Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 61
MENNING 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Benedikt Erlingsson, leikstjóri og annar tveggja handritshöfunda kvikmyndarinnar Kona fer í stríð sem hlaut í gær LUX-verðlaunin, kvikmyndaverðlaun Evrópuþings- ins, var heldur lúinn þegar blaða- maður náði loksins í hann eftir ansi margar tilraunir. Engin furða því Benedikt var búinn að veita ein 20 viðtöl eða þar um bil í Strassborg í Frakklandi, þar sem hann var stadd- ur og nýbúinn að taka við verðlaun- unum með tilheyrandi þakkar- og hvatningarræðu. Og 30 viðtöl daginn áður að auki, svo það komi nú líka fram. Þingmenn Evrópuþingsins kjósa um LUX-verðlaunin og höfðu þeir úr þremur myndum að velja en hin- ar tvær voru kvikmyndin Styx og heimildarmyndin The Other Side of Everything eða Druga strana svega eins og hún heitir á frummálinu, serbnesku. Verðlaununum fylgir styrkur til dreifingaraðila kvik- myndarinnar og einnig styrkur til að texta myndina á fjölda tungumála. Kona fer í stríð segir af miðaldra kórstjóra, Höllu, sem leikin er af Halldóru Geirharðsdóttur. Hún brennur af áhuga fyrir umhverf- ismálum og hefur sem aðgerðasinni sagt áliðnaðinum á Íslandi stríð á hendur og fremur ítrekað skemmd- arverk. Þegar henni býðst að ætt- leiða barn ákveður hún að láta af þeim aðgerðum en hlutirnir þróast með öðrum hætti en hún á von á. „Voðalega ánægð“ LUX-verðlaunin eru sérstök fyrir það að stjórnmálamenn greiða at- kvæði, þingmenn kjósa þá mynd sem þeim þykir best og segir Bene- dikt að honum hafi í raun verið boðið upp að altari löggjafarvalds Evrópu. Þingmenn hafi verið neyddir til að horfa á kvikmyndina og síðan kosið hana sem þá bestu. – Það hlýtur að vera jákvætt fyrir þig að stjórnmálamenn hafi smekk fyrir myndinni, ekki satt? „Jú, jú, við erum voðalega ánægð. Ég held að allir stjórnmálamenn upplifi sig sem svona „woman at war“, allir stjórnmálamenn eru ein- hvers konar kona í stríði.“ – Þegar þú hlaust Kvikmynda- verðlaun Norðurlandaráðs sagðistu vera orðinn Norðurlandameistari í kvikmyndagerð. Ertu þá orðinn Evrópumeistari núna? „Ég er reyndar ekki tilnefndur beinlínis til Evrópuverðlaunanna sem eru annar hlutur en þar er Hall- dóra tilnefnd sem besta leikkona þannig að hún gæti orðið besta leik- kona Evrópu,“ svarar Benedikt og á þar við Evrópsku kvikmyndaverð- launin sem verða afhent 15. desem- ber í Sevilla á Spáni. Benedikt segir að margar af þeim kvikmyndum sem hlotið hafa LUX- verðlaunin hafi verið tilnefndar til Óskarsverðlauna og jafnvel hlotið verðlaunin. „Þannig að þetta er svona stallur sem tekið er eftir og getur hjálpað okkur í þeim slag.“ – Ertu þá að fara að dusta rykið af plássinu á hillunni þar sem Óskars- styttan mun standa? „Hvaða pláss ertu að tala um?“ svarar Benedikt og hlær. Verðlauna- stytturnar orðnar það margar að ekkert pláss er eftir á hillunni. Það sem framtíðin mun snúast um – Þú settir verðlaunagripinn að vanda á höfuðið á þér? „Já, já, ég setti þessi LUX- verðlaun á höfuðið, samkvæmt hefð,“ svarar Benedikt og bætir við að hann hafi verið í góðum félags- skap og að hinar tilnefndu mynd- irnar hafi verið stórkostlegar. – Auka verðlaunin þér bjartsýni á framtíðina, að eitthvað verði gert í umhverfismálum? „Já, algjörlega. Evrópuþingið og Evrópuþjóðir hafa virkilega fylkt sér um þessa baráttu enda ekki ann- að hægt, þetta er bara heimsendir í nánd og við verðum að bregðast við. Ríkisvaldið verður að gera það og við þurfum að vekja meiri meðvitund um þetta. Íslensk stjórnvöld eru komin að borðinu og hafa mjög metnaðarfulla áætlun en þetta er bara byrjunin. Það er hlutverk okk- ar, okkar blaðamanna og okkar sögumanna, að hjálpa okkur að hugsa um þetta og setja fókus á þessi mál. Þetta er það sem fram- tíðin mun snúast um, beint og óbeint,“ svarar Benedikt. Hann segist vongóður. „Þetta er eins og með ástina og kærleikann. Kærleikurinn er ósigrandi, þolin- móður, þrautseigur og fókuserar alltaf á hið jákvæða. Og þar verðum við að vera í þessari baráttu.“ – Heldurðu að næsta kvikmynd þín verði um svipuð málefni? „Nei, ég held ekki. Ég veit það ekki en hún verður öðruvísi. Hún verður fyrir neðan belti.“ Allir stjórnmálamenn eru kona í stríði  Kona fer í stríð hlaut LUX-verðlaun Evrópuþingsins AFP Höfuðskraut Benedikt setti LUX-verðlaunagripinn á höfuð sér að viðstöddum þingmönnum Evrópuþingsins, ljósmyndurum og fjölmiðlafólki í Strassborg í gær. Kona fer í stríð heldur áfram sigurgöngu sinni. Tilnefnd Halldóra Geirharðsdóttir í Kona fer í stríð. Hún er ein þeirra leik- kvenna sem tilnefndar eru til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Fly Me To The Moon (Kassinn) Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Lau 1/12 kl. 19:30 21.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Fös 23/11 kl. 19:30 22.sýn Fös 7/12 kl. 19:30 20.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Insomnia (Kassinn) Fim 15/11 kl. 19:30 2.sýn Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 5/12 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Elly (Stóra sviðið) Fim 15/11 kl. 20:00 aukas. Sun 25/11 kl. 20:00 174. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Lau 17/11 kl. 20:00 165. s Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Sun 18/11 kl. 20:00 171. s Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Fim 22/11 kl. 20:00 172. s Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Fös 23/11 kl. 20:00 173. s Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 17/11 kl. 20:00 20. s Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Fös 23/11 kl. 20:00 21. s Fös 7/12 kl. 20:00 23. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Litrík jólasýning fyrir þau yngstu. Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 16/11 kl. 20:00 67. s Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas. Lau 24/11 kl. 20:00 68. s Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Allra síðustu sýningar! BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.