Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 75
MENNING 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Leikhús er grímudansleik-ur. Enginn er það semhann sýnist og í kraftigervisins er óhætt að
bera tilfinningar sínar og sögu á op-
inskáan hátt á opinberum stað.
Leikhús er skel af öryggisbúnaði
fyrir hættulegar sálarlífsrann-
sóknir, kannski ekki ósvipað hinni
óbrjótandi málmskel sem iðnjöf-
urinn Tony Stark byggði utan um
sjálfan sig í upprunasögu ofurhetj-
unnar Iron Man, svo ekkert gæti
stöðvað hann, nema þá ef gangráð-
urinn sem heldur hjarta Starks
gangandi verði eldsneytislaus eða
bili.
Þessi mótsagnakenndi og afhjúp-
andi feluleikur er eitt af því sem
virðist hafa kveikt sköpunarneist-
ann hjá Jóni Magnúsi Arnarssyni
við samsetningu Tvískinnungs. Í
upphafi sígur Járnmaðurinn niður
úr loftinu í gegnum klifurgrindina
sem myndar kjarna leikmyndar
Sigríðar Sunnu Reynisdóttur.
Tæknibúnaður Litla sviðsins; ljós,
hljóð og myndvarpar, fer á fullt við
að sannfæra okkur um að hér sé
sjálf Marvel-hetjan á ferð. Það
sama gerist þegar erkióvinurinn,
Svarta ekkjan, sígur einnig á svið
og upphefjast orðaskylmingar
þeirra á milli, sem samstundis byrja
líka að brjóta upp myndina. Eru
þau á grímuballi? Þekkist fólkið í
búningunum, eða er kunnugleikinn
leikur sem þau leika vegna gerv-
anna? Eða eru þau einfaldlega leik-
arar að pota í fjórða vegginn?
Enn bætist í flækjustigið þegar
leikararnir taka á sig gervi sviðs-
manna í leikhúsinu og þá er það
samband leikaranna, sem bak-
tjaldafólkið horfir á utan frá, sem
leynist innst í þessari matrjúsku-
dúkku. Eða er það samband sviðs-
mannanna sjálfra? Eða leikaranna
sem leika þau? Þessi flókni spegla-
salur gæti verið ættaður úr búi
Jeans Genet. Tryllt og ofbeldis-
þrungið neysluástarsambandið, sem
reynist á endanum vera rótin,
kveikjan og kjarninn í verkinu og
allar spegilmyndirnar fletir á því, er
líka eins og eitthvað sem hefði
kveikt í því höfuðskáldi öfga og nið-
urlægingar.
En veldur hver á heldur. Það er
ekki hægt að segja að þessi áræðna
tilraun Jóns Magnúsar heppnist
fyllilega. Kannski hefur gleðin yfir
að henda svona marga tæknilega
form-bolta á lofti villt honum og
öðrum aðstandendum sýn um inni-
haldið. Því miður stendur ansi
margt af meðölum sýningarinnar
áhrifum hennar á endanum fyrir
þrifum. Þar á meðal þessi flókna
vinna með dulargervi, leik og raun-
veruleika, eins áhugaverð og hún er
í sjálfu sér og „á pappírnum“. Það
sama má segja með ofurhetjufyrir-
bærið sjálft, sem slær mig eins og
snjöll grunnhugmynd, en er mögu-
lega of stór og of frjó til að deila
sviði og tíma með öllum hinum. Til
þess bendir upphafssenan sem vek-
ur talsverðar væntingar og forvitni.
En með því að leggja svona mikla
áherslu á gervi og grímur verða
persónurnar okkur fjarlægar, örlög
þeirra snerta okkur síður.
Annað sem nefna má sem djarfa
formhugmynd sem nýtist ekki til
fullnustu er hið rímaða og stuðlaða
mál sem stór hluti leiktextans er
skrifaður á, en Jón Magnús er í
fremstu röð íslenskra ljóðaslamm-
ara nú um stundir. Bundið mál er
ævafornt tæki í verkfærakassa leik-
hússins, en þær eru fáar tilraun-
irnar til að endurvekja það í nú-
tímaleikhúsi sem ná tilgangi sínum.
Mig hefur lengi grunað að einhvers
staðar liggi samnefnari leikhúss og
fagurfræði rímnaflæðis rapps og
ljóðaslamms, en ekki enn séð hann
birtast á sviði og það gerðist heldur
ekki í Borgarleikhúsinu að þessu
sinni. Rím er enda sérlega vand-
meðfarið tæki í leiktexta, skapar
alltaf hættu á að einfalda, létta,
jafnvel skopgera viðfangsefnin. Þá
setur bundið mál leiktextahöfundi
skorður í orðavali sem getur neytt
hann til að orða hugsanir sínar á
hátt sem þjónar hvorki persónum
né erindinu. Það er varla á færi
nema stórskálda að fá þennan kapal
til að ganga upp fyrir nútímaáhorf-
endum og það gerist ekki hér, þótt
óneitanlega veki sumar hending-
arnar gleði í eyra og huga. Snjallt
og óvænt rím, líkingar eða mynd-
mál stendur alltaf fyrir sínu.
Að frátalinni fyrrnefndri upp-
hafssenu með ofurhetjunum skera
tvær senur sig nokkuð úr hvað
varðar áhrifamátt, önnur kómískan
og hin dramatískan. Í báðum hafa
sviðsmennirnir orðið. Önnur virtist
spunnin af leikurunum út frá
dauðasenu Rómeós og Júlíu, sem
tekur stöðugt á sig gróteskari
myndir í frásögn og einvígi leik-
aranna fyrir hönd þessara frægustu
elskenda sviðsins. Og undir lokin
lýsa þau fyrir okkur tveimur mögu-
legum endalokum sambands per-
sónanna að baki allra gervanna sem
sýningin hefur borið á borð.
Dramatísk endalok, en jafnframt
fáfengileg. Knúin áfram, eins og lík-
lega sambandið sjálft, af taumleysi
neyslunnar. Sambandi sem haldið
er á lífi af meðvitundarleysinu sem
henni fylgir. Þessi lýsing á grunn-
atburði leikritsins er sterk og
áhrifarík vegna innihaldsins, sterk-
ari og áhrifaríkari en tilraunirnar til
að búa honum leikbúning í aðdrag-
andanum.
Tvískinnungur er krefjandi verk-
efni fyrir leikaraparið í öllum þess-
um hlutverkum sem flæða hvert inn
í annað og kallast á í gegnum grím-
urnar. Þau Haraldur Ari Stef-
ánsson og Þuríður Blær Jóhanns-
dóttir ganga af fullri einurð á hólm
við textann og persónurnar. Sýn-
ingin er ágeng og líkamleg, sem
stundum verður á kostnað texta-
vinnunnar, en rímuðu hlutarnir
hefðu þurft talsvert meiri ögun og
einbeitingu að möguleikum og
hindrunum bundins máls. Það er
óneitanlega meira áberandi hjá
Haraldi Ara, sem er glæsilegur á
sviði en býr sennilega ekki að sömu
reynslu og Þuríður Blær í slags-
málum við slíkan texta. Það er líka
alltaf stjörnuára yfir Þuríði Blævi á
sviði sem fangar athygli áhorfenda
hvað svo sem hún er að gera eða
segja.
Ólafur Egill Egilsson fylgir öfg-
um og formtilraunum textans eftir í
sviðsetningu sinni, beitir öllum
helstu vopnum ágengs nútímaleik-
húss. Háværri tónlist úr smiðju
Young Nazareth og fleiri, rusli og
óreiðu, mat, hljóðnemum, mynd-
vörpun og lýsingu Þórðar Orra Pét-
urssonar þar sem fagurfræði rokk-
tónleika er til hliðsjónar. Þetta er
trúlega eina rétta nálgunin en
óneitanlega ýtir hún innihaldinu
enn frekar undir yfirborðið. Bún-
ingar Sigríðar Sunnu eru flottir og
viðeigandi, ofurhetjugervin sér-
staklega vel útfærð.
Að koma nýjum og efnilegum
leikskáldum til þroska er eitt af
verkefnum „stóru leikhúsanna“. Vel
má halda því fram að hvorugu
þeirra hafi gengið þetta sérlega vel
undanfarin ár, þótt Borgarleikhúsið
sé þar sjónarmun betur á vegi statt.
Hér hefur verið tekin djörf ákvörð-
un þar á bæ; veðjað á óreyndan höf-
und, sem ef marka má kynningar-
viðtöl er í viðkvæmri stöðu með
sjálfan sig, auk þess að vinna á
ágengan hátt með eigin sáru
reynslu við smíði verksins. Útkom-
an er djörf tilraun þar sem unnið er
með flókið form og krefjandi mál-
snið sem ekki tekst að láta vinna
saman á fullnægjandi listrænan
hátt. Óskandi er að Jóni Magnúsi
Arnarssyni takist að stilla miðið og
stæla kraftana eftir þessa eldskírn.
Ástin á tímum óreglunnar
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Krefjandi „Tvískinnungur er krefjandi verkefni fyrir leikaraparið í öllum þessum hlutverkum sem flæða hvert inn í
annað og kallast á í gegnum grímurnar.“ Leikarar eru Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson.
Borgarleikhúsið
Tvískinnungur bbmnn
Eftir: Jón Magnús Arnarsson. Leik-
stjórn: Ólafur Egill Egilsson. Leikmynd
og búningar: Sigríður Sunna Reynis-
dóttir. Lýsing: Þórður Orri Pétursson.
Myndbandsvinnsla: Elmar Þórarinsson.
Tónlist: Young Nazareth. Hljóðmynd:
Garðar Borgþórsson. Sviðshreyfingar:
Katrín Ingvadóttir. Leikgervi: Margrét
Benediktsdóttir. Leikarar: Haraldur Ari
Stefánsson og Þuríður Blær Jóhanns-
dóttir. Frumsýning á Litla sviði Borgar-
leikhússins 9. nóvember 2018.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
ICQC 2018-20
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
„Þessi litlu form“ er yfirskrift fyr-
irlesturs sem Gísli B. Björnsson
heldur á vegum hönnunar- og
arkitektúrdeildar Listaháskóla Ís-
lands í fyrirlestrarsal A, Þverholti
11, í dag kl. 12.15. Fyrirlesturinn
er hluti af fyrirlestraröðinni
Gestagangur í nóvember og er að-
gangur ókeypis.
Í fyrirlestrinum talar Gísli um
og út frá bók sinni Merki og form
sem kom út síðasta sumar. „Í bók-
inni fjallar hann um grundvall-
arþætti í merkja- og formfræði í
sögulegu sam-
hengi og út frá
eigin reynslu
varðandi við-
fangsefnið og
vinnubrögð. Þar
dregur Gísli
einnig fram
margvíslegar
hugmyndir og
tilraunir af eigin
skissublöðum,
form og tákn sem hafa verið hafa
honum hugleikin og liggja að baki
fjölda verka hans,“ segir í tilkynn-
ingu. Þar kemur fram að hönn-
unarstarfsferill Gísla spanni yfir
fimmtíu ár þar sem hann hafi
hannað yfir 400 merki.
Gísli fjallar um
merki og form
Gísli B. Björnsson