Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 Aukaopnun verður í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi næst- komandi laugardag, klukkan 13 til 15, vegna sýningarinnar um Hvít- árbrúna hjá Ferjukoti. Höfundur sýningarinnar, Helgi Bjarnason, veitir leiðsögn. Heitt verður á könnunni og eru allir velkomnir og aðgangur er án endurgjalds. Sýningin er sögusýning um Hvítá, smíði Hvítárbrúarinnar og áhrif hennar á samgöngur og mannlíf í Borgarfirði. Hún er í Hall- steinssal Safnahússins. Sýningin er annars opin á afgreiðslutíma safnanna, frá klukk- an 13 til 16 virka daga. Hún stendur til 12. mars 2019. Sögusýning Fjöldi gesta var við opnun sýningarinnar á afmælisdegi Hvít- árbrúar. Hún er í Hallsteinssal Safnahúss og er aðgangur án endurgjalds. Aukaopnun á sýning- una um Hvítárbrú BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Rúmlega 266 þúsund brottfarir voru frá Keflavíkurflugvelli í október. Samtals eru brott- farirnar því orðn- ar 2,58 milljónir fyrstu tíu mánuði ársins. Sá fjöldi er 3,5% umfram spá Isavia frá því í maí. Sú spá var reyndar endur- metin til lækkun- ar frá fyrri spá Isavia í nóvember í fyrra. Alls 266.380 brottfarir voru í október, eða um 23 þúsundum fleiri en í október 2017. Þetta er metfjöldi og stefnir í rúmlega 3 milljónir brottfara í ár. Innan skekkjumarka Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri, telur að ekki beri að lesa mikið út úr þessari aukningu miðað við síðustu spá. Aukning upp á 3,5% sé enda innan skekkjumarka. „Frávikið er svo lítið að það er ekki vísbending um eitt né neitt. Flug- félögin tvö, Icelandair og WOW air, sem eru stærst á Keflavíkurflugvelli, starfa á ólíkum mörkuðum. Þau starfa bæði á mörkuðum með farþega til og frá landinu en ekki síður í Atl- antshafsfluginu, að flytja fólk yfir haf- ið. Þegar farþegaspár voru gerðar í vor gáfu menn sér tilteknar forsendur í Atlantshafsfluginu. Frávik upp á 3,5% er ekki mikið. Það getur verið frávik í markaðn- um í Atlantshafsfluginu. Þ.e.a.s. að einhver sæti séu ekki að seljast og séu þess vegna boðin til og frá Íslandi. Það kann að vera tekjustýring hjá flugfélögunum,“ segir Skarphéðinn Berg. Hann ítrekar svo það sem hann sagði við Morgunblaðið í september að áhrifin af veikingu krónunnar muni ekki birtast í tölum um fjölda ferðamanna fyrr en á nýju ári. „Ég held að gengisbreytingin sé ekki að hafa nein áhrif enn þá. Það tekur lengri tíma,“ segir Skarphéðinn Berg sem telur rétt að horfa til fleiri mæli- kvarða. Almennt hafi ekki orðið við- snúningur í ferðaþjónustu í haust, þrátt fyrir veikingu krónu. Áhyggjur af landsbyggðinni „Ég held að haustið sé fyrst og fremst gott á suðvesturhorninu og Suðurlandi en það er áhyggjuefni hvernig afkoman virðist vera á lands- byggðinni.“ Spurður um horfur í ferðaþjónustu í vor, ef gengið helst á þessu róli, segir hann að „ferðaþjónustan myndi lík- lega kjósa að sjá heldur veikari krónu en er núna“. „Sé litið til gengisþróunar annars vegar og kostnaðarþróunar hins veg- ar í ferðaþjónustu hefur kostnaðarlið- urinn breyst mun meira. Þetta kom vel fram í yfirferð sem KPMG gerði um daginn fyrir Ferðamálastofu. Launavísitala hefur hækkað um 44% á síðustu sex árum. Spurningin er því hversu mikið krónan þyrfti að veikj- ast til að vega upp þann kostnaðar- auka sem orðið hefur í launum. Þótt 10% styrking eða veiking sé heilmikil þegar um er að ræða gjaldmiðil hafa kostnaðarhækkanir verið svo miklar á undanförnum árum að það toppar breytingar í gengi krónunnar.“ Launin þungur baggi Hann segir aðspurður að greinin sé ekki samkeppnisfær þegar saman fara hátt gengi og há laun. „Sé raunin sú, sem allt bendir til, að vægi lægri launa sé meira í ferðaþjón- ustu en öðrum atvinnugreinum myndi mikil hækkun lægstu launa augljós- lega hafa meiri áhrif þar en annars staðar. Þess vegna er svo mikilvægt að menn mæti þessum breytingum með því að fjárfesta meira í tækni og sjálfvirkni til að auka framleiðnina,“ segir hann. Laun hjá ferðaþjónustu- fyrirtækjum úti á landi séu gjarnan orðin meira en 50% af tekjum. Með því sé ekkert svigrúm til fjárfestinga. Æskilegt sé að hlutfallið sé nær 40%. Metfjöldi flugfarþega  266.380 brottfarir voru skráðar frá Keflavíkurflugvelli í október, sem er met  3,5% fleiri farþegar fyrstu tíu mánuði ársins en Isavia áætlaði í maíspá sinni Brottfarir frá Keflavíkurflugvelli Frá jan. til október 2017 og 2018, rauntölur og spár, milljónir farþega 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0 Brottfarir 2017 Brottfarir 2018 Spá frá nóv. sl. Spá frá maí sl. 2,44 2,692,58 2,49 Heimild: Isavia RAUNTÖLUR SPÁR FYRIR 2018 Brottfarir frá Keflavíkurflugvelli, 2012-2018 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0,0 milljónir 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018* Heimild: Isavia *Fyrstu tíu mánuðir 2018 1,0 1,1 1,4 1,7 2,3 2,8 2,6 Morgunblaðið/Hari Á Keflavíkurflugvelli Farþegum á fjölgar ár frá ári. Nýtt met féll í október. Skarphéðinn Berg Steinarsson Framkvæmdir við hótel í Ármúla 7 eru áformaðar á næsta ári. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa leigutakar verið upp- lýstir um að til standi að breyta hús- inu. Þannig væri áformað að hefja framkvæmdir við að breyta bygging- unni í hótel næsta vor. Fram kom í Morgunblaðinu í febrúar síðastliðnum að fasteigna- félagið Reitir hefði til skoðunar að innrétta hótel í Ármúla 7. Meðal hugmynda væri að tengja reksturinn við Hótel Ísland í Ármúla 9. Hótelin verði tengd saman Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, segir lengi hafa staðið til að breyta Ármúla 7 að stærstu leyti í hótel og tengja bygginguna við hót- elið í Ármúla 9. Unnið sé að verkefn- inu í samstarfi við Reykjavíkurborg. Til standi að rífa tengibyggingu milli húsanna og byggja nýja. Áformað sé að hefjast handa á næsta ári. Í umræddri tengibyggingu var lengi veitingasala á jarðhæð og krár undir ýmsum nöfnum á efri hæð. Haft var eftir Guðjóni í Morgun- blaðinu í febrúar síðastliðnum að tengibyggingin hefði verið keypt í þeim tilgangi að rífa hana. Ólafur Laufdal hóf byggingu Hót- els Íslands árið 1985 og í árslok 1987 var skemmtistaður þar, sá stærsti á landinu, opnaður. baldura@mbl.is Morgunblaðið/Hari Ármúli 7 og 9 Hótel Ísland er hægra megin. Þar er nú Klíníkin. Byggja hótel í Ármúla  Verður tengt við gamla Hótel Ísland Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Laserlyfting Þéttir slappa húð á andlit og hálsi Árangur af Laserlyftingu er sambærilegur við árangur af andlitslyftingu með skurðaðgerð en það sem laserlyfting hefur fram yfir andlitslyftingu er að einstaklingur getur farið í vinnu beint eftir meðferð. 15% afsláttur af gjafabréfum hjá Húðfegrun Bylting ímeðferð á línum, hrukkumog slappri húð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.