Morgunblaðið - 15.11.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Starfsmenn embættis skattrann-
sóknarstjóra ríkisins telja að eig-
endur aflandsfélagsins Dekhill Ad-
visors, sem hagnaðist á Hauck &
Aufhäuser-fléttunni við sölu ríkisins
á Búnaðarbankanum, séu Ágúst og
Lýður Guðmundssynir, kenndir við
Bakkavör. Þetta kemur fram í nýrri
bók Þórðar Snæs Júlíussonar, rit-
stjóra Kjarnans, „Kaupthinking,
bankinn sem átti sig sjálfur“ sem
kemur út í dag.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis um þátttöku þýska bankans
Hauck & Aufhäuser í einkavæðingu
Búnaðarbanka Íslands árið 2003,
kemur fram, að
þeir bræður
sögðu sig ekki
reka minni til at-
riða sem tengdust
félaginu Dekhill
Advisors. Rann-
sóknarnefndin
komst að því að
stjórnvöld, al-
menningur og
fjölmiðlar hefðu
verið blekkt við
sölu Búnaðarbankans og að aðkoma
Hauck & Aufhäuser að kaupum á
helmingshlut í Búnaðarbankanum
hefði einungis verið til málamynda en
Kaupþing fjármagnað kaupin að
fullu.
Ágóðinn sat á aflandseyju
Féð til kaupanna á Búnaðarbank-
anum kom frá Kaupþingi í gegnum
aflandsfélagið Welling & Partners á
Bresku Jómfrúaeyjum. Hlutabréfin,
sem Hauck & Aufhäuser keypti til
málamynda, voru síðar seld nokkrum
árum seinna með milljarða króna
hagnaði sem varð eftir á bankareikn-
ingi Welling & Partners hjá Hauck &
Aufhäuser. Snemma árs 2006 var
þessi hagnaður greiddur til tveggja
aflandsfélaga. Annað þeirra var Mar-
ine Choice Limited, í eigu Ólafs
Ólafssonar, sem kenndur er við Sam-
skip, sem hagnaðist um 3,8 milljarða.
Hitt félagið var Dekhill Advisors en
treglega hefur gengið að staðfesta
eignarhald félagsins.
Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar
kom fram að Belginn Karim Van den
Ende hefði aðstoðað Kaupþings-
menn með stofnun aflandsfélaganna
og útvegaði hann m.a. félagið Welling
& Partners. Segir síðan í skýrslunni:
„18. janúar 2006, millifærði Hauck &
Aufhäuser samkvæmt beiðni Welling
& Partners 46,5 milljónir Banda-
ríkjadala [2,9 milljarðar á þávirði] inn
á reikning aflandsfélags með heitinu
Dekhill Advisors Ltd. Sú símgreiða
var send í gegnum tilgreindan
bankareikning í útibúi svissneska
bankans Julius Bär & Co í Zürich til
Dekhill sem endanlegs viðtakanda
hjá útibúi sama banka í Genf.“
Dekkhill Advisors var þá skráð á
Tortóla en rannsóknarnefnd Alþingis
tókst ekki að afla upplýsinga um
raunverulega eigendur þessa félags
eða afdrif þessara fjármuna eftir
greiðsluna. Í bók sinni rifjar Þórður
Snær upp tilvitnun í Bryndísi Krist-
jánsdóttur skattarannsóknarstjóra
um að embættið telji sig hafa trú-
verðugar vísbendingar um hvaða að-
ili/aðilar séu á bak við Dekhill en op-
inberar síðan hvaða aðilar embættið
telur það vera.
„Hér er hægt að opinbera það í
fyrsta sinn að þeir sem starfsmenn
skattrannsóknarstjóra telja að séu
endanlegir eigendur Dekhill Advis-
ors eru bræðurnir Ágúst og Lýður
Guðmundssynir,“ skrifar Þórður.
Dekhill enn virkt árið 2016
RÚV greindi frá því í fyrra að fé-
lagið virtist enn virkt löngu eftir
hrun. „Fyrir liggur að einhver var
enn að notast við Dekhill Advisors
mörgum árum eftir hrun. Í desember
2009 gerði félagið handveðssamning
við svissneska bankann Julius Bäer
vegna fjármálagjörnings sem það var
að taka þátt í. Gögn sýna síðan að
Dekhill Advisors var enn til og virkt í
lok september 2016,“ skrifar Þórður.
Árið 2018 fékk embætti skattrann-
sóknarstjóra þau svör frá sviss-
neskum yfirvöldum að frá þeim væri
engar upplýsingar að hafa um það
hver væri eigandi Dekhill Advisors.
Ástæðan væri sú að eigendur félags-
ins lögðu fram vottorð þess efnis að
þeir væru ekki skattskyldir á Íslandi
og þar af leiðandi töldu yfirvöld í
Sviss sig ekki geta veitt embættinu
upplýsingar. „Sá aðili sem veitti stað-
festinguna, sem það vottorð er byggt
á er ríkisskattstjórinn á Íslandi,“
segir í bókinni.
Lengi leitað að eigendum
Endalausar getgátur hafa verið
uppi um hver eða hverjir væru raun-
verulegir eigendur Dekhill Advisors.
Ólafur Ólafsson sagði á fundi stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefndar í kjölfar
skýrslu rannsóknarnefndarinnar að
hann hefði ekki hugmynd um hver
ætti félagið. „Ég væri ánægður ef ég
gæti sagt þér það,“ sagði Ólafur og
bætti við að það ætti að spyrja stjórn-
endur Kaupþings og Hauck Aufhäu-
ser, við hvern þeir gerðu samning.
Fjárfestirinn Björgólfur Thor
Björgólfsson birti pistill á vefsíðu
sinni nú í haust þar sem hann sagðist
telja sig vita hverjir eigendur þess
væru. „Því er vandlega haldið leyndu
fyrir skattrannsóknarstjóra hverjir
eiga Dekhill Advisors, en ýmsir sem
þekkja þokkalega til hafa hvíslað því
að mér að þar að baki séu stærsti
hluthafi og æðstu stjórnendur Kaup-
þings,“ skrifaði Björgólfur.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, sagði við
mbl.is í fyrra að hann taldi sig geta
fullyrt að hann hefði ekki heyrt
minnst á félagið Dekhill Advisors
Limited, fyrr en í bréfi rannsókn-
arnefndar Alþingis sem hann fékk í
mars 2017. Hann sagði það sama við
rannsóknarnefnd Alþingis en Hreið-
ar var aðstoðarforstjóri Kaupþings á
þeim tíma sem kaupin fóru fram.
Úr matvælum í viðskipti
Í bókinni er uppgangur Bakkavar-
arbræðra í íslensku viðskiptalífi m.a.
rakinn en þeir keyptu hlut í eign-
arhaldsfélaginu Meiði við lok árs
2002, eftir að hafa upphaflega hagn-
ast á matvælafyrirtækinu Bakkavör.
Meiður var áður í eigu átta spari-
sjóða og var notað til að hýsa eign-
arhlut þeirra bræðra í Kaupþingi.
„Í október 2002, á sama tíma og
meintir fundir lykilmanna úr S-
hópnum [kaupendur Búnaðarbank-
ans] og Kaupþingsmanna um vænt-
anlega sameiningu áttu sér stað í
Kringlunni, setti Kaupþing eign sína
í sjálfu sér inn í eignarhaldsfélagið
Meið sem átti eftir það 15,7 prósent í
Kaupþingi,“ ritar Þórður en Kaup-
þing mátti samkvæmt lögum ekki
eiga meira en tíu prósent í sjálfu sér
og því var ljóst að fyrirtækið þurfti
að selja sinn hlut í Meiði. Fór sú sala
fram nokkrum dögum áður en geng-
ið var frá kaupum á Búnaðarbank-
anum. „Kaupin voru fjármögnuð af
Kaupþingi og kaupandinn var Bak-
kabraedur Holding, félag í eigu
bræðranna Lýðs og Ágústar.“
Sterk tengsl við Kaupþing
Rekur Þórður tengsl bræðranna
við Kaupþing en þeir höfðu verið við-
skiptavinir Kaupþings um skeið og
sterk tengsl höfðu skapast á milli
þeirra þegar kom að sölu á hlut
bankans í Meiði. „Kaupverðið var 2,4
milljarðar króna, eða nánast sama
upphæð og Hauck & Aufhäuser
greiddi fyrir sinn meinta hlut í Bún-
aðarbankanum.
Kaupþing lánaði því Bakka-
vararbræðrum til að kaupa hluti í
sjálfum sér. Peningarnir sem
Bakkavararbræður greiddu Kaup-
þingi (og fengnir voru að láni frá
sama banka) nýttust svo til að lána
Welling & Partners á Bresku Jóm-
frúaeyjum sem lánaði Hauck & Auf-
häuser til að þykjast kaupa hlut í
Búnaðarbankanum,“ segir í bók
Þórðar. „Bræðurnir urðu þannig
með sín 55% hlut í Meiði meðal
stærstu eiganda hins sameinaða
banka eftir kaup Kaupþings á Bún-
aðarbankanum.“
Síðar var nafni Meiðs breytt í Ex-
ista og var það ásamt Kjalari hf., fé-
lagi Ólafs Ólafssonar, stærsti eigandi
Kaupþings. Héldu þeir eignarhlut
sínum fram að falli bankans í októ-
ber 2008.
„Við blasir að hvorugur aðilinn
borgaði neitt eigið fé fyrir þann hlut
sem hann eignaðist í Kaupþingi. Þeir
lögðu ekki fram eina krónu. Allir
hlutaðeigandi efnuðust stórkostlega
á þessum tíma. Exista varð að mörg
hundruð milljarða króna fjárfesting-
arfélagaskrímsli. Ólafur Ólafsson
varð einn ríkasti og valdamesti mað-
ur landsins. Í árslok 2003 voru eignir
Kjalars, fjárfestingarfélags Ólafs,
metnar á 3,2 milljarða króna. Tveim-
ur árum síðar voru þær metnar á 85
milljarða króna,“ ritar Þórður Snær
Júlíusson.
Bakkavararbræður taldir eiga Dekhill
Bók um Kaupþing banka kemur út í dag Eigendur aflandsfélagsins Dekhill Advisors ltd., sem
hagnaðist á sölu Búnaðarbankans, eru taldir vera Lýður og Ágúst Guðmundssynir í bókinni
Morgunblaðið/Heiddi
Bakkavararbræður Lýður og Ágúst Guðmundssynir, kenndir við Bakkavör, eru taldir eigendur aflandsfélagsins
Dekhill Advisors, samkvæmt nýrri bók Þórðar Snæs Júlíussonar; Kaupthinking, bankinn sem átti sig sjálfur.Þórður Snær
Júlíusson
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um þátttöku
Hauck & Aufhäuser í einkavæðingu Búnaðarbanka
Íslands árið 2003 kemur fram að nefndinni tókst
ekki að afla upplýsinga um eigend-
ur Dekhill Advisors ltd. en voru að-
ilar tengdir Kaupþingi taldir líklegir.
Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari
og Kjartan Bjarni Björgvinsson, sem
nú er héraðsdómari, fóru fyrir
nefndinni. Í niðurstöðum þeirra
segir meðal annars að „við rann-
sókn nefndarinnar komu ekki fram
upplýsingar um raunverulega eig-
endur síðastnefnda félagsins [Dek-
hill Advisors]. Með vísan til þess að
Kaupþing hf. lagði fram fjármuni til þeirra viðskipta
sem baksamningarnir lutu að, bar í reynd alla fjár-
hagslega áhættu af baksamningunum og að öðru
leyti annars sem rakið hefur verið í skýrslunni varð-
andi þátt starfsmanna Kaupþings hf. í gerð og síðari
framkvæmd hinna leynilegu baksamninga telur
nefndin þó að líkur standi til þess að Kaupþing sjálft
eða aðilar því tengdir hafi verið raunverulegir eig-
endur Dekhill Advisors eða notið þeirra fjármuna
sem þangað runnu.“
Í svarbréfum Sigurðar Einarssonar, Kristínar Pét-
ursdóttur og Steingríms Kárasonar var spurningum
nefndarinnar um Dekhill Advisors ekki svarað sér-
staklega.
Í bréfum Sigurðar Einarssonar, Hreiðars Más Sig-
urðssonar, Steingríms Kárasonar og Magnúsar Guð-
mundssonar var hins vegar fullyrt að þeir hefðu
aldrei sjálfir notið fjárhagslegs ávinnings af við-
skiptum sem tengdust þeim baksamningnum sem
fyrirspurnir til þeirra lutu að. „Þá hafa þeir Lýður og
Ágúst Guðmundssynir svarað fyrirspurnum nefnd-
arinnar um félagið á þann veg að þá reki ekki minni
til atriða sem því tengjast,“ segir í skýrslunni.
Aðilar tengdir Kaupþingi taldir líklegir eigendur
RANNSÓKNARNEFND ALÞINGIS UM ÞÁTTTÖKU HAUCK & AUFHÄUSER
Kjartan Bjarni
Björgvinsson