Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 53
ásamt mökum þeirra og börnum færðu henni mikla lífsfyllingu og gleði. Við kveðjum frænku okkar með virðingu og þakklæti og sendum Agli, Sveini Yngva og Tryggva Þóri og fjölskyldum þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Tryggvi, Stefán, Haraldur og Magnús. Brynja Tryggvadóttir, eða Stella frænka eins og hún var kölluð, hefur nú kvatt þetta líf eða tilverustig, eins og afi Tryggvi hefði viljað kalla það. Mig langar að minnast hennar í nokkrum orðum, því hún var mér náin, kær og ómetanleg stoð yfir langan tíma. Eftir frá- fall föður míns og bróður henn- ar var hún mér nánast sem önn- ur móðir. Stella tók mér unglingnum alltaf opnum örm- um, sem oft var þaulsætin á síð- kvöldum í alls konar fullorðins- spjalli. Síðar var elsta dóttir mín kærkomin á heimili hennar og átti góðar stundir með sonar- dætrum hennar. Ég tel mig hafa kynnst vel persónuleika hennar og gildismati, sem var mér fal- leg fyrirmynd. Hún hafði þægi- lega nærveru, bar sig tígulega og fötin voru fallegri á henni en öðrum. Brynja lifði hófsömu lífi, var mikill fagurkeri og bar heimili hennar þess glöggt merki. Hún unni bókmenntum og las mikið, en tónlistin var hennar ástríða. Hún nam píanó- leik hjá Árna Kristjánssyni, en bætti síðar við sig námi hjá Margréti Eiríksdóttur, til að gera píanókennslu að sínu ævi- starfi. Hún kenndi bæði á heim- ili sínu og í Nýja tónlistarskól- anum, þar sem hún eignaðist góða vini. Sjálf elskaði hún að spila á flygilinn sinn heima í stofu. En í stóra samhenginu vafðist forgangsröðunin ekki fyrir henni, því augljóslega var stærsta hlutverkið í lífi hennar að rækta fjölskylduna, vera eig- inkona, móðir og amma. Afkom- endurnir hafa notið mikillar elsku og umhyggju þeirra Egils, sem alltaf voru til staðar. Ég og mínir fengum líka að njóta. Ég votta Agli, eftirlifandi eig- inmanni Brynju, sonunum Sveini Yngva og Tryggva Þóri og fjölskyldum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur og þakka kærri frænku fyrir sam- fylgdina. Valgerður. Hún elsku Stella er búin að yfirgefa þessa jarðvist. Svo góð, göfug og falleg sál fer áreið- anlega til æðra tilverustigs. Við vorum systradætur og mjög nánar vinkonur. Hún var eins og systir okkar systranna, mín og Helgu Heiðar. Sem börn lærðum við á píanó hjá sama kennara, Gunnari Sigurgeirs- syni, en fórum síðar til annarra kennara. En sem fullorðnar kenndum við báðar og samtímis við Nýja tónlistarskólann í ára- raðir. Það var yndislegt að heimsækja Stellu og Egil á þeirra fallega og listræna heim- ili, að ógleymdum garðinum, yndi Stellu, allt ber þar vott um listhneigð þeirra hjóna og smekkvísi. Þau voru öðlingar heim að sækja og svo voru þau svo einstaklega skemmtileg hjón. Oft voru þau löng, símtölin okkar Stellu, því við höfðum um svo margt að tala. Eitt sinn fyr- ir löngu, fyrir farsímann, hringdi síminn og Jóhann sonur minn svaraði. Sagði svo kíminn „mamma, það er Stella“, rétti mér tólið og sagði svo „sé þig með vorinu“, þetta var í októ- ber. Ég tel það mikla gæfu fyrir yndislega syni Stellu og Egils, þá Svein Yngva og Tryggva Þóri, að hafa eignast svona frá- bæra foreldra. Þeirra missir, Egils og allrar fjölskyldunnar er mikill og ég sakna hennar sár- lega. Egill annaðist Stellu af svo einstakri umhyggju í veikindum hennar að það var með eindæm- um. Ég votta öllum aðstandend- um Stellu mína dýpstu samúð en minningin um hana varir og er góð og hlý. Unna. Guðrún Birna Hannesdóttir. Mig langar að minnast Brynju Tryggvadóttur sem aldrei var kölluð annað en Stella og var öll mín bernskuár órjúf- anlegur hluti tilverunnar, en hún var gift Agli móðurbróður mínum og bjuggu fjölskyldurnar í sama húsi við Sólvallagötu. Við Tryggvi frændi minn vorum jafnaldrar og bestu vinir þannig að samgangur var eðlilega mjög mikill. Ekki er víst að alltaf hafi allt verið með ró og spekt í hús- inu því við frændurnir vorum reyndar fimm, allt strákar á sprækasta aldri og í ofanálag áttum við bræður óuppalinn hund. Stella var góður píanó- leikari og kenndi á flygil heima og eflaust hefur hún oft þurft að brynja sig þolinmæði þegar læt- in keyrðu um þverbak, en aldrei minnist ég þess að hún hafi ver- ið að skamma okkur og var hún mér reyndar alltaf sérlega góð. Gott dæmi um það er þegar við Tryggvi höfðum tekið málstað indíána og vorum indíánar í bófahasar, en búningar við hæfi voru ekki á hverju strái í þá daga. Þá gerði Stella sér lítið fyrir og saumaði á okkur vand- aða indíánabúninga með kögri og ýmsum indíánatáknum og gladdi það barnshjartað mikið. Reyndar voru búningarnir svo flottir að aldrei hef ég tímt að farga eða gefa búninginn minn. Ekki þótti heldur tiltökumál að kippa manni með í sumarfrí og þá ekki í neinn skreppitúr, held- ur í eftirminnilega ævintýraferð alla leið vestur á Ísafjörð sem var langt og seinlegt ferðalag eftir vondum malarvegum og tímafrekt eftir því. Þegar ég var um fermingu fluttust Stella og Egill ásamt strákunum í Teigagerði og bjuggu þar upp frá því. Fyrstu árin var ég hálfgerður heima- gangur þar og hélt áfram að venja komur mínar þangað langt fram á fullorðinsár. Alltaf var manni tekið fagnandi, boðið í kaffi og svo var alltaf tími til að spjalla. Ekki finnst mér langt síðan þetta var en tíminn hefur liðið hratt og síðast þegar ég hitti Stellu var hún orðin veik af þeim sjúkdómi sem hún að lok- um laut í lægra haldi fyrir. Ég minnist hennar sem ljúfrar og skemmtilegrar manneskju sem svo sannarlega átti alla tíð stað í hjarta mínu. Ég kveð hana með þakklæti og við fjölskyldan vottum Agli, Tryggva, Sveini og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Pétur Sævald Hilmarsson. Í dag, 15. nóvember, er Brynja Tryggvadóttir lögð til hinstu hvílu. Brynja var píanó- kennari við Nýja tónlistarskól- ann frá stofnun hans 1979 allt til ársins 2003. Hún var ákaflega farsæll kennari og hlúði vel að nemendum sínum og var þeim góð fyrirmynd. Hún var natin og fylgin sér í hvívetna og báru nemendur mikla virðingu fyrir henni. Brynja var sterkur per- sónuleiki, skemmtilegur kollegi og hafði fínan húmor og skaut oft skondnum athugasemdum inn í umræðuna. Hún var alveg sérstaklega fáguð í framkomu við nemendur, foreldra og starfsfólk skólans, svo eftir var tekið. Við kennarar og stjórn- endur Nýja tónlistarskólans minnumst hennar með þakklæti og hlýhug og sendum eigin- manni, sonum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Fyrir hönd starfsfólks Nýja tónlistarskólans, Sigurður Sævarsson. MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 ✝ Richard Krist-jánsson fædd- ist 5. maí 1931 á Brekkuvöllum á Barðaströnd. Hann lést 7. nóvember 2018. Foreldrar hans voru þau Kristján Ólafsson og Lilja Kristófersdóttir. Systkini Richards eru Sæmundur, Edvard, Leifur, Grétar og Elsa. Leifur lifir systkini sín. Richard kvæntist Stellu Gísladóttur, f. 18. júní 1939, d. 15. nóvember 2017. Börn þeirra eru: 1) Guðrún, f. 1959, gift Gunnari Brynjólfssyni, þeirra synir eru tveir, Brynjólfur Árni og Guðni Páll, kvæntur Auði Ásgeirsdóttur, þau eiga Dag Gunnar og Bjarka Storm. 2) Árný, f. 1960, var gift Friðriki Dungal, hann er látinn. Synir þeirra eru Richard Þór og Árni Kristinn, hann er látinn. Giftist síðar Ívari Atlasyni og eiga þau einn son, Elliða. 3) Gísli, f. 1962. Kvæntist Sigríði Halldórs- dóttur, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Halldór Fannar og Stella Valdís. 4) Vignir, f. 1963. Kvæntist Unni Ýri Björns- dóttur, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Axel Kári og Fjalar Orri og fóstur- sonur Vignis er Trausti Björn. 5) Fjalar, f. 1969, d. 1993, var í sambúð með Svanhvíti Yngvadóttur, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Friðrik og Lilja Margrét. 6) Frosti, f. 1973, var í sambúð með Hjör- dísi Gígju Brandsdóttur, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Hlífar Máni, Anton Breki og Emma Dögg. Kvæntist Auði G. Sigurðardóttur. Fósturbörn Frosta eru Gunnar Logi, Júlí Ósk og Unnar. Richard starfaði við sjó- mennsku á Patreksfirði, starf- aði síðan hjá Olíuverslun Ís- lands á Patreksfirði og ók þar olíubílnum. Eftir að hann flutti suður til Reykjavíkur keyrði hann strætisvagn hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur, þá vann hann um tíma á sanddælu- skipum hjá Björgun. Síðast var hann stöðvarstjóri gasstöðvar Skeljungs í Skerjafirði. Útför Richards fer fram frá Seljakirkju í dag, 15. nóvember 2018, klukkan 15. Í dag kveðjum við föður, tengdaföður, afa og langafa, Richard Kristjánsson. Hann andaðist 7. september og er jarðsunginn í dag, 15. nóvember, sem er dánardagur eiginkonu hans. Það varð tæpt ár á milli þeirra hjóna en Stella and- aðist 15. nóvember 2017. Hann var alla tíð kallaður Rikki en á Patreksfirði var hann Rikki á olíubílnum. Rikki var nat- inn við að gera sjálfur við sína bíla. Vann um árabil hjá Vél- smiðjunni Loga á Patreksfirði og öll meðhöndlun á alls konar verk- færum, tækjum og tólum æfðist þar vel. Rikki var mikill snyrti- pinni og handlék þvottakústa, bóntuskur og afþurrkunarklúta með stílbrigðum þannig að kol- svartur Bensinn var hreinn og glansandi þó að hvorki væru göt- urnar á Patreksfirði malbikaðar né vegir Barðastrandarsýslu og nærsveita, þegar þau bjuggu á Patró. Rikki var sjómaður eins og margir sem bjuggu á lands- byggðinni, þar sem athafnalífið snerist einkum um fisk. Rikki og fjölskylda fluttu svo suður. Rikki og Stella áttu marga húsbíla í gegnum tíðina og ferð- uðust mikið á þeim. Var yfirleitt farinn einn hringur um landið á hverju sumri, auk þess sem ferðast var flestar helgar. Þau áttu góða og trausta ferðafélaga sem voru í samfloti með þeim í lengri og skemmri ferðum. Eitt sumar fór hópurinn til Færeyja. Það fór afskaplega vel um þau í síðasta bílnum sem þau áttu, en þau keyptu hann nýjan, með inn- réttingu sem hentaði þeim vel. Skemmtilegt og eftirminnilegt var fjölskylduferðalagið þegar farið var á ættarmót að Núpi í Dýrafirði. Keyrt var í fyrsta áfanga að Laugum í Sælingsdal, þar sem fór vel um Rikka og Stellu inni í hlýjum og vistlegum húsbílnum og ekki síður um litlu fjölskyldurnar þeirra sem klæddu sig vel fyrir nóttina, áður en tjaldrennilásarnir voru dregn- ir niður og tjöldum lokað. Um morguninn vöknuðu allir eld- snemma við að Rás 1 var frekar hátt stillt inni í húsbílnum. Rikki og Stella voru þá að undirbúa að taka á móti litlu fjölskyldunum sem voru í tjöldum í námunda við húsbílinn. Rikki hafði sinn hátt á að kalla okkur til morgunverðar. Það væri orðið tímabært að fara svo að leggja af stað að Núpi. Jú, við höfum alltaf haft gaman af sögunni þegar við fórum út að borða svona í morgunsárið á tjaldstæðinu í Sælingsdal. Rikki og Stella töluðu með miklum söknuði um þann góða og skemmtilega tíma sem þau áttu í góðra vina hópi þegar þau ferð- uðust frjáls á húsbílnum, bæði hætt að vinna og engar sérstakar skyldur sem biðu heima. Ávallt var þess vel gætt að hádegis- maturinn væri á réttum tíma svo hægt væri að leggja sig á meðan fréttir voru lesnar á Rás 1, sama hvort þau voru að ferðast eða voru bara heima. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Guðrún Richardsdóttir Gunnar Brynjólfsson Guðni Páll Gunnarsson og Auður Ásgeirsdóttir Brynjólfur Árni Gunnarsson Dagur Gunnar Guðnason Bjarki Stormur Guðnason. Richard Kristjánsson ✝ Elín SigurlaugHaraldsdóttir- fæddist 13. október 1935 á Völlum á Seltjarnarnesi. Hún lést 21. október 2018 á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli. Foreldrar hennar voru Har- aldur Erlendsson, f. 1906, d. 1988, frá Ketilvöllum í Laug- ardal og Anna Elísabet Elí- mundardóttir, f. 1905, d. 1956, frá Dvergasteini á Hellissandi. Að loknu skydunámi við barnaskólann á Seltjarnarnesi gekk Elín í Kvennaskólann í Reykjavík. Eftir það fékk hún fljótlega vinnu við Útvegsbank- ann og starfaði þar uns hún komst á eftirlaun. Elín hafði fyrr á árum mikinn áhuga fyrir svifflugi og lauk þar öllum stig- um sem hægt var að ljúka. Hún tók einnig skriflegt flugmannspróf en flaug ekki nógu marga tíma til að fá flugmannsréttindi, enda mjög dýrt. Eftir lát móður sinnar hélt El- ín heimili með föður sínum, lengstum í Hamrahlíð 35. Undir lokin bjó hún á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli. Hún var alla tíð ógift og eign- aðist ekki börn. Jarðarförin fór fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. Nú er hátíð á himnum. Hún er komin heim. Ég kynntist Elínu fyrir um það bil ári síðan í gegnum bróður hennar Erlend Haraldsson. Strax við fyrstu sýn sá ég hana sem fal- lega konu með klassískt andlit, há kinnbein og hárið rennislétt í axl- arsídd. Líkaminn var grannur. Raunar var hún sjúklega grönn þegar ég kynntist henni, en per- sónuleiki hennar var mjög sterkur og ákveðin var hún og greind. Þar voru bersýnilega persónutöfrar og lífsreynsla á ferð. Aristóteles hefði sagt um hana að hún hefði haft „klassa“. Enginn hefur getað lýst því fyrr eða síðar eins og hann hvað það er. En það var eitthvað eins og grátt ský yfir henni. Einhvers konar djúp sorg. Seinna sagði Erlendur mér að hún hefði orðið fyrir miklu áfalli um tvítugt. Mig grunar að það hafi verið ástarsorg, en núna er það Guð einn og hún, sem veit hvað það var. En eitt er víst að vegir hjartans svo sem vegir Guðs eru órannsakanlegir og ekki fyrir okk- ur að skilja. Við vitum aðeins að við fæðumst inn í þennan heim til að þroska sálina og deyjum svo að loknum lærdómi á vit hins ókunna. Í þann tíð, þegar Elín var ung, var ekki um áfallahjálp að ræða. Fólk þurfti að harka af sér og bera harm sinn í hljóði. Þó var veitt sjúkrahúsinnlögn í erfiðustu til- fellum og Elínar var eitt slíkt. Svo virtist sem hún hefði aldrei beðið þess bætur sem fyrir hana kom. Elín gekk í barnaskólann á Sel- tjarnarnesi og síðar í Kvennaskól- ann í Reykjavík. Hún lærði svifflug á unga aldri og lauk öllu bóklegu námi, en aftur komu vonbrigði inn í hennar líf, því hún hafði ekki efni á að ljúka verklegu flugnámi. Hún vann í Búnaðarbankanum flest sín fullorðinsár eða þar til hún fór á eftirlaun. Það sannaði hve manns- andinn getur verið sterkur að yf- irstíga erfiðleika og þrautseigja hennar var mikil. Elín var ógift og barnlaus. Hún var mikill fagurkeri og klæddist fallegum fötum sem fóru henni alltaf vel. Hún var mikill náttúru- unnandi og átti margar góðar stundir með bróður sínum, Er- lendi, í sumarbústað hans við Laugarvatn, að snyrta trén hans, en hann hefur komið upp miklum skógi kringum bústaðinn og svo naut hún þess að mála með honum bústaðinn hér og þar og gera allt fallegt innanhúss. Elínar verður sárt saknað af öllum þeim sem þótti vænt um hana, en hún er nú loksins laus við allar andlegar og líkamlegar þján- ingar og því ber að fagna. Elsku Elín, við kveðjum þig með þökk fyrir jarðvistina og góð kynni. Er líður þú inn í ljóssins heima líkni þér englafjöld. Megi góður Guð þig geyma og gleðin taka völd. (Björg) Björg Jakobsdóttir. Elín Sigurlaug Haraldsdóttir Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, afi og langafi, JÓN RAFNS ANTONSSON byggingatæknifræðingur, Jakaseli 20, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 7. nóvember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 19. nóvember klukkan 11. Guðrún Clausen Sólveig Andrea Jónsdóttir Hilmir Víglundsson Svava Hróðný Jónsdóttir Stefán Jónsson Guðrún A. Sólveigardóttir Þorbjörn Þór Sigurðarson Svava Jónsdóttir afa- og langafabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA ÞÓRÐARDÓTTIR, Glerárholti, Akureyri, lést þriðjudaginn 6. nóvember á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 19. nóvember klukkan 10.30. Þórður Rist Lára Jósefína Jónsdóttir Jóhann Pálsson Rist Brynhildur Pétursdóttir Kristín Laufey Ingólfsdóttir Stefán Hlynur Björgvinsson ömmu- og langömmubörn Mín ástkæra eiginkona, ÁSDÍS BERG MAGNÚSDÓTTIR, andaðist á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar mánudaginn 5. nóvember. Útför hennar verður gerð frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 17. nóvember og hefst athöfnin klukkan 14. Þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir að láta slysavarnadeildina Unni njóta þess. Hermann Ármannsson og aðrir aðstandendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.