Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Sjöundi áratugurinn er um-gjörð nýrrar skáldsöguAuðar Övu Ólafsdóttur,Ungfrú Ísland, sem er jafn-
framt hennar sjötta í röðinni.
Titill bókarinnar vísar í meiningar
samfélags þessa tíma um hvernig
ungar konur næðu helst á fjallsnöf
tilverunnar; þær urðu Ungfrú Ísland.
Konur eins og
söguhetja Auðar
Övu, Hekla Gott-
skálksdóttir, sem
baukuðu við að
láta eitthvað ann-
að verða úr ævi
sinni en að læra
að elda gott kjöt í
karrí þegar
sokkabands-
árunum lauk, voru með óþarfa brölt.
Hekla hefur allt sem þarf til að
trítla í sundbol um sviðið í Tívolí,
föngulegt útlit hennar koma karl-
arnir í Reykjavík fljótlega auga á
þegar Hekla heldur til Reykjavíkur
til að koma framtíðaráformum sínum
í verk; að fá eigin skáldsögu gefna út.
Það dugir lítt að taka hreinu umsátri
fálega, hún á að telja sig svínheppna
að fá slíka viðurkenningu á yndis-
þokka sínum. Konur eins og Hekla
voru í sjálfheldu þessa tíma; kyrr-
staða var í viðhorfinu til stöðu kvenna
og ekki var ætlast til þess að ævi
þeirra yrði eitthvað frábrugðin ævi
formæðra þeirra.
Ungfrú Ísland segir um leið sögu
nánustu vina Heklu, æskuvinkon-
unnar Íseyjar, sem gegnir því hlut-
verki sem þótti konum til sóma; hún
er móðir, sýður ýsu, annast eigin-
mann en flýr dauflega og einsleita til-
veru með dagbókarskrifum, dagbók-
ina felur hún fyrir eiginmanninum í
skúringafötunni.
Og æskuvinar, Jóns Johns, sam-
kynhneigðs karlmanns sem, líkt og
ungar skáldkonur, varð þess snemma
áskynja að menn eins og hann áttu
ekki vísan stað í íslensku samfélagi
þessa tíma þar sem „kynvillingar“
voru gæddir ónáttúru, jafnvel hættu-
legir börnum.
Fjórða ungmennið sem bókin
fjallar um er svo kærasti Heklu,
Starkaður, sem á þann draum heit-
astan að verða skáld en ólíkt Heklu
fær hann engar hugmyndir. Hann
ræktar þó skáldadrauminn með því
að hanga á réttum kaffihúsum, með
skáldum og listamönnum. Meðan
hann dreymir um að fá ljóð birt í
Þjóðviljanum veit hann ekki af því að
hans heittelskaða hefur fengið ljóð og
smásögur birt í blöðum, undir skáld-
anafni karlmanns sem hann og
skáldavinir hans hafa velt fyrir sér
hver – að sjálfsögðu karlmaður –
standi að baki.
Auðvelt er að fá tilfinningu fyrir ís-
lensku umhverfi ársins 1963 í Ungfrú
Ísland og þrátt fyrir að lesandi hafi ef
til vill ekki sjálfur upplifað þá tíma
dregur hann ekki í efa hreina tóna
lýsinganna. Allt frá því að Hekla stíg-
ur upp í reykmettaða rútuna sem
hossast frá æskuheimili hennar í Döl-
unum til Reykjavíkur eru dagsannar
trillur í umhverfislýsingum.
Texti Auðar Övu er bústinn af lýs-
ingum sem bregða birtu á Reykjavík
sem var; kápuklæddur konur með
vagn í köldum sólarglennum, rækju-
rönd, heklaðir dúkar, soðin ýsa,
heimavinnandi konur og útivinnandi
menn og tengdamæður sem vilja að
tengdadætur brjóti fyrir þær serví-
ettur í blævæng.
Um leið nær Auður Ava að glenna
upp örvæntingu sögupersónanna fyr-
ir lesendum eins og í opinni hjartaað-
gerð, hvort sem það er örvænting Ís-
eyjar yfir því að ekkert bíði hennar
nema eiga barn eftir barn; örvænting
Jóns Johns yfir því að geta aldrei
leitt karlmann; Heklu yfir því að hún
leyfi samfélaginu að lokum að bæla
rithöfundinn í sér og Starkaðar yfir
því að fá aldrei hugmynd. Um leið
breytir bragðvís húmorinn að-
stæðum oft í bráðfyndinn skollaleik.
Þegar Starkaður leikur skáld en veit
ekki hvaða bók skáld á að lesa þegar
það er örvinglað og endar á að rífa
fram Vídalínspostillu er lýsandi fyrir
leik höfundar að kómískum að-
stæðum sögunnar. Mun Hekla sjóða
kartöflur og búa til kjöt í karrí eins
og aðrar konur, spyr hann þegar
hann kemst loks að því að kærastan
er líka skáld.
Aukapersónurnar gefa allar sög-
unni aukaspena og úr þeim flæða
hliðarfrásagnir af mæðrum sem eiga
syni sem klára setningarnar fyrir
þær og feður sem tala bara um eld-
gos. Kjarval er þarna líka og á stutta
en eftirminnilega innkomu.
Þess má geta að kápa bókarinnar,
sem Ólafur Kristjánsson hannar, er
frábærlega vel heppnuð og skemmti-
leg vísan í kápu Helgafells sem Gísli
B. Björnsson hannaði árið 1962.
Auður Ava býður upp á allt það
besta sem bókmenntir geta boðið
upp á; frásögnin geislar af falsleysi
og ljóðrænu í senn en það sem
springur þó hvað best út í Ungfrú Ís-
land er sögumeistarinn Auður Ava.
Vegna sagnagáfunnar og þess að höf-
undur getur sagt sögur eins og sögur
verða best sagðar, með viðburðum og
persónum sem vekja tilfinningar og
forvitni um að vita meira og meira, er
Ungfrú Ísland bók sem lesandi
svolgrar í sig.
Myndir þú setja upp kartöflur?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sagnameistari „Auður Ava býður upp á allt það besta sem bókmenntir geta boðið upp á; frásögnin geislar af falsleysi og ljóðrænu í senn en það sem
springur þó hvað best út í Ungfrú Ísland er sögumeistarinn Auður Ava,“ segir rýnir og bætir við að þetta sé bók sem lesandinn „svolgrar í sig.“
Skáldsaga
Ungfrú Ísland bbbbb
Eftir Auði Övu Ólafsdóttur.
Benedikt bókaútgáfa, 2018.
Innbundin, 240 bls.
JÚLÍA MARGRÉT
ALEXANDERSDÓTTIR
BÆKUR
Holtagörðum-Lóuhólum-Akureyri-Selfossi-
Bolungarvík-Vestmannaeyjum
ÞÚ FÆRÐ
HJÁ OKKUR!
S; 537-5000 dyrarikid@dyrarikid.is
Fallega jólaskeiðin
frá ERNU
Bakhlið
Hönnuður
Ragnhildur Sif Reynisdóttir
Verð kr. 21.500
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
ERNA
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJA
Í tilefni þjóðhátíðardags og aldarafmælis fullveldis
Rúmeníu, bjóða rúmenska sendiráðið í Danmörku og
kjörræðismaður Rúmeníu á Íslandi, ásamt Bíó Para-
dís, til kvikmyndasýningar og móttöku í Bíó Paradís
í dag, fimmtudag, kl. 18. Sýnd verður kvikmyndin
Ecaterina Teodoroiu (1978) eftir leikstjórann Dinu
Cocea. Hún fjallar um konu sem barðist í fyrri
heimsstyrjöldinni. Þá er sett upp ljósmyndasýning
sem fjallar um konur í styrjöldinni. Áhugasamir
skrái sig í netfanginu midasala@bioparadis.is.
Rúmenskar konur í
heimsstyrjöldinni.
Minnast kvenna í fyrri heimsstyrjöldinni