Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 13
Gordonstoun vera þau verstu á ævi
sinni. Þar voru íþróttir og líkamlegt
atgervi í hávegum höfð og feiminn
klaufalegur drengur með útstæð
eyru, sem hafði litla reynslu af sam-
skiptum við jafnaldra sína, var auð-
velt skotmark uppátækjasamra
hrekkjusvína.
Karl lagði stund á sagnfræði og
fornleifafræði við Trinity College í
Cambridge og lauk þaðan meistara-
gráðu árið 1975. Meðfram námi og
allt til ársins 1994 var hann í sjó- og
flughernum og komst til nokkurra
metorða þar.
Eftirsóttur piparsveinn
Þegar prinsinn komst á full-
orðinsár bætti hann enn einum titl-
inum í safnið: eftirsóttasti pipar-
sveinn heims. Gríðarlegur áhugi var
á einkalífi hans og var hann orðaður
við fjölmargar konur. Ein af kær-
ustum prinsins var Camilla Shand,
sem síðar giftist Andrew Parker
Bowles, vini Karls. Hún varð síðar
mikill örlagavaldur í lífi hans.
Árið 1981 giftist Karl jarlsdótt-
urinni lafði Díönu Spencer. Hann var
þá 33 ára og hún tvítug. Þau eign-
uðust saman synina Vilhjálm og
Harry en fljótlega komu brestir í
hjónabandið og ekki leið á löngu þar
til það komst á almannavitorð, ekki
síst vegna þess að bæði áttu þau í ást-
arsamböndum utan hjónabands.
Frægt er sjónvarpsviðtal við Díönu
frá árinu 1995 þegar hún sagði: „Við
erum þrjú í þessu hjónabandi, svo
það er svolítil þröng á þingi.“ Þar átti
hún við Camillu, en Karl játaði síðar
að hann hefði verið í ástarsambandi
við hana meirihlutann af hjónabandi
sínu við Díönu. Þau skildu að borði og
sæng árið 1992 og formlegur skiln-
aður gekk í gegn 1996. Díana lést ári
síðar í bílslysi í París.
Karl og Camilla gerðu samband
sitt opinbert árið 1999 og giftu sig
2005. Hún ber nú titilinn hertogaynj-
an af Cornwall og af Rothesay.
Ýmis umdeild ummæli
Samkvæmt könnunum eru Bret-
ar ekkert sérlega upprifnir yfir því að
Karl verði konungur. Þeim finnst
hann vera í rosknari kantinum og
flestir segjast vilja að Vilhjálmur taki
við af Elísabetu ömmu sinni.
En þrátt fyrir allar kannanir er
Karl næstur í erfðaröðinni og stjórn-
skipulega er ekkert sem stendur í
vegi fyrir móður hans að stíga til hlið-
ar svo sonurinn komist að. Fordæmi
er fyrir því að breskur þjóðhöfðingi
stígi af stóli, það gerðist þegar föð-
urbróðir hennar Játvarður VIII.
sagði af sér árið 1936. Þá hafa nokkr-
ir þjóðhöfðingjar í Evrópu sagt af sér
á undanförnum árum; Beatrix Hol-
landsdrottning og Albert Belgíu-
konungur gerðu það árið 2013 og Jó-
hann Karl Spánarkonungur 2014.
Þrátt fyrir að vera ekki enn sest-
ur í konungsstól hefur Karl síður en
svo setið auðum höndum. T.d. rekur
hann samtökin The Prince’s Trust
sem hjálpa ungu fólki í vanda og hefur
látið ýmis mál til sín taka, einkum um-
hverfisvernd og arkitektúr. Þegar
hann viðraði áhyggjur sínar af plast-
notkun og mengun árið 1970 þótti sá
málflutningur furðulegur og hann var
gagnrýndur fyrir að tala um mál sem
hann vissi ekkert um.
Mörg ummæla
hans hafa valdið deil-
um, t.d. þegar hann
sagði að ný bygging
breska þjóðminja-
safnsins væri eins og
gríðarstór slökkvistöð.
Þá hafa yfirlýsingar
hans um ágæti nátt-
úrulækninga verið
umdeildar.
Í heim-
ildamynd breska
ríkisútvarpsins,
BBC, sem gerð
var í tilefni af-
mælis prins-
ins, sagði
hann m.a. að
þegar hann
væri orðinn
konungur myndi hann hætta að gefa
út slíkar yfirlýsingar og bætti við að
það væri „þvæla“ að láta sér detta
það í hug að í konungsstóli myndi
hann skipta sér af málefnum á sama
hátt. Hann yrði að starfa innan þeirra
stjórnskipulegu ramma sem settir
væru embættinu. „Ég er ekki
heimskur,“ sagði prinsinn í mynd-
inni.
Í nýlegri grein í tímaritinu
Spectator er vöngum velt yfir því
hvort Karl verði konungur. Vinsældir
konungsfjölskyldunnar megi að
stórum hluta þakka drottningunni og
óvíst sé hvort þær vinsældir haldist
eftir hennar dag, þó að þær hafi auk-
ist eftir að þær Katrín, eiginkona Vil-
hjálms, og Meghan, eiginkona Har-
rys, komu inn í fjölskylduna.
En tíminn einn getur leitt í ljós
hvort hann Karl verður kóngur.
Ást Karl og
Camilla giftu
sig árið 2005
en höfðu
verið í ástar-
sambandi í
áratugi.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Roque Nublo Apartamentos
Roque Nublo hefur verið einn vinsælasti gististaður
Heimsferða til margra ára og heldur vinsældum sínum ár
eftir ár.
Vinsældirnar hafa skapast vegna staðsetningar hótelsins
en þeir sem kjósa að vera hvað næst Yumbo Center dvelja
hér aftur og aftur.
Innifalið:
Flug, Gisting, Án fæðis.
Frá kr. 99.995
Gran Canaria 3. janúar í 12 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
aa
Globales Tamaimo Tropical
Hér er um að ræða góðan íbúðavalkost í bænum Puerto de
Santiago, sem er í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá Playa
de las Americas. Bærinn Puerto de Santiago er lítill, þar er
ströndin dálítið klettótt en hægt að fara í litlar víkur með
svörtum söndum þar sem er sólbaðsaðstaða. Globales
Tamaimo Tropical er meðal gistivalkostanna okkar fyrir
fjölskyldur 4+.
Innifalið:
Flug, Gisting, Án fæðis.
Frá kr. 69.995
Tenerife 14. janúar í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
aaa
595 1000 . heimsferdir.isBókaðuþína ferð á
KANARÍEYJARNAR
Tenerife & Gran Canaria í janúar
Frá kr.
69.995
Íslensk fararstjórn,
taska og handfarangur
innifalið.
BÓKAÐU SÓL
ALLUR PAKKINN
Karl Bretaprins
» Hann er verndari yfir 420
góðgerðarsamtaka.
» Hann skrifaði barnabók
um gamlan mann sem býr í helli
í Skotlandi.
» Hann er meðlimur í Töfra-
hringnum sem er félag breskra
töframanna.
» Froskategund nokkur er
nefnd eftir honum: Hyloscirtus
Princecherlesi eða Hinn mik-
ilfenglegi trjáfroskur Karl prins.
» Hann er yfirmaður í kon-
unglega breska flug- og sjó-
hernum.
» Hátt í ein milljón breskra
ungmenna hefur notið góðs af
góðgerðarsjóði hans The Prin-
ce’s Trust.
Koss Karl og Díana giftu sig 29. júlí 1981. Fljótlega komu
brestir í hjónabandið og þau skildu endanlega 1996.