Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Side 53
Sérblað völvunnar 28. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
STERKARI BÖRN:
Sjálfstraust – sjálfsagi –
sjálfsvörn
Þessi námskeið eru ekki síst miðuð að börnum sem hafa orðið fyrir einelti. Við tökum
allt það góða úr bardagalistunum
og fellum það saman við almennar
styrktaræfingar þannig að börnin
fá að kynnast grundvallaratriðum á
borð við armbeygjur, hnébeygjur og
rétta líkamsstöðu. Ef barnið verð-
ur sterkara andlega og líkamlega,
minnka líkur á einelti og mótstöðu-
afl barnsins í slíkum hremmingum
eykst sömuleiðis,“ segir Sigursteinn
Snorrason, eigandi bardagaskólans
Mudo Gym í Víkurhvarfi 1, Kópavogi.
Einkunnarorð námskeiðsins Sterk-
ari börn eru: Sjálfstraust, sjálfsagi og
sjálfsvörn. Námskeiðið er fyrir börn á
aldrinum 6 til 14 ára.
Aukið sjálfstraust er lykilatriði
„Við erum alls ekki að kenna börnun-
um að meiða hvert annað,“ segir Sig-
ursteinn, enda er ekki um eiginlega
bardagatíma að ræða. Við tökum
það besta úr nokkrum bardagalist-
um eins og Taekwondo, hnefaleik-
um og fleiri greinum. Aðalatriðið er
samt alltaf það að gefa þeim aukið
sjálfstraust. Það næst með auknum
sjálfsaga og að vita að þau geta
varið sig, ef til þess kemur.
Börnin eru ekki í bardagagalla en
sniðin er að þeim barnvæn útgáfa
af Taekwondo bardagalistinni sem
hæfir þeim. „Börnin öðlast aukið
sjálfstraust við að standast belta-
prófin og færast upp á næsta stig,
eða með því brjóta spýtu með
höndunum og sigrast á ýmsum
þrautum. Þetta byggir ekki síður upp
andlegan styrk þeirra en líkamlegan,“
segir Sigursteinn.
Næstum þriggja áratuga reynsla af
Taekwondo
Námskeiðið Sterkari börn er hluti
af úrvali námskeiða sem eru haldin
í bardagaskóla Sigursteins, Mudo
Gym að Víkurhvarfi 1. Sigursteinn,
sem er 43 ára gamall, á að baki 28
ára feril sem bardagalistamaður:
„Þetta var bara Karate Kid-pakk-
inn hjá mér. Ég tók þetta alla leið,
fluttist 19 ára gamall til Suður-Kóreu,
þaðan sem íþróttin er upprunnin og
tók svarta beltið.“
Taekwondo-iðkendum hefur
fjölgað mjög hér á landi undanfarin
ár en Sigursteinn stofnaði sinn skóla
árið 2016. Frá upphafi hefur verið
lögð áhersla á barnastarf með afar
góðum árangri. Taekwondo er yfir
2.000 ára gömul sjálfsvarnarlist
en hún þróast í sífellu og að sama
skapi þróar Mudo Gym sífellt áfram
sitt farsæla starf með börnum og
unglingum.
Sterkari börn æfa sjálfsvörn,
styrkingu líkamans, félagsþroska og
skilning. Kennt er í sex vikna nám-
skeiðum eða heilli önn. Sjá nánar á
vefsíðunni sterkariborn.is. n