Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 9. nóvember 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.91 120.49 120.2 Sterlingspund 157.73 158.49 158.11 Kanadadalur 91.65 92.19 91.92 Dönsk króna 18.46 18.568 18.514 Norsk króna 14.435 14.521 14.478 Sænsk króna 13.331 13.409 13.37 Svissn. franki 120.38 121.06 120.72 Japanskt jen 1.0604 1.0666 1.0635 SDR 166.85 167.85 167.35 Evra 137.71 138.49 138.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.873 Hrávöruverð Gull 1235.05 ($/únsa) Ál 1948.0 ($/tonn) LME Hráolía 71.66 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Tíu prósent fleiri erlendir ferðamenn fóru um Leifsstöð í október síðast- liðnum en á sama tíma á síðasta ári. Þetta kemur fram í Hagsjá Lands- bankans. Þar segir einnig að samkvæmt taln- ingum Ferðamála- stofu og Isavia hafi fjöldi ferðamann- anna verið tæplega 200 þúsund alls. Til samanburðar voru erlendir ferðamenn 182 þúsund í október í fyrra. Í Hagsjánni segir einnig að frá ára- mótum hafi 2.028 þúsund erlendir ferðamenn farið um Leifsstöð í saman- burði við 1.915 þúsund á fyrstu tíu mán- uðum síðasta árs. Fjölgunin milli ára sé 5,9%. Bandaríkjamenn eru fjölmennasti hópurinn en Bretar eru næstfjölmenn- astir. tobj@mbl.is 10% fjölgun erlendra ferðamanna í Leifsstöð Flug Ferðamönn- um fjölgar áfram. STUTT BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Þrátt fyrir að fyrirtækjum fækki um 2% á lista Creditinfo yfir framúrskar- andi fyrirtæki í ár eins og fram kom í ViðskiptaMogganum í gær vegna reikningsársins 2017 heldur bygging- argeirinn velli á listanum. Er þá held- ur dregið úr þar sem fyrirtækjum í byggingarstarfsemi og mannvirkja- gerð fjölgar um 14 í ár eða um 22%. Byggingarfyrirtækin á listanum fyrir árið 2018 eru 79 en voru 65 í fyrra. 10 fyrirtæki detta út af listanum í ár en 24 bætast við. „Þetta er til marks um að það geng- ur vel í byggingargeiranum. Það eru mörg ný félög að koma inn í hann og það er gaman að sjá það. Þetta er öf- ugt við flesta aðra geira sem eru nokkurn veginn í jafnvægi eða að minnka,“ segir Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjaf- ar hjá Creditinfo. Hann tekur þó fram aðspurður að þróunin sé aðeins niður á við heilt yfir aðra geira, sem rímar við fækkunina á listanum milli ára. Vanskil dragast saman um 20% „En við höfum áður séð svona mikla fjölgun í byggingargeiranum. Á milli 2014 og 2015. Þar spilar það væntanlega inn í að mörg fyrirtæki hafa klárað sín mál tengd fjármála- hruninu árið 2011,“ segir Gunnar en Creditinfo horfir á rekstur fyrirtækj- anna þrjú ár aftur í tímann. Á milli 2014 og 2015 fór fjöldi byggingar- fyrirtækja úr 24 í 40 og fjölgaði um 67%. Rétt er að taka fram að þróunin milli áranna 2016 og 2017 er tækni- legs eðlis og snýr að mestu að hertum skilyrðum á skiladagsetningum á árs- reikningum. Gunnar segir að vanskilatölur í geiranum séu í takt við fjölgun fram- úrskarandi fyrirtækja á lista bygging- arfyrirtækja en vanskil minnka um 20% á milli áranna 2017 og 2018. „Það er talsverð minnkun á vanskilum í bygginga- og mannvirkjagerð. Ýmis- legt bendir því til að það gangi betur í þessum geira en gerði,“ segir Gunnar. Friðrik Ólafsson, viðskiptastjóri byggingariðnaðar á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins, segir að þessar jákvæðu tölur um byggingargeirann lýsi ástandinu vel. „Þegar vel árar í byggingargeiranum er auðveldara fyrir fyrirtæki í geiranum að standa sig vel. Það selst allt sem byggt er til dæmis. Árferðið skilar sér í þessum tölum, sem er bara afskaplega gleði- legt,“ segir Friðrik. „Það hefur einnig verið mikill áróð- ur innan byggingargeirans um að fyr- irtæki standi betur að öllum málum. Ég er alveg viss um að einhvern hluta af þessu má rekja til aukinna krafna um gæðakerfi og að allt utanumhald er betra. Það eru margir þættir sem hafa áhrif til þessarar jákvæðu niður- stöðu,“ segir Friðrik. Það bendir til þess að áfram verði góður gangur í byggingargeiranum að mati Friðriks þrátt fyrir að raddir um kólnun hagkerfisins heyrist sífellt oftar. „Ég keyri um tvisvar á ári og tel íbúðir í nýbyggingu. Síðan vinnum við saman að greiningu og það er ekki samdráttur. Bara sem dæmi: á milli talninga í mars og september er rúm- lega 18% aukning í framleiðslu nýrra íbúða. Samt sem áður vitum við að það er uppsöfnuð þörf. Ég hef ekki trú á því að byggingargeirinn hægi neitt mikið á sér þó að við sjáum breytingar í efnahagslífinu,“ segir Friðrik. Listi yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins 2018 verður birtur í næstu viku og samhliða því gefur Morgunblaðið út sérblað á fimmtudag sem helgað er listanum. 22% fjölgun framúrskar- andi byggingarfyrirtækja Byggingargeirinn » Framúrskarandi fyrirtækjum í geiranum fjölgaði um 67% frá 2014 til 2015. » 24 fyrirtæki koma ný inn á listann en 10 falla út. » 9% fyrirtækja eru fram- úrskarandi. » Vanskil dragast saman um 20% á milli áranna 2017 og 2018. » Enn uppsöfnuð þörf í grein- inni að sögn sérfræðings.  Gróska í byggingarstarfseminni  Vanskil í greininni dragast verulega saman Fjöldi byggingafyrirtækja í hópi framúrskarandi fyrirtækja 2010 til 2018 Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki, nýliði Brottfall Heimild: Creditinfo 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 14 20 24 38 13 19 40 65 79 Hagnaður Íslandsbanka á þriðja árs- fjórðungi nam 2,1 milljarði króna og er sambærilegur og yfir sama tímabil í fyrra. Arðsemi eiginfjár, á ársgrund- velli, jókst hins vegar úr 4,7% í 4,9%. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 2,9 milljörðum, samanborið við 2,8 milljarða á þriðja fjórðungi í fyrra. Hreinar vaxtatekjur voru 8,3 millj- arðar og vaxtamunur 3%. Hafði hann aukist um 0,2 prósentur milli fjórð- unganna. Hreinar þóknanatekjur á fjórðungnum námu 2,9 milljörðum og drógust saman um 0,4 milljarða. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nam 9,2 milljörðum króna, samanborið við 10,1 milljarðs hagnað yfir sama tímabil í fyrra. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 9 milljörðum og minnkar um 1,2 milljarða miðað við 2017. Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli nemur yfir tímabilið 7,1% en var 7,7% í fyrra. Hreinar vaxtatekjur jukust um 0,9 milljarða og stóðu í 23,6 milljörðum og nemur aukningin 4,3%. Vaxtamun- ur er sá sami og á fyrstu þremur fjórðungum 2017 eða 2,9%. Hreinar þóknanatekjur voru 8,7 milljarðar og drógust saman um 1,4 milljarða. Jafngildir það 13,5% sam- drætti. Má að mestu rekja það til lækkunar á þóknanatekjum í tveimur dótturfélögum bankans, Borgun og Allianz. Virðisbreyting útlána var jákvæð um 1,9 milljarða á fyrstu níu mánuð- um ársins og jókst hún um 1,3 millj- arða miðað við sama tímabil í í fyrra. Útlánin 836 milljarðar Frá áramótum hafa útlán til við- skiptavina aukist um 10,6% eða 80,4 milljarða króna og nema útlán bank- ans í lok þriðja ársfjórðungs 836 millj- örðum króna. Ný útlán á fyrstu níu mánuðum ársins nema 175,6 milljörð- um og að sögn bankans dreifast þau vel milli viðskiptaeininga hans. Morgunblaðið/Golli Uppgjör Þóknanatekjur bankans hafa dregist saman milli ára. Útlánin aukist um 10,6% frá áramótum  Íslandsbanki hagnast um 9,2 milljarða króna – fyrir dýrin þín Eigum mikið úrval af hundabeislum Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.