Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 Trölli Teiknimynd byggð á sígildri barna- bók Dr. Seuss um Trölla sem stal jólunum. Trölli býr í fjöllunum og lætur jólaskap íbúa nálægs þorps fara í taugarnar á sér. Hann ákveður því að stela af þeim jól- unum. Leikstjórar eru Scott Mosier og Yarrow Cheney. Metacritic: 52/100 Overlord Bandarískir fallhlífarhermenn fara á bak við víglínuna til að styrkja innrás bandamanna í Normandí á D-deginum svokallaða í seinni heimsstyrjöldinni. Þeim að óvörum mæta þeim í þorpi einu blóðþyrstir uppvakningar sem eru sköpunar- verk nasista. Leikstjóri er Julius Avery og meðal leikara Jovan Adepo, Wyatt Russell og Pilou As- bæk. Metacritic: 52/100 The Girl in the Spider’s Web Hörkutólið Lisbeth Salander úr Millennium-þríleik rithöfundarins Stiegs Larssons er aftur mætt til leiks í kvikmynd sem byggð er á fjórðu bók syrpunnar sem skrifuð var af David Lagercrantz eftir að Larsson lést. Salander og blaða- maðurinn Mikael Blomkvist reyna að leysa flókið glæpamál þar sem morðingjar og tölvuhakkarar koma m.a. við sögu og tvíburasystir Sa- lander. Leikstjóri er Fede Alvarez og með aðalhlutverk fara Claire Foy, Sverrir Guðnason og Claes Bang. Metacritic: 48/100 Serbneskir menningardagar Fjórar serbneskar kvikmyndir verða sýndar á serbneskum menn- ingardögum sem hefjast í dag í Bíó Paradís og standa yfir til og með 11. nóvember. Hátíðin er skipulögð af Serbnesku menningarmiðstöðinni á Íslandi í samstarfi við utanríkisráðuneyti Serbíu og Bíó Paradís. Heiðursgestir hátíðarinnar í ár eru leikstjórarnir Milos Skundric, Ni- kola Kojo og Vuk Rsumovic og verða þeir viðstaddir sýningar á kvikmyndum sínum og svara spurn- ingum gesta að þeim loknum. Frekari upplýsingar um kvikmynd- irnar fjórar og sýningartíma má finna á bioparadis.is. Bíófrumsýningar Trölli, uppvakningar, Salander og serbneskar Háskakvendi Leikkonan Claire Foy í hlutverki Lisbeth Salander í The Girl in the Spider’s Web. Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is „Í þessum töluðum orðum er ég að spjalla við þekktan íslenskan leik- ara sem heitir Jóhannes Haukur Hauksson og er að gera það gott þessa dagana. En þetta er allt í lagi, við tökum okkur bara smá hlé,“ seg- ir Heiðar Sumarliðason kátur þegar blaðamaður nær í hann í síma að hausti. Heiðar hleypti nýverið af stokkunum hlaðvarpsþáttum sem kallast Rauð síl. Í þeim fær hann til sín gesti og spjallar við þá um nýjar kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Einmanalegt starf Heiðar segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á kvikmyndum og lengi vel ætlað sér að verða kvik- myndagerðarmaður. „Ég hef í rauninni líka skrifað kvikmynda- handrit sem hafa fengið styrki frá Kvikmyndamiðstöð en eru ekki ennþá orðin að kvikmynd. Þannig að þá er fínt að búa til hlaðvarp á meðan,“ segir Heiðar en hans helsta starf sé þó að vera leikskáld. Verk eftir hann hafa meðal annars verið sýnd í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhússins. „Starf leikskáldsins er einmana- legt og með mjög löngu ferli. Það líður rosalega langur tími þar til þú færð einhvers konar tilbúna vöru. Svo hittir maður fáa og þetta var byrjað að liggja svolítið á mér. Mér fannst því að með hlaðvarpinu myndi ég svala þörf minni fyrir að eiga í samræðum við fólk og líka að búa til einhverja vöru.“ Skemmta og fræða Heiðar segist taka þættina upp heima í stofu og stemningin er heimilisleg. „Ég er bara með eitt lít- ið upptökutæki og fæ gestina heim þar sem ég býð upp á kaffi og sóda- vatn.“ Heiðar segir markmiðið með hlaðvarpsþáttunum bæði að skemmta og fræða. „Ég fæ til mín gesti sem hafa þekkingu á viðfangs- efninu og geta greint með mér þau öfl sem eru í gangi á bak við gerð og útkomu leikins efnis. Við tökum okkur góðan tíma og reynum að fara djúpt í viðfangsefnið. Reynum svona að koma með vitræna og greinandi umfjöllun um það sem tekið er fyrir hverju sinni en þó á aðgengilegan máta.“ Hvaðan er nafnið komið? „Rauð síld er bein þýðing á kvik- myndahugtakinu „red herring“ sem þýðir í rauninni það að áhorfandinn er blekktur til að halda að það sé eitthvað í gangi en svo er það eitt- hvað annað. Ég átti í rosalega mikl- um erfiðleikum með að finna nafn á þáttinn og var bara orðinn hálför- vinglaður með það því ég þurfti að fara að setja þetta af stað. Ég fór því á internetið og gúgglaði bara kvikmyndahugtök.“ Viðtökur verið góðar Um þrír mánuðir eru liðnir frá því fyrsti þáttur fór í loftið. Heiðar segir þetta hafa farið vel af stað og að viðtökurnar hafi verið góðar. Hægt sé að hlaða þáttunum niður á iTunes og helstu hlaðvarps-forrit- um en einnig sé hægt að hlusta á þá inni á vefsíðunni Soundcloud. „Sjónvarpsþættirnir sem búið er að taka fyrir eru Who is America, Sharp Objects og Insatiable. Svo er meðal annars búið að taka fyrir kvikmyndirnar Lof mér að falla og Mission: Impossible - Fallout. Og þetta er allt saman aðgengilegt ef fólk vill hlusta.“ Er Rauða síldin komin til að vera? „Já, það held ég bara. Ég hef alla vega gaman af þessu og fólk er að hlusta.“ Morgunblaðið/Eggert Kvikmyndaáhugamaður Heiðar Sumarliðason segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á kvikmyndum. Síldin komin til að vera  Hlaðvarpið Rauð síld er tekið upp heima hjá umsjónar- manni  Rætt um nýjar kvikmyndir og sjónvarpsþætti Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Fly Me To The Moon (Kassinn) Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Sun 2/12 kl. 19:30 Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Fös 23/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Lau 1/12 kl. 19:30 Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Insomnia (Kassinn) Mið 14/11 kl. 19:30 Frums Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/12 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 10/11 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 13:00 Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 9/11 kl. 22:00 Daður og dónó Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 5/12 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Fjallkonan fríð (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 10/11 kl. 20:00 3.sýn Sun 11/11 kl. 17:00 4.sýn Fjallkonan skoðuð á fullveldisafmæli leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Elly (Stóra sviðið) Fös 9/11 kl. 20:00 164. s Fim 22/11 kl. 20:00 172. s Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Sun 11/11 kl. 20:00 aukas. Fös 23/11 kl. 20:00 173. s Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Fim 15/11 kl. 20:00 aukas. Sun 25/11 kl. 20:00 174. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Lau 17/11 kl. 20:00 165. s Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Sun 18/11 kl. 20:00 171. s Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 10/11 kl. 20:00 19. s Fös 23/11 kl. 20:00 21. s Lau 17/11 kl. 20:00 20. s Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Litrík jólasýning fyrir þau yngstu. Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 10/11 kl. 20:00 66. s Lau 24/11 kl. 20:00 68. s Fös 16/11 kl. 20:00 67. s Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Sýningum lýkur í nóvember. BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.