Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 Þurr augu! Fæst í öllum helstu apótekum. Tvöföld virkni Sex sinnum lengri ending Thealoz Duo® er ný aðferð við meðhöndlun augnþurrks sem sækir innblástur beint til náttúrunnar. Til þess að koma jafnvægi á tárafilmuna notum við náttúrulegu efnin trehalósa sem verndar frumurnar á yfirborði hornhimnunnar og hýalúronsýru sem smyr yfirborð hornhimnunnar og gefur henni raka. Augnheilbrigði TREHALÓSI Finnst í mörgum jurtum og hjálpar þeim að þrífast við þurrar aðstæður. Trehalósi verndar frumurnar og gerir þeim kleift að starfa með fullum afköstum. HÝALÚRONSÝRA Er að finna í augunum og hefur einstaka getu til að binda vatn. Hjálpar til við að smyrja og viðhalda táravökvanum á yfirborði augans. Án rotvarnarefna Ég ætla að taka mér frí í vinnunni eftir hádegi og eiga gæða-stund með sjálfri mér. Svo á ég von á vel völdum konum í smáveislu hjá mér í kvöld,“ segir Unnur Hermannsdóttir, sem á 50 ára afmæli í dag. Unnur er aðstoðarleikskólastjóri í Rauðaborg sem er í Seláshverfi í Reykjavík og hefur hún starfað þar í 20 ár. Hefur ekki eitthvað breyst á þessum tíma? „Jú, það er meira farið að líta á leikskólann sem menntastofnun, bæði hjá foreldrum og samfélaginu, og það er alltaf verið að gera meiri kröfur til okkar hjá þeim sem reka leikskólana, foreldrum en ekki síður hjá okkur sjálfum, svo það er alltaf nóg að gera,“ en 16 starfsmenn eru við Rauðaborg og 58 börn. Unnur er frá Höfn í Hornafirði en flutti til Reykjavíkur þegar hún hóf nám við Menntaskólann við Sund og býr núna í Hlíðunum. Eiginmaður hennar er Ólafur Árnason, framhaldsskólakennari við Verzlunarskóla Íslands, og börn þeirra eru Árni 13 ára og Birna 10 ára. Áhugamál Unnar eru meðal annars söngur en hún er í Kvennakór Íslands. Hún byrjaði í kórnum 2015 en hafði lengi verið í Háskóla- kórnum. „Við erum að æfa á fullu fyrir aðventutónleika 28. nóvember sem verða haldnir í Langholtskirkju. Við munum syngja ýmis jóla- og aðventulög með hljómsveit og einsöngvara.“ Aðstoðarleikskólastjórinn Unnur vinnur í Rauðaborg í Seláshverfi. Alltaf nóg að gera Unnur Hermannsdóttir er fimmtug í dag S æþór Örn Ásmundsson fæddist 9.nóvember 1978 í Reykjavík og ólst upp í Breiðholtinu. „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en að teikna og skapa. Ég var í auglýsinganefnd í 8. bekk og tók að mér að gera plakat með hamborg- aratilboðum fyrir sjoppuna í hverf- inu og fékk fría inneign fyrir.“ Sæþór gekk í Ölduselsskóla, síð- an í Kvennaskólann í Reykjavík og varð stúdent 1998 og var í hönn- unarnámi við Iðnskólann í Hafn- arfirði 1998-2000. „Þar gerðum við ýmsar teikningar, m.a. módelteikn- ingar og vorum að hanna og smíða hluti svipað og ég er að gera í dag.“ Hann hóf síðan nám í vídeó- grafík við Istituto Europeo di De- sign í Mílanó 2001 og lauk því 2004. Sæþór var í sumarafleysingum á Skjá einum við hreyfigrafík 2002- 2003, vann hjá Caoz hreyfimynda- gerð 2004, hjá 3 plús við hönnun og vinnslu leikja fyrir DVD kids leikjatölvu 2005-2006. „Ég er ennþá að gera hreyfinetborða fyrir ýmis fyrirtæki og grafískar sjónvarps- auglýsingar, sem eru unnar upp úr ljósmyndum, texta og grafík.“ Sæþór stofnaði síðan Vinnustof- una ehf. árið 2006 og hefur verið sjálfstætt starfandi hönnuður og myndlistarmaður síðan þá. „Árið 2012 kom betri helmingurinn og grafíski hönnuðurinn Tobba með mér í reksturinn en áður hafði hún starfað hjá ENNEMM.Árið 2010 fór ég að fikta við að silkiþrykkja Sæþór Örn Ásmundsson, hönnuður og myndlistarmaður – 40 ára Fjölskyldan Sæþór og Tobba ásamt börnunum sínum, Sögu Maríu, Sölku Elínu og Baldri Páli. Farvapabbi og farva- mamma í Álfheimum Sjálfsmynd Sæþór Örn. Jón Pálsson og Pálmey Ottósdóttir eiga 55 ára brúðkaupsafmæli í dag. Þau voru gefin saman í Hafnar- fjarðarkirkju af séra Garðari Þor- steinssyni. Brúðkaupsveislan var haldin í sal raftækjaverksmiðju RAFHA. Árnað heilla Smaragðsbrúðkaup Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.