Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018
Vörn gegn sýklum Linar særindi í háls
Flýtir bata á kvefi og endurnýjun slímhimnu í
Við kvefi og særindum í hálsi
i
hálsi
Coldfri munnúði
AF AIRWAVES
Anna Margrét Björnsson
amb@mbl.is
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves
er haldin í tuttugasta sinn í ár og
hefur, með nýjum eigendum og
skipuleggjendum, sótt aftur til for-
tíðar þar sem mikið er lagt upp úr
íslenskum listamönnum og minna
er um stór erlend nöfn.
Um 240 hljómsveitir og sóló-
tónlistarmenn koma fram á hátíð-
inni og eru listamennirnir frá 25
löndum. (Það er auðvitað dálítið
ógnvænlegt að hugsa sér að hátíð-
in hafi átt sér stað í tuttugu ár og
að maður hafi sótt næstum því
hverja einustu þeirra.)
Tónleikar hafa færst mikið úr
Hörpu og eru nú, líkt og í „gamla
daga“ bara á víð og dreif á hinum
ýmsu stöðum í miðbænum, sem er
skemmtilegt. Ég verð að viður-
kenna að mér fannst samt dálítið
langt að fara til dæmis að Bryggj-
unni brugghúsi, frábær staður en
þegar maður er að reyna að sjá
sem flesta listamenn sem allir hafa
einungis um tuttugu mínútur á
sviði þá hjálpar svona langur
göngutúr ekki til.
Eins og listgjörningur
Fyrsta hljómsveitin sem ég sá
á fyrsta kvöldi Airwaves, mið-
vikudagskvöldi, var Madonna +
Child á Bryggjunni. Hljómsveitin
er umlukin mikilli dulúð. Meðlim-
irnir eru tvær stúlkur sem koma
ekki fram undir nafni og hylja
andlit sín. Drungalegar melódíur
og tölvuteknóbít blandast und-
arlegum söngvum um dauða og
dráp og ýmis smádýr. Madonna +
Child eru skemmtilega krípí og
eru eins og listgjörningur, stöll-
urnar skapa sérstakt andrúmsloft
sem hefur meira vægi en tónlistin
sem er draumkennd, skrýtin og
sorgleg.
Grípandi og fagurt
Næst fór ég á Gaukinn en ég
var spennt að sjá Sólveigu Matt-
hildi sem fékk Kraumsverðlaunin í
fyrra fyrir plötu sína Unexplained
Miseries & The Acceptance of Sor-
row. Sólveig er líka ein af þremur
meðlimum óttabylgjusveitarinnar
Kælunnar miklu og hefur ótrúlega
flotta og einlæga sviðsframkomu.
Hún var klædd í eldrauða dragt og
kom til skila miklum tilfinningum
með fallegri víbratórödd sem
blandast við tregafulla elektrón-
íska takta. Lögin fjalla öll á mis-
munandi hátt um sorg og trega,
eitt lagið fjallar um að sættast við
sjálfan sig þegar maður áttar sig á
að sorgin er manni sjálfum að
kenna. Grípandi og fagurt, tært og
svo einlægt að það nístir í hjarta-
rætur. Greinilega miklir hæfi-
leikar á ferð hjá Sólveigu. Ég varð
hinsvegar svolítið pirruð út í út-
lenda Airwaves-gesti sem töluðu
of hátt og trufluðu rafmagnað
andrúmsloftið.
Karlar og vampírur
Leið mín lá næst í Iðnó þar
sem var fullt út úr dyrum. Hljóm-
sveitin GlerAkur steig á svið en
þar er á ferð kraftmikið og sveim-
andi gáfumannarokk í anda God-
speed með dassi af Pink Floyd og
jafnvel Can. Þessi sjö (karl)manna
sveit skartar fjórum gítarleikurum
og myndar flottan og dáleiðandi
hljóðvegg sem greinilega féll í
kramið hjá áhorfendum.
Á eftir GlerAkri var það Kæl-
an mikla sem steig á svið í Iðnó.
Það hefur verið magnað að fylgj-
ast með þessari sveit sem byrjaði
fyrir nokkrum árum sem flott og
reið, hrá, ung og pönkuð. Í dag
eru þær jafn kraftmiklar en það
fylgir þeim ótrúleg fágun, bæði í
sviðsframkomu og tónlistinni. Þær
spila tilfinningaþrungna elektrón-
íska tónlist, ekta dimmbylgjuraf-
goth, jafnvel með smá Cure-ívafi.
Svartklæddar minntu þær næstum
því á vampírur á sviðinu, töff,
angurværar og dálítið ógnvekj-
andi. Spái stórum hlutum fyrir
þessa skemmtilegu hljómsveit.
Flott kvöld á Airwaves sem ein-
kenndist af drunga, myrkri og
sorg, akkúrat eins og tónlist á að
vera.
Sorg, dauði og myrkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dulúð Drungalegar melódíur og tölvuteknóbít blandast undarlegum söngv-
um um dauða og dráp og ýmis smádýr hjá Madonna + Child.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eldrauð Sólveig Matthildur var klædd í eldrauða dragt og kom til skila
miklum tilfinningum með fallegri víbratórödd og tregafullum töktum.
» Lögin fjalla öll ámismunandi hátt um
sorg og trega, eitt lagið
fjallar um að sættast við
sjálfan sig þegar maður
áttar sig á að sorgin er
manni sjálfum að kenna.
Ljósmynd/Ian Young - Nounpusher.com
Kælan mikla Stúlkunrnar eru kraftmiklar en það fylgir þeim ótrúleg fág-
un, bæði í sviðsframkomu og tónlistinni, og þær minntu á vampírur á sviði.
Iceland Airwaves
stendur fyrir ráð-
stefnu um tónlist
og ýmislegt henni
tengt á Center
Hotel Plaza hót-
elinu við Að-
alstræti í dag.
Eru allir við-
burðir opnir og
allir velkomnir á
meðan húsrúm
leyfir.
Ráðstefnan er
skipulögð af Út-
flutnings-
skrifstofu ís-
lenskrar
tónlistar, ÚTÓN.
Einn viðburð-
anna er afrakstur
samstarfs Bók-
mennta- og tón-
listarborgarinnar
Reykjavíkur en á honum er tónlist-
arfólki, orðlistarfólki og öðru áhuga-
fólki um góða lagatexta gefið tæki-
færi til að skyggnast inn í heim
söngtextasköpunar.
Yfirskrift hans er „Frá texta yfir í
söngtexta – From words to lyrics“
og hefst hann kl. 12 og stendur yfir í
45 mínútur eða
þar um bil.
Í umræðunum
taka þátt þau Ás-
geir Trausti, Em-
ilíana Torrini,
Kolfinna Nikulás-
dóttir og Sjón en
umræðustjóri er
Elísabet Indra
Ragnarsdóttir.
„Rætt verður
um söngtexta,
hvað einkennir
góða tónlistar-
texta og hvernig
þeir verða til.
Tónlistarmenn
vinna á mismun-
andi hátt með
orðlistina og ein
af spurningunum
sem ræddar
verða er hvort
aðrar reglur gildi um texta sem ætl-
aðir eru til söngs en aðra,“ segir í til-
kynningu um viðburðinn.
Fleiri viðburðir verða á ráðstefn-
unni og má finna dagskrá hennar á
vefsíðum Iceland Airwaves og ÚT-
ÓN á slóðunum icelandairwaves.is
og uton.is.
Hvað einkennir
góða tónlistartexta?
Umræður á Iceland Airwaves
Kolfinna
Nikulásdóttir
Emilíana
Torrini
Ásgeir
Trausti
Sjón