Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 1
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gangi áætlanir Isavia eftir munu
14,5 milljónir farþega fara um Kefla-
víkurflugvöll um miðjan næsta ára-
tug. Það samsvarar 40 þúsund far-
þegum á dag og er 45% aukning frá
áætlaðri flugumferð í ár.
Til að ráða við þessa umferð
hyggst Isavia fjárfesta fyrir á annað
hundrað milljarða á tímabilinu.
Til marks um umfangið munu ný-
byggingar verða nærri jafn margir
fermetrar og samanlagður grunn-
flötur Kringlunnar og Smáralindar.
Guðmundur Daði Rúnarsson,
framkvæmdastjóri tækni- og eigna-
sviðs Keflavíkurflugvallar, segir tíð-
indin af WOW air ekki breyta heild-
armyndinni í þessum áætlunum.
Íslendingar standi frammi fyrir
einstöku tækifæri í alþjóðaflugi.
Keflavíkurflugvöllur sé „best stað-
setta tengistöðin“ á leið yfir hafið.
Sögulegt tækifæri til vaxtar
„Það skiptir nánast engu máli
hvaðan í Bandaríkjunum og hvaðan í
Evrópu er flogið, það hentar alltaf að
fljúga í gegnum Ísland. Það kemur
því bæði til mikil eftirspurn eftir
flugi beggja vegna hafsins og einstök
staðsetning fyrir tengiflug. Við telj-
um því að núna sé tækifærið til að
verða miðstöð flugs yfir Norður--
Atlantshaf og verði það næstu 25 ár-
in,“ segir Guðmundur Daði.
Samkvæmt spánni fjölgar farþeg-
um úr 10 milljónum í ár í 14,5 millj-
ónir á rúmlega næstu sjö árum.
Guðmundur segir fyrst og fremst
horft til aukinnar flugumferðar milli
Evrópu og Bandaríkjanna. Senn
hefjist beint flug WOW air til Ind-
lands. Það sé langtímamarkmið að fá
meira beint flug til Asíu, svo sem til
Kína, Japans og Suður-Kóreu.
Hann segir áhrifin af gengisveik-
ingu krónunnar farin að birtast í
verslun á Keflavíkurflugvelli.
Fjölgi farþegum um 4,5 milljónir
má áætla að 4.500 ný störf muni
skapast á flugvellinum. Þá skapar
uppbyggingin hundruð starfa.
Keflavík verði miðstöð
flugs yfir N-Atlantshaf
Stjórnandi hjá Isavia segir Íslendinga standa frammi fyrir sögulegu tækifæri
M Ísland verði flugmiðstöð »30-32
Morgunblaðið/Eggert
Straumur Yfir þúsund farþegar fara að jafnaði um Keflavíkurflugvöll á klukkustund í ár. Talan gæti hækkað í tæplega 1.700 um miðjan næsta áratug.
Flugstöðin tvöfölduð
2018 upp úr 2025
10
milljónir
14,5
milljónir
Fjöldi farþega á ári
2018 upp úr 2025
27.000
40.000Fjöldi farþega á dag
2018 upp úr 2025
73.000
163-
178.000
Stærð flugstöðvar í m2
H
ei
m
ild
: s
pá
Is
av
ia
F I M M T U D A G U R 1 5. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 269. tölublað 106. árgangur
GÆTU OPNAÐ
SENDIRÁÐ Í
120 LÖNDUM
SJÖTUGUR OG
ENN Á HLIÐAR-
LÍNUNNI
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
KARL BRETAPRINS 12 SÉRBLAÐ 8 SÍÐURVIÐSKIPTAMOGGINN
Mýrdælingar hafa varann á sér
gagnvart Kötlu, enda er Kötlugos
ekkert gamanmál.
Reynir Ragnarsson í Vík mælir
leiðni í Múlakvísl annan hvern dag
og flýgur yfir Mýrdalsjökul tvisvar
í mánuði og tekur myndir. Þetta
gerir hann fyrir Veðurstofuna og
Raunvísindastofnun HÍ. Reynir hef-
ur oft haldið að Katla sé að undir-
búa gos. Tilfinning hans fyrir því er
sterkari nú en áður.
Hann leggur mikla áherslu á að
flóðvarnargarðurinn sem á að
vernda Vík fyrir jökulhlaupi verði
styrktur. »18-19
Sterkari tilfinning
fyrir Kötlugosi
Vanskil fyrirtækja hafa dregist
saman samkvæmt gögnum Credit-
info. Það birti í gær lista yfir fram-
úrskarandi fyrirtæki sem gerð eru
ítarleg skil í sérútgáfu Morgun-
blaðsins í dag.
Þegar borin eru saman tímabil
frá nóvember til nóvember 2016-
2017 og 2017-2018 kemur í ljós að
vanskil hafa minnkað um 0,7 pró-
sent. Á fyrra tímabilinu voru van-
skil 4,9% en 4,2% á því síðara. Hlut-
fallsleg minnkun var því 14% á milli
ára. »ViðskiptaMogginn
Vanskil fyrirtækja
minnka enn
Starfsmenn skattrannsókna-
stjóra telja að Ágúst og Lýður Guð-
mundssynir, kenndir við Bakkavör,
séu eigendur aflandsfélagsins Dek-
hill Advisors Ltd. Þetta kemur fram
í nýrri bók Þórðar Snæs Júlíus-
sonar; Kaupthinking, bankinn sem
átti sig sjálfur. Dekhill Advisors er
annað aflandsfélaganna sem högn-
uðust um milljarða við einkavæð-
ingu Búnaðarbankans árið 2003. Í
fyrirspurnum rannsóknarnefndar
Alþingis um einkavæðingu bankans
sögðust Bakkavararbræður ekki
kannast við félagið. »16
Taldir eigendur
Dekhill Advisors
Morgunblaðið/Heiddi
Bakkavör Lýður og Ágúst Guðmundssynir
könnuðust ekki við Dekhill Advisors.
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504