Morgunblaðið - 09.11.2018, Qupperneq 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Samræður þínar við foreldra þína eða
yfirmenn geta komið þér á óvart í dag. Það
getur verið einmanalegt að bera of mikla
ábyrgð og hafa of mikla stjórn á hlutunum.
20. apríl - 20. maí
Naut Samskipti þín við aðra verða sérlega til-
finningaþrungin í dag. Bráðræði verður þér
bara til bölvunar. Sýndu því tillitssemi og um-
burðarlyndi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Stundum eru það aðeins smáatriði
sem standa í veginum fyrir því að árangur ná-
ist. Taktu öllum tilmælum með fyrirvara og
gleymdu ekki að standa með sjálfum þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að endurskoða dagskrá þína
því þú hefur hrúgað of mörgum verkefnum á
daginn. Sígandi lukka er best og því eru allar
sviptingar til lítils, þegar upp er staðið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Undarlegir atburðir gætu orðið í dag.
Reyndu að leita samstarfs við aðra um þau
verk, sem þú getur ekki hrint einn í fram-
kvæmd.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það þarf mikinn innri styrk til þess að
gera það rétta, sérstaklega þegar það sýnist
auðveldara að fara hina leiðina. Leggðu dæm-
ið niður fyrir þér áður en þú hefst handa.
23. sept. - 22. okt.
Vog Samvinna við aðra getur auðveldað þér
að láta drauma þína rætast. Haltu þínu striki
og hlustaðu ekki á raddir þeirra sem eru á
annarri bylgjulengd en þú.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þig vantar félaga til þess að
framkvæma það sem þig dreymir um. Skoð-
aðu vandlega hvað þú hefur sjálfur og lærðu
að meta það.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert ákveðinn í að fá aðra til að
gera eitthvað í vinnunni. Taktu ákvörðun um
að gera eitthvað sem mun láta þér líða betur í
eigin skinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú þarft að taka ákvörðun fyrir
fleiri en sjálfan þig verðurðu að hugsa um
allra hag en ekki bara þinn eigin. Gættu þess
vegna orða þinna.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér finnast of margir sækja að þér
í einu og vilt því leita uppi einveruna. Ef þér
finnst brotið á þér áttu ekki að hika við að láta
til þín heyra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ef þú lumar á góðri hugmynd um það
hvernig þú getir aflað fjár þá er þetta rétti
dagurinn til að reyna hana. Líttu fram á veg-
inn og vertu tilbúinn til að takast á við nýja
hluti.
Ég tók fyrstu ljóðabók dr. SturluFriðrikssonar „Ljóð langför-
uls“ með mér í rúmið og hélt hún
fyrir mér vöku. Bókin opnaðist við
„Snjó á Kilimanjaro“:
Nú hellist regnið niður þrumuþungt
og þorstlát jörðin teygar skúraflóð
svo sléttan lifnar, grasið ilmar ungt
til unaðssemdar fyrir hungrað stóð,
sem reikar um og etur allt sem grær,
en út við sjónrönd gnæfir, miklu fjær,
hin bláa hlíð og fjallsins föli snær.
Þetta er falleg mynd. Næst liggur
leið hans í spilavítið í Monte Carlo:
Hér í tafli skiptast sköp,
skaði þinn er mér í vil.
Að jöfnu ganga gróði og töp,
glötuð von og unnið spil.
Í Sviss buðust Sturlu „góðostar“:
Betra er en brauð og smér
að borða góðan Camembert.
Og frekar en að falla úr hor
að fá sér gamlan Roquefort.
Nema maður nái í
nógu væna sneið af Brie.
„Ljóð úr leiðöngrum“ er sjöunda
ljóðabók Sturlu. „Á Tahiti“:
Sólin er björt og ég brenn
verð brúnn líkt og innfæddir menn,
fæ moskítóbit
í margskonar lit
eins og málverk eftir Gauguin.
Á Írlandi vissi Sturla hvar helst
var traust að finna:
Ef verður oss á nokkur villa
á vegum, sem fyrir oss spilla,
og sé okkar leið
ekki gerð nógu greið
við heitum á Kólumkilla.
Þar sá hann sjónvarpsþátt um
Ívar beinlausa:
Menn notuðu sleggjur og steinhausa
við slátrun á lýðnum bráðmeinlausa.
Þá var brotið hvert bein
og barið við stein.
Og það bjargaði Ívari beinlausa.
Sturla var á ferð í Danaveldi og
kom í Limafjörð:
Hér var orusta Haraldar hörð
og hreystiverk mörg voru gjörð.
Menn limi af skutu
og skankana brutu,
og skýrðu þar af – Lima-fjörð.
Á ferð um Edinborg:
Ég kempan er kominn að lotum
og kraftar mínir á þrotum
af að aka um torg
hér í Edinborg
sem er uppfull af skúma Skotum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Bókum dr. Sturlu
Friðrikssonar flett
Í klípu
„TIL AÐ SLÖKKVA Á ÞJÓFAVÖRNINNI
SKALTU TAKA HÖNDINA HÆGT ÚR
VASANUM OG GEFA HONUM HUNDAKEX. ”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MÁ ÉG BORGA ÞÉR Á FÖSTUDAGINN?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að æfa danssporin til
þess að ganga í augun
á henni.
AF HVERJU LEYFIR EIGANDI
ÞINN ÞÉR EKKI AÐ
GANGA LAUS?
ÉG BRYÐ KETTI FRELSI ER OFMETIÐ
HELGA!
ÞÚ GAFST LEIKLISTARDRAUMINN
UPP Á BÁTINN. ÞÚ HEFÐIR GETAÐ
ORÐIÐ FRÁBÆR LEIKKONA!
SÆKTU BJÓR
HANDA MÉR!
ALVEG SJÁLFSAGT
MINN ÁSTKÆRI,
MJÖG SVO
VERÐUGI
EIGINMAÐUR
SAGÐIRÐU HEFÐIR
GETAÐ ORÐIÐ?
NOTAÐIR
BÍLAR
Víkverji verður ekki með góðumóti kallaður mikill hannyrða-
maður, já eða kona eftir því hvernig
á málið er litið. Víkverji var framan
af heldur ekki talinn í hópi þeirra
sem státa af grænum fingrum eða
bjórdrykkju. Af þessum sökum lend-
ir Víkverji oft í því að þurfa að afsaka
skort á hæfileikum á þessum sviðum.
x x x
Varnarviðbragð Víkverja er ávalltþað sama. „Mér er margt annað
til lista lagt.“ Af hverju þarf Víkverji
að afsaka sig? Af hverju má hann
ekki bara vera áhugalaus eða án
hæfileika til þess að hugsa um jurtir
og blóm, sauma og safna bjórbumbu
og hvað þetta allt saman kallast?
x x x
Það skal tekið fram áður en lengraer haldið að Víkverji hefur með
árunum þróað með sér græna putta
og getur sinnt hannyrðum kjósi
hann svo en bjórdrykkjan er erf-
iðari. Þessar vangaveltur Víkverja
leiddu eins og svo oft áður til þess að
Víkverji kafaði dýpra ofan í málefnið
í leit að sannleikanum.
x x x
Víkverji komst ekki að neinni nið-urstöðu enda slíkt erfitt í eins
flóknu máli og nú er til umfjöllunar.
Víkverji hins vegar fann að í honum
ólgaði uppsafnaður pirringur og
spurningar sem hann hafði ekki svör
við. Af hverju þarf að setja fólk í
box? Af hverju þarf að fylgja tísku?
Af hverju er gert grín að eða litið
niður á þá sem fylgja ekki norminu
og hvað er normið? Hver setur við-
miðin? Hvað er það sem stýrir því
hvernig mannskepnan hagar sér? Af
hverju erum við hópsálir og veigrum
okkur við að uppfylla langanir okkar
ef þær falla ekki nægilega vel að
norminu? Af hverju eiga konur að
lita á sér hárið, ganga í nælonsokka-
buxum og háhæluðum skóm? Af
hverju mega pabbar ekki gráta?
Svona mætti lengi telja og hugs-
anlega er Víkverji löngu kominn frá
því sem hann fór af stað með í upp-
hafi. Eða hvað? Er mannfólkið ekki í
sífelldri leit að viðurkenningu og að
vera samþykkt í hópi? Já, þegar
stórt er spurt verður lítið um svör.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Daníel tók til máls og sagði: Lofað sé
nafn Guðs um aldir alda því að hans
er viskan og mátturinn.
(Daníel 2.20)
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is