Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Síða 64
Sérblað völvunnar 28. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
Bjóðum venjuleg kerfi og einnig sérhönnuð kerfi fyrir aðstæð-ur þar sem krafist er sérstaks
styrkleika vegna vindálags
Cover Aluproducts hefur verið
frumkvöðull í hönnun á glerbrauta-
prófílum síðan á níunda áratug
síðustu aldar og er kerfið orðið vel
þekkt um allan heim. Cover er finnskt
gæðafyrirtæki og hafa Íslendingar
tekið vel við sér því á aðeins þrem-
ur árum hafa verið sett upp um yfir
fimm hundruð svalir og sólstofur um
allt land. „Við erum með glerhandriða
lausnir fyrir verktaka með möguleika
fyrir svalalokun fyrir kaupendur íbúða.
Cover Iceland býður einnig upp á
kaup á heilum kerfum á hagstæðu
verði,“ segir Þuríður Kristín hjá Cover
Iceland.
Hentar íslenskum aðstæðum
Cover hentar sérstaklega vel við
íslenskar aðstæður þar sem getur
orðið ansi vindasamt, kalt og blautt
eins og við höfum mörg hver feng-
ið að reyna á eigin skinni bæði í allt
sumar og líka síðasta vetur. Í dag
gera svo flestir íslenskir arkitektar og
verkfræðingar kröfur um sérstakt
vindálagsþol því það hefur sýnt sig
að hérlendis geta vindhviður orðið
afar snarpar og sterkar vegna ýmissa
landfræðilegra skilyrða. Cover Iceland
býður meðal annars handrið og
svalalokunarkerfi sem er sérstaklega
hannað og þróað kerfi fyrir íslenskt
veðurfar og er sérstaklega vindþolið.
Þá er glerið allt að 20 mm og 15 mm
í svalalokum. Bilum milli glerja er
lokað með PVC-þéttilista sem kemur
í veg fyrir að snjór og vatn komist inn.
Þannig býður Cover Iceland 100%
vatns- og vindþétt svalalokunarkerfi.
„Cover-svalalokunarkerfin veita
skjól allan ársins hring og lengja til
muna þetta stutta sumar sem okkur
á norðurhveli jarðar býðst ár hvert.
Þannig eykur Cover notagildi sval-
anna og jafnframt verðmæti fast-
eignarinnar,“ segir Þuríður.
Öryggi og hljóðeinangrun
Glerið sem notað er í Cover-kerfin er
fjórum sinnum sterkara en venjulegt
gler af sömu þykkt. „Öryggið felst
í því að ef það brotnar þá molnar
það í ótal litla mola í stað hvassra
stærri brota í venjulegu gleri. Einnig
geta glerjaðar svalir með einföldu
gleri minnkað hávaða að utan um 7
desíbel. Og ef um er að ræða 2500
Herz-hávaða þá minnkar hljóðið um
13,5 desíbel,“ segir Þuríður.
Hágæða kerfi
Hjólabúnaðurinn er eitt af aðals-
merkjum Cover-glerbrautarkerfisins
en hjólalegurnar gera glerbrautar-
kerfið afar þægilegt í notkun. Hjólin
eru jafnstór að ofan og neðan sem
gerir það að verkum að Cover-svala-
lokunarkerfið er skröltfrítt og glerflek-
inn er algjörlega njörvaður niður, sem
er nauðsyn hér á landi. Glerflekarnir
hanga ekki í efri braut heldur renna
til á jafnstórum hjólum í efri og neðri
braut sem tryggir jafnt álag og úti-
lokar glamur og stirðleika.
Þarf ekki lengur að moka snjó
„Það nýjasta hjá okkur eru svo renni-
hurðir og glerskálar með þaki. Einnig
er hægt að fá stök þök svo sem yfir
tröppur og skýli við útidyr. Þá þarf
ekki að moka snjóinn úr tröppunum,“
segir Þuríður.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.covericeland.is
CoverIceland ehf.
Auðbrekka 10, 200 Kópavogur
(+354) 519-7771 – 777-7001
covericeland@covericeland.is n
Cover Iceland svala-
og handriðalausnir