Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018
Yfirskrift leikrænnar leiðsagnar á
Árbæjarsafni næstkomandi sunnu-
dag er Á sunnudögum er töluð
danska. Leiðsögnin hefst í miðasölu
safnsins kl. 14 og endar á stuttum
tónleikum í svonefndu Lækjar-
götuhúsi. Efnt er til þessa við-
burðar í tilefni af 100 ára fullveld-
isafmæli Íslands.
Leikendur eru staddir í Reykja-
vík í nóvember árið 1918 og fylgja
gestum um safnsvæðið og segja frá
íbúum þess, bæjarlífinu og því sem
er helst að frétta. Leikið verður
með tungumálið og þau áhrif sem
danskan hefur enn í dag á íslensk-
una en einnig verður boðið upp á
tónlist sem hæfir tíðarandanum.
Það hefur oft verið haft í flimt-
ingum að landsmenn hafi talað
dönsku á sunnudögum þegar landið
laut danskri stjórn. Tónlistarmenn-
irnir Pétur Húni Björnsson og Jón
Svavar Jósefsson leiða dagskrána.
Reykjavík árið 1918 sprettur aftur fram
Ljósm/aðsent
Leikarar Hópurinn sem ætlar að endurvekja stemningu ársins 1918.
Danskur sunnudagur
á Árbæjarsafni
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hvannadalshnúkur breyttilífi mínu,“ segir DíanaJúlíusdóttir ljósmyndari.„Eftir að hafa gengið alls
rúma 12 kílómetra upp í mót og mætt
allskonar aðstæðum og veðrabrigð-
um felst einstök tilfinning í að komast
að toppnum, þó við höfum reyndar
ekki náð alla leið. Okkur vantaði 80
metra þegar snúa þurfti við. Þetta er
lengsta dagleið sem vitað er um í
óbyggðaferðum í Evrópu og gangan
reynir því talsvert á fólk. Fólk kemur
til baka með lurkum laminn skrokk
en í sálinni situr eftir einstök tilfinn-
ing og endorfínkikkið lifir lengi. Töfr-
arnir liggja í loftinu. Fyrir mig er líka
sérstaklega dýrmætt að hafa í leið-
angrinum náð fjölda mynda sem allar
bera með sér tilfinningar og lýsa að-
stæðum.“
Með gnótt mynda
Á næstu dögum kemur út bókin
Hnúkurinn með ljósmyndum Díönu
og texta Sigmundar Ernis Rúnars-
sonar. Tildrög útgáfunnar eru þau að
árið 2012 voru þau bæði þátttakendur
í verkefni Ferðafélags Íslands sem
ber yfirskriftina 52 fjöll. Í því felst að
gengið er á eitt fjall á viku, byrjað er í
kringum áramót og í maí, þegar flest-
ir eru komnir í þokkalegt form, er
farið á Hvannadalshnúk, sem er 2.111
metra hár. Er þá raunar kominn sá
tími að fært er á hnúkinn, enda
minnst um sprungur í Öræfajökli þá.
Á sama tíma og fjallgöngu-
ævintýrið stóð sem hæst var Díana í
námi við Ljósmyndaskóla Íslands.
Hún notaði því tækifærið í ferðinni á
hnúkinn, tók gnótt mynda sem hún
gerði sér ljóst að voru fjársjóði lík-
astar. Þær hafa síðan verið valdar á
sýningar hér á landi svo og í San
Francisco og Barcelona. Þar hafa
myndirnar unnið til verðlauna og
fengið góða dóma.
Sögur af því sama
„Áhugi minn á fjallamennsku
hefur lengi verið til staðar og þetta er
áhugamál fjölskyldunnar. Bæði er
gaman að vera á ferðinni upp um fjöll
og dali og svo fylgir ferðunum alveg
frábær félagsskapur,“ segir Díana
sem í 52 fjöllum var í sama hópi og
Sigmundur Ernir Rúnarsson, sjón-
varpsmaður og rithöfundur. Þau voru
saman í göngunni á Hvannadalshnúk
og gátu því sagt sögur af því sama,
eins og sést í bókinni sem er kynnt og
áskrifendum safnað á karolina-
fund.com.
„Það er púl að ganga á hnúkinn
með 25 kg. bakpoka og svo tvær
myndavélar um hálsinn eins og ég
gerði. En þetta var fyrirhafnarinnar
virði; ganga þar sem var lagt af stað
klukkan fjögur að nóttu og komið til
baka um kvöldmatarleytið á sama
sólarhringnum,“ segir Díana og held-
ur áfram:
Ljóðrænn texti
„Upphaflega átti þetta bara að
vera ljósmyndabók. Svo vatt hug-
myndin upp á sig. Mér fannst mik-
ilvægt að bókin hefði margar víddir.
Sigmundur Ernir var líka tilbúinn að
vera með í því og skrifaði út frá sinni
upplifun með ljósmyndirnar mínar
fyrir framan sig. Útkoman er dásam-
legur texti og ljóðrænn.“
Með fjársjóð af Hvannadalshnúk
Hæsta fjall landsins hef-
ur sína töfra. Díana Júl-
íusdóttir fór í fjallgöngu
með myndavélina og Sig-
mundur Ernir skráði
texta. Útkoman er bók
sem vafalítið mun vekja
mikla athygli.
Ljósmynd/Díana Júlíusdóttir
Takmarkið Stór hópur á Öræfajökli og framundan sveipaður þoku og dulúð er Hvannadalshnúkur, 2.111 m. á hæð.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ljósmyndari Töfrarnir liggja í loftinu, segir Díana um fjallgöngur.
Ekkert í grennd við göngumann er
betur tennt en
tilfinningalaus kuldinn sem nagar
hann hæglega inn
að beini hafi fyrirhyggjan og reynsl-
an ekki kennt þeim
sama að búa sig miðað við verstu
hugsanlegu aðstæður,
því það er auðveldara að kasta af
sér þarflausum fötum
en íklæðast þeim sem ekki eru nær-
tæk.
Eftir Sigmund Erni Rúnarsson
í bókinni Hnjúknum.
LJÓÐRÆNN TEXTI
Skáld Sigmundur Ernir fjallamaður
Kuldinn