Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 Undarlegt hvernig lífið stundum fer öðruvísi en maður ætlar. Aldrei hélt ég að ég ætti eftir að verða hálfgerður heimagangur í borg- inni helgu, Jerúsal- em. En örlögin hafa hagað því þannig að á undanförnum árum hefur leið mín legið þangað oft og iðu- lega, einn eða sem leiðsögumaður í hópi Íslendinga. Í því hlutverki kom ég tvisvar til borgarinnar á þessu hausti, fyrst með hóp 185 frímúrara og eiginkvenna þeirra og síðan með 35 ferðalanga hvað- anæva frá landinu kalda. Ferð- irnar hafa verið ólíkar í gegnum árin, en alltaf finnur maður hversu sterkt borgin orkar á gesti. Sagan, trúarbrögðin, fólkið, byggingarnar, sögurnar, gleðin, sorgin, stríðin, þröngu göturnar – ekkert af þessu lætur ferðalang- inn ósnortinn. Það má segja að hver gestur komi til Jerúsalem á sínum forsendum. Sjálfur átti ég einstakan dag í Jerúsalem á liðnu hausti. Við vor- um mætt þangað tveir íslenskir leiðsögumenn til að undirbúa komu landa okkar. Daginn sem von var á hópnum frá Íslandi vaknaði ég snemma, fyrir sól- arupprás og hélt út í morgun- skímuna. Úti var kyrrt og hljótt, enda laugardagur, hvíldardagur gyðinga. Og þetta var ekki neinn venjulegur laugardagur, heldur laugardagur í upphafi laufskála- hátíðarinnar. Síðar um daginn og alla vikuna í vændum var von á hundruðum þúsunda til borg- arinnar og að Grátmúrnum. En nú var allt kyrrt og hljótt. Ég gekk meðfram múrnum sem Su- leiman soldán Tyrkjaveldis lét reisa á árunum 1537-1541. Eins og alls staðar í gömlu Jerúsalem standa veggirnir hans Suleimans á eldri veggjum, sem aftur standa á enn eldri aftur í gráa forneskju. Það er magnað að sjá hversu vel múr soldánsins hefur staðist tím- ans tönn. Sólin var byrjuð að gægjast upp yfir fjöllin í fjarska þegar ég gekk gegnum Jaffa- hliðið, eitt af sjö höfuðhliðum borgarinnar. Þar við hliðið stend- ur Davíðsturninn forni sem Davíð konungur byggði örugglega ekki. Grunnur turnsins er frá tímum Rómverja, miðjan er byggð af krossförum og efsti hlutinn er verk fyrrnefnds Suleimans sol- dáns. Þannig er fátt sem sýnist í borginni fornu. Ég rölti niður Davíðsgötuna inn í völundarhús gömlu Jerúsalem. Davíðsgatan er þröng göngugata sem skilur að kristna og armenska hluta gömlu borgarinnar, en auk þeirra eiga arabar sinn hluta og gyðingar sinn. Enn voru fáir á ferli og flestar búðir lokaðar þegar ég smaug inn í Grafarkirkjuna, helg- ustu kirkju kristninnar. Kirkjan er byggð yfir Golgatahæðina og gröf Jesú, en alveg frá fyrstu öld hafa staðið þar margar kirkjur undir sama nafni. Sumar voru brenndar, aðrar rifn- ar, en alltaf byggðu menn nýjar. Yfirleitt er þarna troðið af túr- istum og pílagrímum en þarna var ég einn þegar morgunsólin reis, kraup við Gol- gataklettinn og hlýddi á messu í litlu kirkj- unni sem hýsir gröf- ina, inni í stóru kirkjunni. Því í raun er Grafarkirkjan margar kirkjur. Eins og bútasaumsteppi aldanna. Þegar ég kvaddi Grafarkirkjuna voru fyrstu túristarnir komnir á stjá. Ég smeygði mér inn í arab- íska hlutann og gekk niður yf- irbyggðar göturnar að Via Dolo- rosa, þjáningargötunni, þar sem Kristur er sagður hafa borið krossinn föstudaginn langa. Þarna mætti ég Rússum á ferð og fremstur gekk einn þeirra með stóran kross á bakinu. Bæna- söngur rússnesku kirkjunnar fyllti þrönga götuna og blandaðist inn í hrópin frá búðarköllunum sem voru í óðaönn að opna klukkna- hringingar og bænahrópin frá moskunum. En ég beygði út af þjáningargötunni og inn í gyð- ingahverfið í átt að Grátmúrnum. Þar rakst ég á fyrstu hermenn dagsins við vopnaleitarhlið, unga krakka rétt komna af ferming- araldri, en þungvopnuð og alvar- leg að sjá. Fyrir framan Grátmúr- inn var fólk tekið að streyma að. Gamlir menn og krakkar og ungar konur og virðulegar ömmur. Sum- ir sungu og dönsuðu, aðrir báðust fyrir við múrinn og enn aðrir eltu börnin sín fram og aftur í mann- hafinu. Ég gekk yfir torgið og að uppgönguleiðinni að Haram – Al – Sharif, musterishæðinni þar sem Al Aqsa-moskan, „Moskan lengst í burtu“, stendur, og Gyllti helgi- dómurinn, en hann er byggður á grunni musteris gyðinga. Upp- gönguleiðin að moskunum var lok- uð, hermenn vörnuðu manni vegar og varð ég frá að snúa. Enda farið að líða á morguninn, hitinn orðinn mikill og fólksfjöldinn fór stöðugt vaxandi. Það var kominn tími til að halda úr miðborginni gömlu því annir dagsins biðu. Jerúsalem er einstök borg. Miðja heimsins til forna. Fortíð, nútíð og framtíð verða þar eitt. Gyðingdómur, íslam og kristni umvefjast eins og hinar fornu byggingar þar sem hver kynslóð byggði á rústum forvera sinna. Samtímis er hún læst í átök. Borg friðar og borg haturs. – „Hvað er hægt að gera?“ spurði ég kunn- ingja minn, Ísraelsmann, uppi í turni lútersku kirkjunnar í kristna hverfinu. Við höfðum prílað þang- að upp tveir einir og horfðum yfir borgina í átt til eyðimerkurinnar og Dauða hafsins. Í fjarska grillti í múrinn sem ísraelska ríkið hefur reist og skilur að Ísrael og her- námssvæðin á Vesturbakkanum. Það var fátt um svör hjá vini mín- um, friðelskandi manni og við- kunnanlegum. „Ég veit það ekki“ sagði hann. „En hitt veit ég, að friður er eina vonin.“ Morgunganga í Jerúsalem Eftir Þórhall Heimisson Þórhallur Heimisson » „En hitt veit ég, að friður er eina vonin.“ Höfundur er prestur og leiðsögumaður. thorhallur33@gmail.com Borgin helga Múrar Jerúsalem í morgunskímunni. Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi. Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is SUNDLAUGALYFTUR FYRIR HREYFIHAMLAÐA Nánari upplýsingar gefur Erna Dís heilbrigðisverkfræðingur hjá Fastus. Netfang: erna@fastus.is Heilbrigðissvið Fastus býður upp á ýmsar gerðir af sundlaugalyftum fyrir hreyfihamlaða. Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.