Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 51
5125. jan 2019 TÍMAVÉLIN - ERLENT
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu flottar innréttingar
í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
UMDEILDUSTU
BORÐSPIL SÖGUNNAR
Ekki eru öll borðspil góð og þroskandi afþreying. Sum
þeirra eru umdeild, vafasöm, úr takti við tímann eða
beinlínis ógeðfelld. Flest þessara spila eru einföld
og hönnuð til að setja fram ákveðinn boðskap eða
áróður frekar en að hafa skemmtanagildi. DV skoð-
aði nokkur af umdeildustu borðspilum sögunnar.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Fjöldinn allur að kynferðisleg-
um spilum hefur verið fram-
leiddur í gegnum tíðina og
fæst þeirra vakið athygli. Hið
þýska Busen Memo frá árinu
2001 er undantekning. Spilið er
í raun hefðbundið Memo-spil,
sem eru vinsæl hjá börnum,
nema að takmarkið er að para
saman vinstra og hægra kven-
mannsbrjóst.
Beat the Border tengist ekki innflytjendum, Trump eða múrnum
hans á neinn hátt. Spilið kom út árið 1971 og fjallar um að smygla
eiturlyfjum frá Mexíkó til Bandaríkjanna og selja þau í ákveðnum
borgum. Hægt er að kaupa fölsuð skilríki og ráða óheiðarlega lög-
fræðinga til að hjálpa sér við að komast á leiðarenda.
Spilið The Sinking of
the Titanic kom út árið 1975
og vakti svo mikla reiði
að nafninu var á endan-
um breytt í Abandon Ship.
Takmarkið er að koma far-
þegunum úr skipinu og í
björgunarbáta áður en það
sekkur. Þegar þangað er
komið safna þeir vistum og
reyna að komast eins hratt
og þeir geta að björgunar-
skipinu. Sá sem kemst þang-
að fyrst vinnur, hinir deyja.
Spilið Public Assistance kom út árið 1980 sem áróður gegn velferðar-
kerfinu í Bandaríkjunum. Takmarkið er að hala inn sem mesta pen-
inga í félagslega kerfinu og með óheiðarlegum hætti, svo sem í formi
í bóta af ýmsum toga eða með vændi, eiturlyfjasölu, ránum og fjár-
hættuspili. Leikendur tapa ef þeir fá vinnu og gerast skattgreiðendur.
Spilið er algjörlega handahófskennt líkt og slönguspilið.
Spilið What Shall I Be? The Exiciting Game of Career Girls var hann-
að fyrir ungar stúlkur árið 1966. Átti það að enduspegla að konur
væru í sífelldum mæli að fara út á vinnumarkaðinn. Í spilinu er tak-
markið að verða leikkona, fyrirsæta, hjúkrunarfræðingur, kennari,
flugfreyja eða ballettdansari. Hægt er að fá ákveðin persónuein-
kennaspjöld sem henta misvel fyrir hvert starf. Til dæmis hentar yfir-
vigtar spjaldið illa flugfreyjur, fyrirsætur og ballettdansara.
Þýskaland nasismans gat af sér mörg borðspil og frægast þeirra
er Juden Raus! frá árinu 1936. Spilið seldist í bílförmum en flokk-
urinn sjálfur kom ekki að hönnun þess. Borðið sjálft sýnir borg um-
lukta veggjum. Takmarkið er að ferðast um borgina, safna gyðingum
og koma þeim á brautarstöðvar til að senda þá til Palestínu.
Saga þessa spils er mjög á
huldu. Samkvæmt kassanum á
það að hafa verið gefið út árið
1935 en erfitt hefur verið að
sannreyna það. Hins vegar eru
til nýjar prentanir af spilinu
sem seldar hafa verið á síðum
hægriöfgamanna. Darkies in
the Melon Patch er einfaldlega
slönguspilið með staðalmynd-
um af svörtu fólki í Bandaríkj-
unum á fyrri hluta 20. aldar.
GYÐINGAR BURT!
FÉLÓ-SPILIÐ
HVAÐ Á ÉG AÐ VERA?
SÍGÓ-
SPILIÐ
Vitaskuld er Camel the Game
frá árinu 1992 aðeins aug-
lýsing fyrir sígaretturisann.
Þess vegna urðu þeir að setja
aldursmörkin við 21 ár á kass-
ann. Þetta er einfalt spil þar
sem leikendur reyna að para
saman það sem kemur upp á
teningum við kort.
BARMAMINNI
SVERTINGJAR Í
MELÓNUGARÐINUM
YFIR LANDAMÆRIN
TITANIC SEKKUR