Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
um. Áttu Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis, og Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra í bréfaskipt-
um um málið.
„Fyrirspurnir, fjöldi þeirra og sú
vinna sem fer til þess að svara þeim
í ráðuneytum, kemur oft upp í sam-
skiptum starfsmanna Stjórnaráðs-
ins og skrifstofu þingsins. Eins hef-
ur það verið rætt á formlegum
samráðsfundum, t.a.m. fundum for-
sætisráðherra með forsætisnefnd
Alþingis og formönnum þingflokka.
Engar ákvarðanir hafa þó verið
teknar um breytingar á fram-
kvæmdinni,“ segir Helgi Bernód-
usson, skrifstofustjóri Alþingis,
spurður um stöðu mála nú.
„Eins hefur forseti Alþingis rætt
um fyrirspurnir við formenn þing-
flokka og lagt áherslu á að með þann
mikilvæga þátt í störfum þingsins og
þingmanna sé farið af hófsemi og
vandvirkni, og þess sé gætt að fylgt
sé þingsköpum, einkum að því er
varðar að ráðherra, sem spurður er,
beri ábyrgð á því máli sem spurt um
og með fullri sanngirni sé hægt að
krefja ráðherra svara og í ekki of
löngu máli; enda eru þá til aðrar
leiðir í eftirlitshlutverki þing-
manna,“ segir Helgi. Starfsmenn
skrifstofunnar leiðbeini svo þing-
mönnum um ýmis formsatriði við
frágang fyrirspurna.
„Fyrirspurnum þar sem beðið er
um skriflegt svar hefur fjölgað mik-
ið, en fyrirspurnum til munnlegs
svars fækkað. Forseti hefur hvatt
þingmenn til að notafæra sér rétt
sinn til að fá munnleg svör frá ráð-
herrum og oft hefur tekið skemmri
tíma að fá svör ef sú leið er farin,“
segir Helgi að lokum.
Þingmenn spyrja og spyrja
Þingmenn hafa lagt fram 159 fyrirspurnir til ráðherra á yfirstandandi þingi Fjöldi fyrirspurna á
10 síðustu þingum er 2.898 Farið sé af hófsemi og vandvirkni með þennan mikilvæga þátt starfsins
Morgunblaðið/Hari
Setning Alþingis Fyrirspurnum þar sem þingmenn biðja um skriflegt svar hefur fjölgað mikið, en fyrirspurnum til munnlegs svars hefur fækkað.
Björn Leví
Gunnarsson
hefur verið
þingmanna öt-
ulastur að
beina fyrir-
spurnum til
ráðherra.
Rétt fyrir
þinglok í júní sl.
beindi hann ít-
arlegri fyrir-
spurn til dómsmálaráðherra um
það hve langt kjósendur þurftu að
fara til að greiða atkvæði utan kjör-
fundar í öllum kosningum frá árinu
2009. Óskaði hann eftir upplýs-
ingum um vegalengdir í kílómetr-
um.
Ítarlegt svar ráðherra barst sl.
fimmtudag og var niðurstaðan sú
að ekki væri unnt að svara spurn-
ingunni.
Morgunblaðið beindi þeirri fyrir-
spurn til ráðuneytisins hve mikill
tími hefði farið í að semja þetta
svar. Í ljós kom að ekki var haldin
tímaskýrsla um verkefnið. Hins
vegar mun skráning vinnu við fyrir-
spurnir nýhafin í ráðuneytinu og
slík skráning mun hafin í fleiri
ráðuneytum.
Taka upp tímaskráningar
RÁÐUNEYTIN BREGÐAST VIÐ AUKNUM FJÖLDA
Björn Leví
Gunnarsson
Alþingi, þingnefndir og einstakir al-
þingismenn hafa eftirlit með störf-
um framkvæmdavaldsins. Eftirlits-
hlutverk Alþingis snýr að ráð-
herrum sem bera ábyrgð á stjórnar-
framkvæmdum, sbr. 14. gr. stjórnar-
skrár. Svo segir í 49. grein laga um
þingsköp Alþingis.
Ennfremur að eftirlitsstörf al-
þingismanna fari fram með fyrir-
spurnum, skýrslubeiðnum og sér-
stökum umræðum samkvæmt
ákvæðum þingskapa, en þingnefndir
geta tekið upp mál er snúa að stjórn-
arframkvæmd ráðherra.
Eftirlitsstörf Alþingis gagnvart
ráðherrum taka til opinberra mál-
efna. Þar er átt við sérhvert málefni
er tengist hlutverki og starfsemi rík-
isins og stofnana þess, svo og félaga
og annarra lögaðila sem eru að hálfu
eða meira í eigu ríkisins.
Eftirlit með
framkvæmda-
valdinu
Fyrirspurir á Alþingi
*Hingað til
Löggjafar-
þing nr.
Fjöldi
þingfunda
Fjöldi
fyrirspurna
149 30* 159*
148 82 402
147 8 61
146 79 375
145 172 442
144 147 466
143 125 302
142 30 20
141 114 261
140 129 410
6 fyrirspurnum til munnlegs svars
og 83 til skriflegs svars er
ósvarað á núverandi þingi
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ekkert lát er á straumi fyrirspurna
þingmanna til ráðherra.
Alþingi, 149. löggjafarþingið, hef-
ur nú staðið yfir í rúma tvo mánuði.
Fyrstu 30 þingfundadagana hafa
verið lagðar fram 159 fyrirspurnir
til skriflegs eða munnlegs svars eða
rúmlega 5 fyrirspurnir að jafnaði
hvern þingdag. Samkvæmt upplýs-
ingum sem Morgunblaðið fékk hjá
Guðnýju Völu Dýradóttur, lögfræð-
ingi hjá Alþingi, er 83 fyrirspurnum
til skriflegs svars ósvarað á yfir-
standandi þingi og sex fyrirspurnum
til munnlegs svars er ósvarað.
Jón Steindór Valdimarsson hefur
lagt fram flestar fyrirspurnir eða 14.
Björn Leví Gunnarsson og Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson hafa
lagt fram 12 hvor. Ólafur Ísleifsson
hefur lagt fram 10 fyrirspurnir,
Anna Kolbrún Árnadóttur 10 og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 9.
Þess má geta að fjöldi fyrirspurna
Jóns Steindórs Valdimarssonar,
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
og Önnu Kolbrúnar Árnadóttur
skýrist að hluta til af því að þau hafa
lagt fram samhljóða fyrirspurnir til
allra ráðherra (11 fyrirspurnir) eða
á öll ráðuneyti (9 fyrirspurnir), sam-
kvæmt upplýsingum Guðnýjar Völu.
Mismargar eftir þingum
Morgunblaðið fékk ennfremur yf-
irlit yfir fjölda fyrirspurna á síðustu
10 þingum. Reyndust þær vera alls
2.898 talsins. Voru þær mismargar
eftir þingum, eins og sést á töflu
sem fylgir greininni.
Fyrirspurnir á Alþingi voru mikið
í umræðunni í mars sl. þegar Morg-
unblaðið upplýsti í frétt að einn og
sami þingmaðurinn, Björn Leví
Gunnarsson, hefði lagt fram 72 fyr-
irspurnir á því þingi sem þá stóð yf-
ir. Í framhaldinu birti blaðið frétta-
skýringu undir fyrirsögninni
„Stjórnsýslan á yfirsnúningi“. Þar
upplýsti Guðmundur Árnason, ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu,
spurður um þá vinnu sem fyrir-
spurnir alþingismanna til ráðherra
útheimta, algengt að það tæki 10-40
vinnustundir að undirbúa svar við
hverri fyrirspurn. Þá stundina var
26 fyrirspurnum ósvarað í ráðuneyt-
inu. Fyrir stjórnsýslu, sem oft væri
undir öðru álagi, gæti það reynst
örðugt að virða tímafresti til að veita
svör við fyrirspurnum.
Á síðasta þingvetri tóku Alþingi
og Stjórnarráðið upp aukið samstarf
til að koma á skipulegri vinnubrögð-
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10,1 kg
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf