Morgunblaðið - 09.11.2018, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018
Stór hjörð vísunda – yfir 400
buffalóar – drukknaði í Chobeá í
norðurhluta Botsvana, nálægt
landamærum Namibíu aðfaranótt
miðvikudags. Rannsókn bendir til
þess að dýrin hafi verið á flótta
undan ljónahópi.
Yfirvöld segja að vísundarnir
hafi troðist undir í þrönginni í ánni,
lemstrast og drukknað þegar þeir
fullir örvæntingar reyndu að
bjarga sér undan ljónunum. Ekki er
vitað hve mörg ljón voru í flokkn-
um. Þau virðast hafa birst óvænt
þegar vísundarnir voru á beit og
áttu sér einskis ills von.
Íbúar í nágrenninu hafa lagt á sig
mikla vinnu við að fjarlægja hræin.
Atvik af þessu tagi eru ekki óal-
geng meðal villtra dýra í Afríku.
Yfir 400 vísundar
drukknuðu á flótta
Drukknuðu Ófögur sjón í Chobeá.
BOTSVANA
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Tólf létu lífið, þar af einn lög-
reglumaður, þegar aðvífandi maður
dró skyndlega upp hálfsjálfvirka
skammbyssu og hóf skothríð á gesti á
vinsælum skemmtistað ungs fólks í
einu úthverfa borgarinnar Thousand
Oaks nálægt Los Angeles í Banda-
ríkjunum undir miðnætti á miðviku-
daginn. Tíu til viðbótar særðust.
Morðinginn fyrirfór sér á staðnum
eftir ódæðið. Hann hét Ian David
Long, 28 ára gamall fyrrverandi sjó-
liði
Lögreglumaðurinn sem lést var
fyrstur á staðinn og lenti þegar í skot-
bardaga við morðingjann. Hann varð
fyrir mörgum byssukúlum og dó af
sárum sínum á sjúkrahúsi í gær-
morgun. Hann var fjölskyldumaður
sem átti að baki nær 30 ára feril í lög-
reglunni og hafði hugsað sér að fara á
eftirlaun á næsta ári.
Skemmistaðurinn, Borderline Bar
& Grill, var þéttskipaður ungu fólki
þegar byssumaðurinn birtist og hóf
skothríðina og kastaði síðan reyk-
sprengju inn í mannfjöldann. Talið er
að um tvö hundruð gestir hafi verið
innandyra. Fyrsta fórnarlamb byssu-
mannsins var ung starfskona í af-
greiðslu staðarins. Örvænting greip
um sig þegar gestirnir áttuðu sig á
því sem var að gerast og reyndu að
komast burt. Maðurinn var svart-
klæddur með svartan hatt og svört
gleraugu og sögðu gestir það hafa
verið ógnvekjandi sjón þegar hann
tók upp byssuna og hóf skothríð.
Engin vitsmunaleg skýring
„Þetta er skelfilegur atburður,“
sagði Geoff Dean lögreglustjóri við
fréttamenn í gær. „Svona hryllilegir
hlutir eru að gerast hvarvetna í land-
inu okkar, og ég sé ekki neina vits-
munalega skýringu á þessu. Hér í
bænum höfum við ekki séð annað eins
voðaverk í meira en fjóra áratugi.“
Ekki er talið að um hryðjuverk sé að
ræða og ástæða Long fyrir illvirkinu
er ekki kunn.
Sumir gestanna slösuðust þegar
þeir brutu rúður og stukku út til að
forðast kúlnahríðina. Aðrir leituðu
skjóls á snyrtiherbergjunum og á
svölum og þaki hússins.
Hélt að hún væri örugg
Einn gestanna, 19 ára gömul
stúlka, sagði við fréttamenn að hún
hefði haldið að Thousand Oaks væri
öruggur staður og skemmtistaðurinn
líka, enda hefðu foreldrar hennar
leyft henni að fara þangað með vinum
sínum. Það væri skelfilegt að svona
atburður sem enginn gæti varist gæti
gerst.
Dagskráin á Borderline Bar &
Grill þetta örlagaríka kvöld var mið-
uð við ungt háskólafólk í nágrenninu
og var það fjölmennt á staðnum.
Tólf skotnir til bana á
skemmtistað í Kaliforníu
Fjöldi særðist Staðurinn sóttur af ungu fólki sem átti sér einskis ills von
Ljósmynd/AFP
Illvirki Geoff Dean lögreglustjóri ræðir við fréttamenn eftir skotárásina í skemmtistaðnum í borginni Thousand
Oaks í Kaliforníu. Hann sagði enga vitsmunalega skýringu á glæpnum. Morðinginn er talinn hafa fyrirfarið sér.
Hvíta húsið hefur samkvæmt fyrir-
mælum Trumps forseta bannað hin-
um þekkta fréttamanni CNN, Jim
Acosta, aðgang að reglulegum blaða-
mannafundum forsetans. Er það í
framhaldi af atviki á fundi á
miðvikudaginn þegar Acosta hélt
áfram að spyrja forsetann óþægi-
legra spurninga eftir að Trump hafði
krafist þess að hann afhenti starfs-
manni embættisins hljóðnemann og
settist niður. Spurningarnar sem
reittu Trump til reiði snerust annars
vegar um Rússarannsóknina svo-
kölluðu og hins vegar um ummæli
forsetans í nýliðinni kosningabar-
áttu þegar hann kallaði hóp fólks í
Mexíkó sem vill fá landvist í Banda-
ríkjunum „innrásarlið“. Þegar
Acosta sagði orðið ekki eiga við í
þessu sambandi fauk í forsetann.
Trump er ákaflega í nöp við CNN
og segir stöðina flytja neikvæðar
fréttir um sig og stefnu sína. Frétta-
menn eins og Acosta séu „óvinir
þjóðarinnar“. Á fundinum kallaði
hann Acosta „dónalega og hræðilega
manneskju“. CNN hefur harðlega
mótmælt banninu, sem talið er að sé
tímabundið, og segir það ógnun við
lýðræðið og starfsemi fjölmiðla vest-
anhafs. Samtök fréttamanna á
blaðamannafundum Hvíta hússins
hafa einnig mótmælt banninu.
AFP
Í banni Trump fyrirskipar Acosta, fréttamanni CNN, að hætta að spyrja sig.
Bannar fréttamanni
CNN að sækja fundi
Henrik Sass Larsen, þingflokks-
formaður danska Sósíaldemókrata-
flokksins, lét í ljós efasemdir um
þátttöku Danmerkur í ýmsum
alþjóðasáttmálum og -stofnunum
og velti því upp hvort tími væri
kominn til að segja sig úr ein-
hverjum þeirra í umræðuþættinum
Sass og Pind á sjónvarpsstöðinni
TV 2 í gær. Hann dró í land með
ummælin síðar á Facebook og
kvaðst ekki hafa lagt til að Dan-
mörk segði upp sáttmálum.
Hann sagði í umræðuþættinum
að það væru ýmsir „undarlegir
hlutir“ sem ríki neyddust til að
gera í nafni góðmennsku og að það
hefði reynst skaðlegt fyrir miðju-
flokka, bæði í dönskum stjórn-
málum og víðar. „Ég held að ein af
ástæðunum fyrir uppgangi öfga-
sinnaðra stjórnmálaflokka sé að við
höfum búið þessar stofnanir til og
að miðjuflokkar standi vörð um
þær, alla leið,“ sagði Sass.
Efaðist um þátttöku
í alþjóðasamstarfi
DANMÖRK
Þingmenn úr röðum demókrata
létu í gær í ljós áhyggjur af því að
brottvikning Jeff Sessions úr
embætti dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna væri fyrirboði af-
skipta Trumps forseta af rann-
sókn á meintum afskiptum Rússa
af forsetakosningunum 2016 eða
jafnvel tilraun til að stöðva hana.
Þingmenn úr röðum repúblikana
tóku undir varnaðarorð þeirra og
sögðu að rannsóknin yrði að fá að
halda áfram. Nancy Pelosi, leið-
togi demókrata í fulltrúadeild-
inni, sagði að ákvörðunin væri
„augljós tilraun“ til að binda enda
á eða hefta rannsóknina.
Donald Trump forseti hafði
margsinnis lýst yfir óánægju
sinni með Sessions, sérstaklega
vegna ákvörðunar hans að lýsa
sig vanhæfan til að hafa með
höndum yfirstjórn rannsókn-
arinnar. Matthew Whitaker,
starfsmannastjóri dómsmála-
ráðuneytisins, arftaki Sessions til
bráðabirgða, hefur gagnrýnt
rannsóknina og velt fyrir sér leið-
um til að stöðva fjárveitingar til
hennar.
Óttast áhrif brottvikn-
ingar á Rússarannsókn