Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 80

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 80
80 28. desember 2018FRÉTTIR Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is M arsmaður. Dularfull vera með mörg mismunandi andlit og líkamsform sem hefur lifað í hugum manna í mörg hundruð ár. Áhugi okkar á Mars, Rauðu plánetunni, hefur lengi verið traust umgjörð um hug­ myndir okkar og kannski drauma um að við séum ekki ein í alheim­ inum. Það þarf því ekki að undrast að geimferðastofnanir hafi mikinn áhuga á Mars og auðvitað skemm­ ir ekki fyrir að plánetan er ekki svo fjarri jörðinni okkar svo ferðalög þangað eru möguleg. Nýlega lenti InSight, geimfar bandarísku geim­ ferðastofnunarinnar NASA, á Mars en því er ætlað að vinna að jarðvís­ indarannsóknum. NASA hefur um árabil stundað rannsóknir á Mars, bæði með hin­ um svokölluðu Marsbílum, Curi­ osity og Opportunity, og fjölmörg­ um gervihnöttum sem eru á braut um Mars. Aðrar geimferðastofnan­ ir hafa einnig sinnt rannsóknum á Mars og má þar nefna Evrópsku geimferðastofnunina. Það er því óhætt að segja að engin pláneta í sólkerfinu, að jörðinni undan­ skilinni, hafi verið rannsökuð jafn mikið og Mars. Ekki er enn ljóst hvort líf hafi einhvern tímann þrifist á Mars en draumurinn um að svo hafi verið, eða jafnvel sé, lifir enn. Ein fyrsta þekkta frásögn­ in af lífi á Mars er frá 1758 en þá skrifaði sænski vísindamaðurinn Emanuel Swedenborg um andleg samskipti við anda frá Mars. Þetta er auðvitað engin vísbending um líf á Mars en á þessum tíma hef­ ur þetta eflaust þótt stórmerkilegt. Árið 1877 rannsakaði Giovanni Schiaparelli Mars í gegnum sjón­ auka og tók þá eftir mynstri á yfir­ borðinu sem hann lýsti og reyndi að kortleggja. Rangtúlkun á skrif­ um hans yfir á ensku varð þess valdandi að orðið „canal“ (skurð­ ur) var notað um þetta mynstur. Það hafði mikil áhrif því jarðar­ búum var í fersku minni að Súes­ skurðurinn hafði nýverið verið tek­ inn í notkun. Af þeim sökum tengdi fólk orðið „canal“ við skurð gerðan af vitsmunaverum og taldi að vits­ munaverur hefðu grafið skurði á Mars. Árið 1894 styrkti bandaríski stjörnufræðingurinn Percival Lowry þessar hugmyndir um skurðina með skrifum sínum og lengi á eftir taldi fólk að líf væri á Mars. Í kjölfar vísindamannanna kom síðan skapandi fólk á borð við H.G. Wells sem sendi árið 1898 frá sér bókina War of the Worlds sem snerist einmitt um innrás Marsbúa á jörðina. Þar með var heimur vís­ indaskáldsagna orðinn til. Á næstu árum streymdu bækur, teikni­ myndabækur og myndir á markað­ inn þar sem siðmenntaðar, meira eða minna, verur frá Mars voru kynntar til sögunnar. Þekktasta verkið er líklegast útvarpsleikrit, byggt á War of the Worlds sem var útvarpað 1938 í Bandaríkjunum. Það var að sögn svo raunverulegt að margir hlustendur fylltust skelf­ ingu vegna yfirvofandi innrásar Marsbúa. En skelfingin var þó ekki eins mikil og oft hefur verið látið í veðri vaka í gegnum tíðina. Tæknilegar framfarir Eftir því sem tækninni fleygði fram var hægt að komast nær plánetun­ um en bara með að horfa á þær í gegnum sjónauka. Árið 1965 tók Mariner 4 fyrstu myndina af annarri plánetu og 1976 birti NASA nýja mynd af yfirborði Mars. Viljug augu, og það var nóg af þeim, töldu sig sjá andlitsmynd á steini. Þessu vísuðu vísindamenn á bug en þetta var eins og eldsneytisinnspýting fyrir hug­ myndirnar um líf á Mars. Það var ekki fyrr en 1998 sem NASA tók aft­ ur mynd af þessum sama steini og með nýrri og miklu betri mynda­ vélatækni varð erfiðara að standa fast á að hér væri um andlit að ræða. Til Mars hafa verið send 18 geim­ för. Fimm náðu aldrei á leiðarenda, fjögur hröpuðu til jarðar á Mars og tvö eyðilögðust í lendingu. Þau sjö sem hafa náð alla leið á áfangastað hafa tekið nærmyndir af plánet­ unni. Enn er nóg af viljugum aug­ um og margir hafa talið sig sjá allt frá verum, sem líkjast mönnum, til nagdýra og annarra vera. Vísinda­ menn hafa bent á að það sé 60 stiga frost á Mars og að þar sé enginn lofthjúpur sem veiti vernd eins og hér á jörðinni og því séu lífsskilyrði þar mjög erfið. Hugleiðingum fólks um að það sjái verur á myndunum hefur verið hafnað og rök færð fyrir að í slíkum tilfellum sé heilinn að stríða fólki því hann hefur hæfileika til að búa til myndir sem fólk vonast til að sjá. Vísindamenn hafa lengi verið nokkuð sammála um að eitt sinn hafi verið mikið af frosnu vatni á Mars. Árið 2015 sló NASA því föstu að þar væri einnig fljótandi vatn. Þá sögðu menn að öruggt væri að fljótandi vatn væri að finna á Mars við ákveðnar aðstæður. Vatnið er þó að sögn mun saltara en það sem er hér á jörðinni en það er einmitt saltið sem kemur í veg fyrir að vatn­ ið frjósi. Curiosity, annar Marsbíla NASA, hefur fundið greinileg um­ merki um lífrænar sameindir á Mars en þær gætu verið komnar frá lifandi verum. Bíllinn hefur ver­ ið að störfum á svæði þar sem var haf fyrir um 3,5 milljörðum ára. Þetta hefur eðlilega ýtt undir von­ ir og sannfæringu sumra um að líf hafi eða sé á Mars. Telja verður lík­ legt að við munum fá svar við því á næstu árum enda er sífellt verið að auka rannsóknir á Mars og virð­ ist sem ekki séu svo ýkja mörg ár í að menn verði sendir þangað. En hvort þeir snúi aftur eða fari aðeins aðra leiðina er svo annað mál. n aðrir útsölustaðir Epal - Laugavegi 70 EPAL - Harpa Airport fashion - Leifsstöð Reykjavik Raincoats HVERFISGATA 82, vitastígsmegiNn www.reykjavikraincoats.com Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com ER LÍF Á MARS? n Draumurinn sem sækir stöðugt á mannkynið „Draumur- inn sem sækir stöðugt á mannkynið War of the Worlds Orrustuvél frá Mars. Mars Eitt sinn var þar fullt af vatni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.