Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 Opinn kynningarfundur um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni verður föstudaginn 16. nóvember 2018, kl. 9-11, í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á fundinum mun borgarstjóri kynna framkvæmdir og framkvæmda- áform á húsnæðismarkaði í Reykjavík en í ár verða slegin öll fyrri met í nýbyggingum íbúða. Jafnframt verður kynnt ný greining Capacent á fasteignamarkaðnum í borginni. Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.30. Allir velkomnir. Fundurinn verður sendur út á vefsíðunni reykjavik.is/ibudir Nýjar íbúðir í Reykjavík Sigtyggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hollvinasamtökum dráttarbátsins Magna hefur áskotnast aðalvél sömu gerðar og var í bátnum. Magni var smíðaður hjá Stálsmiðjunni í Reykja- vík eftir teikningum Hjálmars R. Bárðarsonar. Hann var fyrsta stál- skipið sem smíðað var á Íslandi og var tekinn í notkun í júní 1955. Hann var í eigu Reykjavíkurhafnar og notaður í áratugi. Árið 1987 var báturinn seldur einkaaðila. Það var jafnframt seinasta árið sem Magni var í rekstri, sam- kvæmt upplýsingum frá Hollvina- samtökunum. Í ferð upp í Hvalfjörð var fyrir mistök lokað fyrir smurolíu- kæli sem olli því að aðalvél skipsins bræddi úr sér. Magna var lagt í kjölfar þess og hefur hann legið í Reykjavík- urhöfn síðan. Hollvinasamtök Magna voru stofn- uð 25. júní 2017 og hafa síðan þá unnið ötullega að því að koma skipinu í upp- runalegt horf. Meginmarkmið sam- takanna eru þau að skipið verði haf- fært að nýju og geti siglt með fólk um Sundin. Í bréfi sem Hollvinsamtökin skrif- uðu Faxaflóahöfnum er því lýst hvern- ig samtökin fundu nýja vél í bátinn. Í sumar var vélin flutt til Svendborg í Danmörku. Ástand hennar var skoðað og reyndist það gott. Vélin er af ár- gerð 1968 og var í fullum rekstri fyrir ári. Vélin kostaði 400.000 dkr, eða jafn- virði 7,5 milljóna íslenskra króna. Samtökin hafa greitt 1,6 milljóna inn- borgun á vélina. „Það er mat okkar að þar sé um að ræða einstakan og raunhæfan mögu- leika á því að skipta um aðalvél í Magna og gera hann gangfæran,“ seg- ir í bréfinu til Faxaflóahafna, um leið og leitað er eftir fjárstyrk til verkefn- isins. Stjórn Faxaflóahafna frestaði af- greiðslu erindisins til næsta fundar. Magni var tekinn í slipp í febrúar á þessu ári þar sem botnhreinsun var gerð og báturinn málaður. Hafa tryggt sér nýja vél í Magna  Hollvinasamtök dráttarbátsins Magna höfðu uppi á vél í Danmörku  Gamla vélin bræddi úr sér  Draumurinn að Magni geti á ný siglt um Sundin  Söfnun hafin til að standa straum af verkefninu Morgunblaðið/Hari Magnar tveir Gamli Magni (t.h.) var tekinn upp í slipp í Reykjavík í febrúar. Nýi Magni dró hann að slippnum. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Útgefendur hljóðbóka og rafbóka óttast að frumvarp Lilju Alfreðs- dóttur mennta- og menningarmála- ráðherra um stuðning við útgáfu bóka á íslensku nái ekki til þess út- gáfuforms. Í athugasemdum við frumvarpið lýsa útgefendur yfir áhyggjum af að bókum sé mismunað vegna kostnaðar. Kostnaður nær ekki lágmarki Í athugasemd Storytel, sem fram- leiðir og gefur út um 300 bókartitla á íslensku á ári, er óskað eftir því að einum lið frumvarpsins verði breytt á þá leið að endurgreiðsluhæfur kostnaður þurfi ekki að vera ein milljón króna við hvert verk. Ann- aðhvort eigi sú upphæð við fleiri en eitt verk eða að umræddur kostn- aður verði lækkaður í 200 þúsund krónur. „Mikill meirihluti útgáfunnar er byggður á leyfismódeli þar sem bækur eru lesnar upp eftir handrit- um sem þegar hafa verið unnin en bera annað ISBN-númer en önnur útgáfuform. Kostnaður við hverja slíka bók nær ekki milljón króna lág- markinu en heildarkostnaður vegna allra bóka er margföld sú fjárhæð,“ segir í umsögn Storytel. Félag íslenskra bókaútgefenda gagnrýnir sömu grein frumvarpsins og leggur einnig til að umræddur kostnaður nái til eins verks eða fleiri. Áhyggjur af barnabókum „Einhver hluti þeirra bóka sem ár- lega koma út á íslensku uppfyllir ekki kröfur um 1.000.000 kr. kostn- að. Þar má nefna bækur ætlaðar börnum og minni rit af ýmsum toga, svo sem ljóðabækur. Það sama gildir um útgáfu flestra hljóð- og rafbóka,“ segir í umsögn félagsins. Með þess- ari breytingu væri leikurinn jafnari: „Bókum yrði síður mismunað vegna kostnaðar. Slík mismunun kemur harðast niður á barnabókaútgáfu sem jafnframt þarf einna mest á stuðningi að halda.“ Óttast að bókum verði mismunað  Áhyggjur af útgáfu hljóð- og rafbóka Morgunblaðið/Eggert Bækur Útgefendur vilja jafna leik- inn í frumvarpi um endurgreiðslu. Héraðsdómur Suðurlands úrskurð- aði í gær, að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi, 21 árs gamlan íslensk- an karlmann í farbann til 19. desem- ber nk. en maðurinn var með mikið magn af hassi í fórum sínum. Fram kemur á vef lögreglunnar á Suðurlandi að maðurinn hafi verið handtekinn þar sem hann var einn á vesturleið á Suðurlandsvegi um Mýrdalssand að kvöldi 7. nóvember sl. á vanbúinni bifreið. Reyndist maðurinn einnig vera próflaus og undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bílnum fundust tæp 6 kíló af hassi sem maðurinn kann- aðist við að vera að flytja en vildi að öðru leyti ekki skýra tilvist fíkni- efnanna. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald sem átti að renna út í dag en ekki þótti tilefni til að halda honum lengur vegna rannsókn- arinnar og var hann því látinn laus í gær en úrskurðaður í farbann. Lögreglan segir að áfram sé unn- ið að rannsókn málsins, m.a. um uppruna efnanna. Með sex kíló af hassi í bíl á Mýrdalssandi  Úrskurðaður í mánaðar farbann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.