismál sem tengist af- skiptum Bjarna að viðskiptum fjöl- skyldumeðlima. Þetta mál mun reynast Bjarna afar erfitt. Ég sé að um hann leika vindar elds og íss. Skyndilega er hann einn,“ segir völvan. Ágúst Ólafur bíður færis Völvan segist skynja að stemmingin innan Samfylk- ingarinnar, að minnsta kosti í þingflokknum, sé góð en þó eru blikur á lofti. Leiðtogar flokks- ins liggi und- ir feldi um hvernig eigi að tækla mál Ágústs Ólafs Ágústsson- ar. „Ágúst Ólafur vill taka aftur sæti á þingi eftir hið sjálfskipaða leyfi sitt. Hann mun þó reyna að draga endurkomuna þar til ljóst er hvað verði um Gunn- ar Braga og Bergþór. Ef þeir segja af sér þá er staða hans mun erfiðari. Ef ekki þá mun það gera Ágústi Ólafi kleift að snúa aftur en þó eru ekki allir í forystu flokksins sátt- ir við það. Ég skynja að Logi Einars- son, for- maður Sam- fylk- ingar- innar, vill að þing- maður- inn segi af sér, hann er góður í að segja það sem al- múginn vill heyra,“ segir völvan.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.