Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 84
84 28. desember 2018MATUR
Betri
Svefn
Gjaldþrot, niðurgangur og smjörsmokkur
Í mat er þetta helst:
n Það vantaði ekki matarfréttirnar á árinu n Sviptingar í veitingahúsabransanum
Ein mest lesna fréttin á nýstofnuðum
matarvef DV á árinu sem er að líða er
uppljóstrun Garðars Gunnlaugssonar um
matarvenjur fyrrverandi eiginkonu sinnar,
Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur.
„Ásdís fær sér beikon pullu með kar
töflusalati,“ tísti Garðar til að leiðrétta
rangfærslur annars tístara sem fullyrtu
að glamúrfyrirsætan fengi sér pylsu með
öllu þegar hún vildi gera vel við sig. Mat
arvefurinn leitaði til Ásdísar Ránar, sem
staðfesti þetta.
„Ef ég fæ mér pylsu, sem gerist kannski
einu sinni til tvisvar á ári, þá vil ég hafa
hana svona.“
Sigmar Vilhjálmsson, oftast kenndur við Hamborgara
fabrikkuna, var mikið í fréttum á árinu. Hann seldi til að
mynda öll hlutabréf sín í Hamborgarafabrikkunni og
Keiluhöllinni, en salan kom mörgum á óvart. Það sem
vakti hins vegar mun meiri athygli voru deilur Sigmars
við Skúla Gunnar Sigfússon, sem oftast er kenndur við
Subway, sem reknar voru fyrir dómstólum í vor. Sigmar
og Skúli voru í samstarfi fyrir einhverjum árum áður en
upp kom ósætti á milli þeirra eftir sölu tveggja lóða á
Hvolsvelli árið 2016. Sigmar tjáði sig um málið á Face
book daginn fyrir dóm.
„Ég mun líklega aldrei fá til baka þá fjár
muni sem ég hef lagt í þetta mál, enda er
þetta ekki rekið áfram af mér vegna pen
inga. Þetta mál er spurning um „prinsipp“
og mannorð. Þetta mál er spurning um
það hvort maður ætli að láta vaða yfir sig
og láta snúa sig niður í krafti pen
inga og hótana um ærumeiðingar,
eða standa í lappirnar og láta
menn svara fyrir gjörðir sínar.“
Svo fór að Sigmar bar sigur
úr býtum í Héraðsdómi Reykja
víkur.
48 viðskiptavinir Skelfiskmarkaðarins veiktust af matareitrun í lok
október og byrjun nóvember. Mengaðar ostrur ollu eitruninni, en
nóróveirur greindust í þeim. Ostrurnar sem í boði eru á veitinga
staðnum eru innfluttar frá Spáni og ræktaðar áfram til manneldis í
Skjálfandaflóa, nánar til tekið á Húsavík. Var þetta í fyrsta sinn sem
nóróveira var staðfest í ostrum á Íslandi, en Ágúst Reynisson, einn
eigenda staðarins, var skiljanlega í áfalli þegar að blaðamaður DV
náði sambandi við hann.
„Það kom upp einhver veira. Síðan við heyrðum af fyrsta tilvik
inu þá höfum við verið dag og nótt að vinna í þessu. Við erum nýr
veitingastaður og búið að vera erfið fæðing, þó það sé brjálað að
gera. Að sjálfsögðu viljum við ekki fá fréttir af þessu.“
Marga hryllti við fréttaskýringu Kveiks um plast, en meðal þess sem
fréttakonan Sigríður Halldórsdóttir kafaði ofan í var magn örplasts í
vatni. Sigríður fór með vatn úr þvottavél á rannsóknarstofu Matís þar
sem það var síað. Svanhildur Hauksdóttir, starfsmaður Matís, leitaði
svo eftir plastögnum í þvottavatninu.
Kom í ljós að mikið var af plastögnum í þvottavatninu en Sigríður
fékk Svanhildi einnig til að rannsaka kranavatn af reykvísku heimili.
Í því sýni voru að meðaltali 27 örplastsagnir í hverjum lítra drykkjar
vatns, en rannsóknir Veitna fyrr á árinu sýndu fram á að ekki væru
nema 0,2 til 0,4 agnir í hverjum lítra kranavatns. Sá varnagli var þó
sleginn í Kveik að þátturinn hefði einungis látið kanna eitt sýni af
einu heimili.
Þessar niðurstöður komu Sigríði þó í opna skjöldu.
„Þetta er bara svo hræðilegt,“ sagði hún í þættinum. Kom fram að
óljóst væri hvaðan plastið kæmi og hvaða áhrif það hefði á lands
menn.
Akureyrska bakaríið Kristjánsbakarí hefur framleitt svokallaða
Bragga – tveggja laga súkkulaðiköku, fyllta með smjörkremi og húð
aða með súkkulaðihjúp – síðan í kringum 1970. Bragginn varð óvænt
afar vinsæll í október á árinu sem er að líða í skugga hins umdeilda
braggamáls er varðaði braggann í Nauthólsvík sem fór langt fram úr
kostnaðaráætlun.
Sala á Bragganum tífaldaðist þegar braggamálið kom upp, en
Kristjánsbakarí ákvað að bregða á leik og bauð líka upp á uppgerða
bragga með innfluttum stráum frá Svíþjóð.
„Við ákváðum að nýta okkur umtalið og skjóta aðeins á þetta
glórulausa mál,“ sagði Viktor Sigurjónsson, sölu og markaðsstjóri
Kristjánsbakarís, í samtali við matarvef DV á sínum tíma. „ Okkur
fannst þetta fyndið þar sem við áttum vöru sem heitir það sama.
Maður verður að taka smá grín á þetta – það má ekki taka lífinu of
alvarlega.“
Viktor og félagar í Kristjánsbakaríi nýttu þetta tækifæri til hins
ýtrasta og færðu meira að segja borgarfulltrúum Bragga sem rann
ljúflega niður.
Gjaldþrot og Gordon
Margir veitingastaðir fóru á hausinn á ár
inu, svo sem LOF, veitingastaðurinn á
Hótel Holti, Egill Jacobsen, Nora Magasin,
Ugly Pizza, Laundromat Café, steikhúsið
Argentína og Borðið.
Veitingastaðurinn Sumac átti hins vegar
góðu gengi að fagna á árinu, ásamt öðr
um stöðum, en stjörnukokkurinn Gordon
Ramsay kallaði Sumac meðal bestu
veitingastaða á Íslandi. Gordon sagði ís
lenska laxinn vera besta fisk í heimi. Það er
nú ekki amalegt.
Okrið í Þrastalundi
Þær voru svo ófáar fréttirnar sem voru fluttar af verðlagn
ingu á veitingastaðnum Þrastalundi á árinu. Morgun
blaðið sagði til að mynda frá því að 750 millilítrar af ís
lensku vatni kostuðu þar 750 krónur á meðan lítrinn
kostaði 850 krónur. Mörgum blöskraði þetta, þar á meðal
Bubba Morthens.
„Þrastalundur brunch auglýsing er að drepa mig, og
750 millílítra vatnsflaska kostar 750 krónur. Ætli það séu
dyraverðir þarna með haglabyssur og kokkurinn stendur
yfir manni með hnúajárn og eigandinn kemur syngjandi í
salinn stolt siglir fleygið mitt,“ tísti Bubbi.
Þá var einnig sagt frá okurverði á núðlupakka frá Knorr
sem var seldur í Þrastalundi á 750 krónur. Sverrir Einar
Eiríksson, eigandi Þrastalundar í Grímsnesi, kom af fjöll
um þegar blaðamaður Vísis spurðist fyrir um verðið á
núðlum og lækkaði verðið niður í 450 krónur.
Ásdís Rán og
beikonpylsan
Uppköst og niðurgangur eftir
heimsókn á Skelfiskmarkaðinn
Spurning um „prinsipp“ og mannorð
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
„Þetta er bara
svo hræðilegt“
Græddu á
braggamálinu