Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 68
68 28. desember 2018Völvuspáin 2017
Frægir fjölga sér
Dáður matgæðingur og fjölmiðla-
kona, sem nýlega fann ástina í
örmum ungs manns, tilkynnir um
að brátt muni þau fjölga mann-
kyninu. Fréttinni verður vel tekið
enda hafa vegir ástarinnar hjá
fjölmiðlakonunni verið þyrnum
stráðir.
Einn frægasti sjónvarpsmaður
Íslands tilkynnir einnig að von sé
á erfingja. Sá er kominn á fimm-
tugsaldurinn og því ekki seinna
vænna. Að auki eru flestir vinir
hans orðnir ráðsettir fjölskyldu-
menn og því var aðeins einn
kostur í stöðunni.
Eiður finnur
ástina og nýtt
starf
Eiður Smári Guðjohnsen
gengur út en erlend snót
heillar kappann upp úr
skónum. Í kjölfarið til-
kynnir knattspyrnuhetj-
an að hann hafi tekið
við útsendarastarfi hjá
bresku liði.
Ímynd hinnar
fullkomnu eigin-
konu hrynur
Þekkt sjónvarpskona skilur við maka
sinn á árinu. Það veldur miklu upp-
námi hjá aðdáendum hennar enda
sjónvarpskonan dáð af almenningi
og hefur yfir sér ímynd hinnar full-
komnu eiginkonu og móður.
Logi söðlar um
Logi Bergmann Eiðsson tilkynnir
um starfslok sín hjá Árvakri og út-
varpsstöðinni K100. Síðar á árinu
snýr hann aftur á skjáinn í metnað-
arfullu verkefni hjá Sjónvarpi Sím-
ans.
Rangfeðraður
Íslendingur
stígur fram
Þjóðþekktur Íslendingur vekur
gríðarlega athygli á árinu þegar
viðkomandi stígur fram og seg-
ir frá því að hann sé rangfeðr-
aður. „Fleiri stíga fram í kjöl-
farið og mikil umræða geisar
um þetta þjóðfélagsmein sem
enginn hefur þorað að ræða
fyrr. Sá er hóf umræðuna mun
verða hylltur sem hetja í kjölfar-
ið,“ segir völvan.
Svala finnur
lífsförunaut
Ástarlíf Svölu Björgvins-
dóttur verður áfram á allra
vörum á næsta ári. Fyrst
verður greint frá skilnaði
hennar en síðan finnur hún
aftur ástina síðar á árinu.
„Hún mun finna lífsförunaut
sinn,“ segir völvan.
Losti ráðherrans
Ástamál ráðherra verða í
brennidepli en upp kemst um
náið samband hans við sam-
herja í pólitík. „Það er ekki
gott að segja hvort þar sé um
að ræða aðstoðarmann eða
annan þingmann. Málið verð-
ur allt hið óþægilegasta enda
tíðkast sjaldan að fjalla um
málefni hjartans, eða öllu held-
ur lostans, hjá valdamönnum í
samfélaginu,“ segir völvan.
Íslensk klám-
bylting
Íslenska klámmyndaleikkonan
Tinna Gunnarsdóttir, betur þekkt
sem Tindra Frost, setur allt á
hliðina þegar kynlífsmyndband
sem er tekið upp hér á landi er
frumsýnt. Um það segir völvan: „Í
kjölfarið kemur í ljós að fleiri ís-
lenskir klámmyndaleikarar hafa
látið ljós sitt skína á erlendum vett-
vangi þó að þeir hafi farið huldu
höfði hingað til.“
Insta-par á hvers
manns vörum
Tvær gríðarlega vinsælar samfé-
lagsmiðlastjörnur opinbera sam-
band sitt á árinu og verður parið í
fjölmiðlum í kjölfarið. „Þetta verð-
ur nýtt ofurpar og verður umdeilt
eftir því.“
Birni Braga fyrir-
gefið
Upprisa Björns Braga Arnarssonar
hefst á næsta ári. Hann mun nota
tímann fjarri sviðsljósinu til þess
að verða umfangsmeiri í útgáfu
bóka auk þess sem hann mun hefj-
ast handa við framleiðslu á hvers
konar skemmtiefni fyrir leiksvið
og sjónvarp. „Fórnarlamb Björns
Braga fyrirgaf honum og þjóðin
mun smátt og smátt taka hann aft-
ur í sátt.“
Bylting í rapp-
senunni
Tveir ungir karlkyns rapparar stíga
fram og opinbera ástarsamband
sitt. „Samkynhneigð hefur verið
tabú í hinni karllægu íslensku
rappsenu og því vekur yfirlýs-
ing rapparanna mikla og jákvæða
athygli.“
Skilnaður í
kjarabaráttu-
stormi
Vinstrisinnaður áhrifamaður í
stjórn- og verkalýðsmálum til-
kynnir um hjónaskilnað sinn. Tíð-
indin verða kunngerð í miðjum
kjarabaráttustormi. Í kjölfarið
dregur leiðtoginn sig í hlé frá opin-
berri umræðu í nokkrar vikur.
Ljótur skilnaður
Annar skilnaður skekur þjóðina en
um er að ræða þekkt par á besta
aldri úr íslenskri trúarkreðsu. „Í
kjölfarið fara þau að atyrða hvort
annað í fjölmiðlum. Þetta verður
frekar blóðugt,“ segir völvan.
UMHVERFISVÆNI
RUSLAPOKINN
www.igf.is
SEGÐ
U NE
I
VIÐ P
LAST
I