Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 75
MENNING 75 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 Leikhús er grímudansleik-ur. Enginn er það semhann sýnist og í kraftigervisins er óhætt að bera tilfinningar sínar og sögu á op- inskáan hátt á opinberum stað. Leikhús er skel af öryggisbúnaði fyrir hættulegar sálarlífsrann- sóknir, kannski ekki ósvipað hinni óbrjótandi málmskel sem iðnjöf- urinn Tony Stark byggði utan um sjálfan sig í upprunasögu ofurhetj- unnar Iron Man, svo ekkert gæti stöðvað hann, nema þá ef gangráð- urinn sem heldur hjarta Starks gangandi verði eldsneytislaus eða bili. Þessi mótsagnakenndi og afhjúp- andi feluleikur er eitt af því sem virðist hafa kveikt sköpunarneist- ann hjá Jóni Magnúsi Arnarssyni við samsetningu Tvískinnungs. Í upphafi sígur Járnmaðurinn niður úr loftinu í gegnum klifurgrindina sem myndar kjarna leikmyndar Sigríðar Sunnu Reynisdóttur. Tæknibúnaður Litla sviðsins; ljós, hljóð og myndvarpar, fer á fullt við að sannfæra okkur um að hér sé sjálf Marvel-hetjan á ferð. Það sama gerist þegar erkióvinurinn, Svarta ekkjan, sígur einnig á svið og upphefjast orðaskylmingar þeirra á milli, sem samstundis byrja líka að brjóta upp myndina. Eru þau á grímuballi? Þekkist fólkið í búningunum, eða er kunnugleikinn leikur sem þau leika vegna gerv- anna? Eða eru þau einfaldlega leik- arar að pota í fjórða vegginn? Enn bætist í flækjustigið þegar leikararnir taka á sig gervi sviðs- manna í leikhúsinu og þá er það samband leikaranna, sem bak- tjaldafólkið horfir á utan frá, sem leynist innst í þessari matrjúsku- dúkku. Eða er það samband sviðs- mannanna sjálfra? Eða leikaranna sem leika þau? Þessi flókni spegla- salur gæti verið ættaður úr búi Jeans Genet. Tryllt og ofbeldis- þrungið neysluástarsambandið, sem reynist á endanum vera rótin, kveikjan og kjarninn í verkinu og allar spegilmyndirnar fletir á því, er líka eins og eitthvað sem hefði kveikt í því höfuðskáldi öfga og nið- urlægingar. En veldur hver á heldur. Það er ekki hægt að segja að þessi áræðna tilraun Jóns Magnúsar heppnist fyllilega. Kannski hefur gleðin yfir að henda svona marga tæknilega form-bolta á lofti villt honum og öðrum aðstandendum sýn um inni- haldið. Því miður stendur ansi margt af meðölum sýningarinnar áhrifum hennar á endanum fyrir þrifum. Þar á meðal þessi flókna vinna með dulargervi, leik og raun- veruleika, eins áhugaverð og hún er í sjálfu sér og „á pappírnum“. Það sama má segja með ofurhetjufyrir- bærið sjálft, sem slær mig eins og snjöll grunnhugmynd, en er mögu- lega of stór og of frjó til að deila sviði og tíma með öllum hinum. Til þess bendir upphafssenan sem vek- ur talsverðar væntingar og forvitni. En með því að leggja svona mikla áherslu á gervi og grímur verða persónurnar okkur fjarlægar, örlög þeirra snerta okkur síður. Annað sem nefna má sem djarfa formhugmynd sem nýtist ekki til fullnustu er hið rímaða og stuðlaða mál sem stór hluti leiktextans er skrifaður á, en Jón Magnús er í fremstu röð íslenskra ljóðaslamm- ara nú um stundir. Bundið mál er ævafornt tæki í verkfærakassa leik- hússins, en þær eru fáar tilraun- irnar til að endurvekja það í nú- tímaleikhúsi sem ná tilgangi sínum. Mig hefur lengi grunað að einhvers staðar liggi samnefnari leikhúss og fagurfræði rímnaflæðis rapps og ljóðaslamms, en ekki enn séð hann birtast á sviði og það gerðist heldur ekki í Borgarleikhúsinu að þessu sinni. Rím er enda sérlega vand- meðfarið tæki í leiktexta, skapar alltaf hættu á að einfalda, létta, jafnvel skopgera viðfangsefnin. Þá setur bundið mál leiktextahöfundi skorður í orðavali sem getur neytt hann til að orða hugsanir sínar á hátt sem þjónar hvorki persónum né erindinu. Það er varla á færi nema stórskálda að fá þennan kapal til að ganga upp fyrir nútímaáhorf- endum og það gerist ekki hér, þótt óneitanlega veki sumar hending- arnar gleði í eyra og huga. Snjallt og óvænt rím, líkingar eða mynd- mál stendur alltaf fyrir sínu. Að frátalinni fyrrnefndri upp- hafssenu með ofurhetjunum skera tvær senur sig nokkuð úr hvað varðar áhrifamátt, önnur kómískan og hin dramatískan. Í báðum hafa sviðsmennirnir orðið. Önnur virtist spunnin af leikurunum út frá dauðasenu Rómeós og Júlíu, sem tekur stöðugt á sig gróteskari myndir í frásögn og einvígi leik- aranna fyrir hönd þessara frægustu elskenda sviðsins. Og undir lokin lýsa þau fyrir okkur tveimur mögu- legum endalokum sambands per- sónanna að baki allra gervanna sem sýningin hefur borið á borð. Dramatísk endalok, en jafnframt fáfengileg. Knúin áfram, eins og lík- lega sambandið sjálft, af taumleysi neyslunnar. Sambandi sem haldið er á lífi af meðvitundarleysinu sem henni fylgir. Þessi lýsing á grunn- atburði leikritsins er sterk og áhrifarík vegna innihaldsins, sterk- ari og áhrifaríkari en tilraunirnar til að búa honum leikbúning í aðdrag- andanum. Tvískinnungur er krefjandi verk- efni fyrir leikaraparið í öllum þess- um hlutverkum sem flæða hvert inn í annað og kallast á í gegnum grím- urnar. Þau Haraldur Ari Stef- ánsson og Þuríður Blær Jóhanns- dóttir ganga af fullri einurð á hólm við textann og persónurnar. Sýn- ingin er ágeng og líkamleg, sem stundum verður á kostnað texta- vinnunnar, en rímuðu hlutarnir hefðu þurft talsvert meiri ögun og einbeitingu að möguleikum og hindrunum bundins máls. Það er óneitanlega meira áberandi hjá Haraldi Ara, sem er glæsilegur á sviði en býr sennilega ekki að sömu reynslu og Þuríður Blær í slags- málum við slíkan texta. Það er líka alltaf stjörnuára yfir Þuríði Blævi á sviði sem fangar athygli áhorfenda hvað svo sem hún er að gera eða segja. Ólafur Egill Egilsson fylgir öfg- um og formtilraunum textans eftir í sviðsetningu sinni, beitir öllum helstu vopnum ágengs nútímaleik- húss. Háværri tónlist úr smiðju Young Nazareth og fleiri, rusli og óreiðu, mat, hljóðnemum, mynd- vörpun og lýsingu Þórðar Orra Pét- urssonar þar sem fagurfræði rokk- tónleika er til hliðsjónar. Þetta er trúlega eina rétta nálgunin en óneitanlega ýtir hún innihaldinu enn frekar undir yfirborðið. Bún- ingar Sigríðar Sunnu eru flottir og viðeigandi, ofurhetjugervin sér- staklega vel útfærð. Að koma nýjum og efnilegum leikskáldum til þroska er eitt af verkefnum „stóru leikhúsanna“. Vel má halda því fram að hvorugu þeirra hafi gengið þetta sérlega vel undanfarin ár, þótt Borgarleikhúsið sé þar sjónarmun betur á vegi statt. Hér hefur verið tekin djörf ákvörð- un þar á bæ; veðjað á óreyndan höf- und, sem ef marka má kynningar- viðtöl er í viðkvæmri stöðu með sjálfan sig, auk þess að vinna á ágengan hátt með eigin sáru reynslu við smíði verksins. Útkom- an er djörf tilraun þar sem unnið er með flókið form og krefjandi mál- snið sem ekki tekst að láta vinna saman á fullnægjandi listrænan hátt. Óskandi er að Jóni Magnúsi Arnarssyni takist að stilla miðið og stæla kraftana eftir þessa eldskírn. Ástin á tímum óreglunnar Ljósmynd/Grímur Bjarnason Krefjandi „Tvískinnungur er krefjandi verkefni fyrir leikaraparið í öllum þessum hlutverkum sem flæða hvert inn í annað og kallast á í gegnum grímurnar.“ Leikarar eru Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson. Borgarleikhúsið Tvískinnungur bbmnn Eftir: Jón Magnús Arnarsson. Leik- stjórn: Ólafur Egill Egilsson. Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna Reynis- dóttir. Lýsing: Þórður Orri Pétursson. Myndbandsvinnsla: Elmar Þórarinsson. Tónlist: Young Nazareth. Hljóðmynd: Garðar Borgþórsson. Sviðshreyfingar: Katrín Ingvadóttir. Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir. Leikarar: Haraldur Ari Stefánsson og Þuríður Blær Jóhanns- dóttir. Frumsýning á Litla sviði Borgar- leikhússins 9. nóvember 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST ICQC 2018-20 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 „Þessi litlu form“ er yfirskrift fyr- irlesturs sem Gísli B. Björnsson heldur á vegum hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Ís- lands í fyrirlestrarsal A, Þverholti 11, í dag kl. 12.15. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni Gestagangur í nóvember og er að- gangur ókeypis. Í fyrirlestrinum talar Gísli um og út frá bók sinni Merki og form sem kom út síðasta sumar. „Í bók- inni fjallar hann um grundvall- arþætti í merkja- og formfræði í sögulegu sam- hengi og út frá eigin reynslu varðandi við- fangsefnið og vinnubrögð. Þar dregur Gísli einnig fram margvíslegar hugmyndir og tilraunir af eigin skissublöðum, form og tákn sem hafa verið hafa honum hugleikin og liggja að baki fjölda verka hans,“ segir í tilkynn- ingu. Þar kemur fram að hönn- unarstarfsferill Gísla spanni yfir fimmtíu ár þar sem hann hafi hannað yfir 400 merki. Gísli fjallar um merki og form Gísli B. Björnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.