Morgunblaðið - 09.11.2018, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sumarhús / Gesthús
Mjög vandað sumarhús / gesthús til
sölu, algjörlega viðhaldsfrítt, klætt
með lerki og gluggar eru áltré,
bræddur pappi á þaki. Upplýsíngar í
síma 8220023, tvt@simnet.is
Til sölu
KRISTALS LJÓSAKRÓNUR
í Glæsibæ
Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir
falleg heimili. Handskornar kristals-
ljósakrónur, veggljós, matarstell,
kristalsglös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL
Glæsibær. Sími 7730273
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Ýmislegt
Sólbaðsstofa Súper sól
Enduropna Sólbaðsstofu Súper sól í
Hólmaseli 2,109 Rvk. Nýir sól- og
kollagen-bekkir beint frá Ítalíu.
Opnunartilboð: 7, 10, 11 mínútur,
aðeins fyrir 1200 kr. Allir velkomnir
frá kl. 10 til 22, sími 5870077.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Atvinnuauglýsingar
Vélstjóri
FISK Seafood ehf óskar eftir vélstjóra til
afleysinga í vetur.
Umsækjandi þarf að hafa VF-II réttindi.
Upplýsingar gefur Jón Ingi í síma 825 4417.
Senda skal umsókn á netfangið
joningi@fisk.is
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Þórsberg 4, Hafnarfjörður, fnr. 208-1162 , þingl. eig. Ágústa Pálína
Færseth, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn
13. nóvember nk. kl. 10:30.
Fagrihvammur 2B, Hafnarfjörður, fnr. 207-4723 , þingl. eig. Sigurður
Arason, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves og
Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 13. nóvember nk. kl. 11:00.
Langamýri 16, Garðabær, fnr. 207-1163 , þingl. eig. Valgerður Hildi-
brandsdóttir og Sigbjörn Jónsson, gerðarbeiðendur Arion banki hf.
og Landsbankinn hf., þriðjudaginn 13. nóvember nk. kl. 11:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
8 nóvember 2018
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Vallholtsvegur 8, Norðurþing, fnr. 215-3490, þingl. eig. Laxagata ehf.,
gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudaginn 15. nóvember nk. kl.
11:00.
Klapparstígur 15, Dalvíkurbyggð, fnr. 215-6628, þingl. eig. Hólmfríður
Helga Björnsdóttir og Sigurþór Brynjar Sveinsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 14. nóvember nk. kl. 14:15.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
8. nóvember 2018
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Hólasandslína 3
Landsnet hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummats-
skýrslu um Hólasandslínu 3, 220 kV raflínu frá Akureyri að Hólasandi.
Línuleiðin er innan fjögurra sveitarfélaga: Akureyrarkaupstaðar, Eyja-
fjarðarsveitar, Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps.
Kynning á frummatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 9. nóvember til 21. desember á eftirtöldum stöðum: Í ráðhúsi Akur-
eyrarkaupstaðar Geislagötu 9, á skrifstofum Eyjafjarðarsveitar, Þing-
eyjarsveitar og Skútustaðahrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipu-
lagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar
www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 21. desember 2018 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105
Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Vakin er athygli á að Landsnet stendur fyrir kynningarfundi á frummats-
skýrslu þann 21. nóvember kl. 17:30-20:30 á Hótel KEA, þann 22.
nóvember kl. 17:30-20:30 í félagsheimilinu Breiðamýri í Reykjadal og
þann 27. nóvember kl. 16-19 á Grand Hóteli í Reykjavík og eru allir
velkomnir.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba 60+ kl. 10.30.
BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 krónur. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur
við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl.11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Velkomin. S. 535-2700.
Áskirkja Jólabasar Áskirkju, Vesturbrún 30, verður haldinn sunnu-
daginn 11. nóvember að aflokinni messu um kl. 12. Ef þið viljið gefa
muni á basarinn þá endilega komið þeim til kikjunnar, kirkjuvörður
mun taka á móti. Ef þið hafið tök á að gefa okkur kökur eða annað
kruðerí á kökuborðið okkar þá endilega komið með í efri sal kirkjunn-
ar sunnudagsmorgun 11. nóvember milli kl. 10. og 11.
Boðinn Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 15.30.
Bólstaðarhlíð 43 Notendaspjall kl. 9.30-10. Heimsókn frá Stakka-
borg kl. 10.30. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30.
Leikfimi kl. 12.50-13.30. Haustfagnaður kl. 16-18. Síðdegiskaffi fellur
niður vegna haustfagnaðar.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir!
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist FEBK.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Ljósmyndaklúbbur kl. 13.
Bingó kl. 13.30. OPIÐ HÚS laugardaginn 10. nóvember kl.14. Einnig
verður BASAR .
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og ný-
liðar velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13 og bíó kl. 13.15
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp
á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju, thai chi með Guðnýju kl. 9-10, botsía
kl. 10.15, hádegismatur kl. 11.30. Zumbadansleikfimi með Auði Hörpu
kl. 13-13.50, Svavar Knútur og Aðalsteinn Ásberg syngja og lesa upp,
kl. 14, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari
uppl. í s. 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9. í Borgum,
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9. Brids hefst kl. 12.30 í dag í
Borgum. Hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum og hið vinsæla
vöfflukaffi milli kl. 14.30 til 15.30. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl.
13. í dag. Góða helgi.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu á
Skólabraut kl.11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13. Spilað
í króknum kl. 13.30, brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Nk. miðvikudag
verður grill og skemmtikvöld í salnum á Skólabrut. Monika Abend-
roth hörpuleikari og Björg Gísladóttir verða með ljóðatónleika kl. 19
og Grillvagninn mætir kl. 20. Skráning og uppl. hjá Kristínu í síma
8939800.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Íslendingasögu-námskeið, Hávarðarsaga Ísfirðings,
kl. 13, kennari Baldur Hafstað. Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23.
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
mbl.is
alltaf - allstaðar
fasteignir
jólanna í ágúst og elskaði að und-
irbúa jólin með fjölskyldunni,
baka, kaupa gjafir og handskrifa
jólakort. Ég man þegar ég var á
kafi í prófatörn í háskólanum þeg-
ar hún kom með lakkrístoppana
til mín, sem hún og mamma henn-
ar höfðu bakað, til þess að gleðja
mig, minnka stressið og stappa í
mig stálinu. Það er bara lítið
dæmi um það hvað hún var alltaf
hugulsöm, alltaf að hugsa um
fólkið sitt. Þegar systir mín dó
stóð hún sem klettur við hlið mér,
grét með mér og hjálpaði mér að
vinna úr sorginni. En lífið er
hverfult og nú hef ég misst aðra
systur.
Þú munt alltaf eiga stað í
hjarta mínu, elsku vinkona og
systir. Ég sakna þín og mun alltaf
gera. Þú varst mikilvægur og stór
hluti af mínu lífi og þér á ég svo
margt að þakka. Ég væri ekki sú
manneskja sem ég er í dag hefði
ég ekki kynnst þér fyrir 28 árum.
„Öll ástin“ til þín elsku Elín, eins
og þú áttir til að segja. Takk fyrir
allt og allt.
Aníta Magnúsdóttir.
Elsku yndislega vinkona mín.
Það er þyngra en tárum tekur
að skrifa þessi orð því maður vill
bara ekki trúa því að þú sért farin
frá okkur. Þetta er svo óraun-
verulegt og fyllir mann mikilli
sorg að við höfðum ekki hist
meira en raun var undanfarin ár.
En vináttu þinnar, sérstaklega á
bernsku- og unglingsárum, minn-
ist ég með miklu þakklæti og
kærleika. Þú varst fyrsta vinkona
mín á Akureyri og höfum við
brallað ýmislegt saman, allt frá
því að leika okkur í playmo og síð-
ar fara á rúntinn eða skella okkur
til Benidorm.
Það sem við eigum margar
stundir sem eru uppfullar af
hlátri og gleði, en líka sorg og tár-
um. Það var alltaf hægt að treysta
og stóla á þig og þú varst alltaf til
staðar fyrir mig, sama hvað gekk
á. Þú varst líka alltaf svo ákveðin
og hreinskilin og það kunni ég vel
að meta. Hlátur þinn var einn sá
mest smitandi sem ég hef komist í
kynni við og mun minningin um
hann lengi ylja sem og allar þær
góðu stundir sem við áttum sam-
an.
Ég er óendanlega þakklát fyrir
okkar stundir saman og öll faðm-
lögin og hlýjuna. Þín mun verða
sárt saknað, elsku vinkona. Ég
sendi fjölskyldu þinni mínar
dýpstu samúðarkveðjur og vil
þakka ykkur fyrir allt undanfarin
ár.
Í margra huga er minning skær,
og mynd í hjarta geymd.
Stöðugt okkur stendur nær,
stund sem ekki er gleymd.
Nú komið er að kveðjustund,
klökkvi hjartað sker,
gengin ertu Guðs á fund
sem góður líknar þér.
(Kristján Runólfsson)
Þín vinkona,
Jarþrúður Árnadóttir.
Elín Helga hóf störf í leikskól-
anum Lundarseli tuttugu og eins
árs og starfaði með hléum í átta
ár.
Við samstarfsfélagar hennar
kynntumst henni sem ungri
stúlku sem var létt og kát og
hrókur alls fagnaðar.
Elín Helga var mjög áhugasöm
um starfið með börnunum, natin
og umhyggjusöm. Við sáum að
hún var á réttum stað í lífinu hvað
starfið varðar. Við hvöttum hana
til að fara í leikskólakennaranám-
ið í Háskólann á Akureyri og
samglöddumst henni mikið þegar
hún fór í námið.
Þegar við hugsum til baka
sjáum við gjarnan Elínu Helgu
fyrir okkur með geislandi blik í
augum og smitandi hlátur. Hún
talaði með ákafa um starfið og
hvað er það besta fyrir börnin.
Hún sá oft um að kalla starfs-
mannahópinn saman. Okkur er
sérstaklega minnisstætt þegar
Elín fékk tvisvar lánaðan sum-
arbústað foreldra sinna fyrir okk-
ur starfsmannahópinn, þar áttum
við saman frábærar stundir sem
lifa um ókomna tíð.
Allt of ung var kallið hennar
komið frá tveimur ungum börn-
um og fjölskyldu, eins sárt og það
er.
Elsku Eddi og börn, Guðrún
Svala, Hannes og fjölskyldur,
ykkar harmur er mikill en minn-
ing um góða konu lifir. Við send-
um ykkur okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd starfsmanna í
Lundarseli,
Björg Sigurvinsdóttir.
sagðist hann geta guðsvarið að
hann hefði séð að sonur minn lítill
hefði hallað sér að mömmu sinni
og spurt: „Hvor þeirra er svo
pabbi minn?“ Seinna sagði hann
svo stundum þegar við vorum að
klippa, líma og skrifa í svolítið
kennslukver sem nöfnin okkar
rötuðu á og menntaskólakrakkar
í Hamrahlíð voru látnir lesa: „Æ,
minna slugs, reyndu nú að vera
aðeins vaskari en í próflestrinum í
gamla daga, við getum ekki hang-
ið yfir þessu mikið lengur.“
Svo söng hann líka svo vel og
ævinlega skandinavískt; Kim
Larsen í hádegisuppvaskinu með
krökkunum í óteljandi sumarbú-
staðaferðum en Alf Prøysen eftir
kvöldmat, oft með soldið tár í ann-
arri hendinni og sígarettu í hinni,
en stundum söng hann líka Åge
Aleksandersen um birtuna og yl-
inn.
Nei, það var ekki ónýtt að
standa í skjóli þessa stóra manns í
nærri hálfa öld og þá er ég ekki
bara að tala um öryggið sem
fylgdi því að hafa hann við hliðina
á sér á stöðum eins og White Hart
Lane og við í bláum Chelsea-
treyjum, bullurnar nenntu ekki
einusinni að berja rindilinn sem
var með þessum stóra manni. Það
var frekar öryggið sem stafaði af
manngæsku hans og réttsýni sem
var svo gott afdrep.
Siggi er kvaddur af miklum
innileik og með endalausum góð-
um minningum.
Steingrímur Þórðarson.
Fundum okkar bar fyrst sam-
an fyrir fjórum árum er ég leitaði
til hans með bókarhandrit. Hann
gaf sér góðan tíma til skoðunar á
því. Vel undirbúinn kallaði hann
mig til samræðu á skrifstofu
sinni, í „kommastólunum“ er
hann kallaði svo. Verki mínu
sýndi hann hvetjandi áhuga, leið-
beindi og liðsinnti í stóru og
smáu, bjó því form og gerð, betri
en mig hafði órað fyrir. Mér
fannst ég vera í öruggum hönd-
um. Hann fylgdi bók minni þétt
eftir, og síðan fleirum, nú síðast
heyskaparbók er út kom fyrr á
þessu ári. Hann hvatti mjög til
framhalds og fund um það og
fleira höfðum við ráðgert í
„kommastólunum“ nú í vetrar-
byrjun. Mennirnir ráðgera en
guð ræður, segir þar …
Ráð hans og leiðsögn alla um
skrif, bókagerð og -útgáfu mat
ég afar mikils, þau kynni urðu
mér lærdómur. Mér er hins veg-
ar enn meira virði sú vinátta sem
með okkur ræktaðist og það til
stærra rýmis en ég minnist að
gerst hafi með öðrum á jafn
skömmum tíma. Hann hafði af
mikilli manngæsku og hlýju að
miðla og þeir voru margir sem
vináttu hans nutu. Ófáir sakna
því vinar í stað. Sárlega. Við
leiðaskil þakka ég kynnin, sem
urðu mér mannbætandi; verða
eftirminnileg. Ég sendi ástvinum
hans innilega samúðarkveðju.
Blessuð sé minning Sigurðar
Svavarssonar.
Bjarni Guðmundsson.
Fleiri minningargreinar
um Sigurð S. Svavarsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.