Morgunblaðið - 15.11.2018, Page 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Síðumúli 13 • 108 Reykjavík • 552 9641 • seimei.is
seimeiisland • seimei.is
Opið mánud.-fimmtud. kl. 12-18, föstud. og laugard. kl. 12-16
Tilboðsdagar
15.-17. nóvember
15%
afsláttur
af húsgögnum
í verslun20%
afsláttur
af smávöru
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gefðu þér tíma til þess að skoða
málin frá öllum hliðum áður en þú ákveður
hvað til bragðs skal taka í erfiðu máli sem
tengist vinnunni.
20. apríl - 20. maí
Naut Það má alltaf græða á samtali við
góðan mann, einkum ef hann deilir áhuga-
málum með þér. Reyndu að brosa og sýna
öðrum þolinmæði.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt það til að ganga of langt í
samskiptum við aðra. Meðtaktu mistök þín
og reyndu að gangast við misfellunum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur unnið mikið að undan-
förnu og þarft því á einveru og hvíld að
halda. Sýndu mönnum tillitssemi og leyfðu
þeim að segja sitt, ef þú vilt á annað borð
vinna trúnað þeirra og fylgi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki einhverja smámuni ná helj-
artökum á þér. Brettu upp ermarnar og
náðu stjórn á málunum eins og þér er gef-
ið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu í þér heyra og framkvæmdu af
dirfsku, með því skaparðu stígandi og gerir
eitthvað gáfulegt án þess að fatta það.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hugmyndir yfirboðara verða þér
hvatning til að gera endurbætur í vinnunni.
Láttu ekki aðra stjórna gjörðum þínum
hvað þetta snertir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er rétti tíminn til að hlúa
að nánasta sambandi þínu. Sýndu þolin-
mæði og skilning og sannaðu mál þitt með
rökum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú getur varla beðið eftir að
segja öðrum frá einhverri uppgötvun sem
þú hefur gert í starfi. Metnaður er góður og
því vilja margir njóta félagsskapar þíns.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki láta hlutina vaxa þér í aug-
um. Hvað hrinti af stað vissum atburði
skiptir minna máli en að bregðast við hon-
um.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er ýmislegt sem þig langar
til þess að kanna og þú ættir að athuga
möguleikana á að láta það eftir þér.
Reyndu að laga þig að þeim hraða sem er í
lífi þínu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ef ágreiningur rís meðal fjölskyldu-
meðlima þarf að komast að málamiðlun.
Fyrir fólkið í kringum þig skiptir álit þitt
máli.
Í „Bragfræði og háttatali“ Svein-bjarnar Beinteinssonar segir að
til sé gömul vísa ort undir vikhend-
um hætti, en að Sigurður Breið-
fjörð hafi fyrstur ort rímu með hon-
um. Einnig orti Sigurður Bjarnason
rímu vikhenda og Stefán frá Hvíta-
dal kvæði, „Haustið nálgast“, með
þessum brag óbreyttum og byrjar
svo:
Sólin blessuð sígur rauð til viðar,
glóa á lofti gullin ský,
grátklökk áin niðar.
Haustið nálgast, hríð og vetrarrosinn,
senn er ekki sólar von,
senn er áin frosin.
Og lýkur svo:
Himinn yfir. Huggast þú sem grætur.
Stjörnur tindra, geislar guðs,
gegnum vetrarnætur.
Vetrarnóttin varla mun oss saka,
fyrst að ljósin ofan að
yfir mönnum vaka.
Þetta er fyrsta vísan í 18. rímu
Sveinbjarnar í háttatali hans:
Ferðalúinn fótum hef ég gengið
yfir fjöllin urðum sett,
óblítt veður fengið.
Nú hefur Pétur Stefánsson ort
vikhent á Boðnarmiði – og nokkuð í
öðrum dúr:
Margt hef ég á minni ævi dundað,
keðjureykt af kappi og
kvennafarið stundað.
Daðrað gat ég dömur við á kvöldin.
Átt svo með þeim unaðsstund
oft á bak við tjöldin.
Öl og vín ég óspart drakk um nætur.
Daginn eftir örðugt var
oft að skríða á fætur.
Áður fyrr ég einatt þótti villtur,
Loksins nú ég orðinn er
edrú, vænn og stilltur.
Ingólfur Ómar Ármannsson
brást þannig við:
Öndin skánar angur þver,
ákaft brána léttir.
Ef á krána Ómar fer
öli í tána skvettir.
Áður drakk ég eins og svín
engan hlaut því framann.
Áttu hug minn víf og vín
var þá stundum gaman.
Þetta var í denn, Pétur.
Halldór Þorsteinsson sagði eitt-
hvert vesen á símanum en ætlaði að
kommenta á vikhendurnar.
Yrkja vikhent verð ég hér að reyna
vita hvort ég höndla að
hnoða saman eina
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vikhendur af ýmsu tagi
„ÉG HEF TAPAÐ FJÓRTÁN ÁRUM ÆVI MINNAR
VIÐ ÞETTA AFGREIÐSLUBORÐ, SVO ÉG GET
ÍMYNDAÐ MÉR HVERNIG ÞÉR LÍÐUR AÐ HAFA
TÝNT REGNHLÍFINNI ÞINNI.”
„HANN HLÝTUR AÐ HAFA HEYRT EINHVER
HLJÓÐ NIÐRI.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar aldrei er
hörgull á kokkum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MEINARÐU ÞAR SEM
AÐRIR SJÁ TIL OKKAR?!
NÝI KONUNGURINN SEGIST
VERA AÐ SKAPA FLEIRI NÝ
STÖRF!
HVÍ ER LÍSA
SVONA
SPÉHRÆDD?
FÖRUM ÚT
AÐ DANSA!
ÉG ÞEKKI
EKKI ÞENNAN
MANN
ÞAÐ ER
RÉTT!
ÞAÐ ER NÝBÚIÐ AÐ RÁÐA MIG SEM
KVALARA Í KASTALANUM!
Stundum þurfa blaðamenn að tak-ast á við stóru spurningar lífsins,
líkt og samstarfsmaður Víkverja sem
í gær þurfti að fá svar við spurning-
unni hvort vinsæll barnaleikur héti
„skæri-blað-steinn“ eða „steinn-
skæri-blað“. Skiptar skoðanir voru
um það hvort væri rétt, en það eina
sem fólk var sammála um var að bein
þýðing á nafni leiksins úr ensku,
„steinn-blað-skæri“, gengi ekki upp.
x x x
Telur Víkverji það ekki vera í sínumverkahring að kenna lesendum
hvernig á að spila þennan leik. Í
stuttu máli snýst hann þó um að hver
keppandi hefur val um einn af þrem-
ur valmöguleikum og nær hver val-
möguleikinn að sigra annan af hinum
tveimur og tapa fyrir hinum.
x x x
Einn stakur leikur af „skæri-blað-steinn“ milli tveggja keppenda
nýtist kannski helst til þess að skera
úr um það hvor aðilinn eigi að taka á
sig leiðinleg húsverk, eða hver eigi að
sitja í aftursætinu í stuttri bílferð. Sé
spilað oftar en einu sinni í röð getur
hins vegar myndast nokkur sam-
keppni, og jafnvel það sem á ensku
heitir „meta-game“, þar sem kepp-
endur reyna jafnmikið að leika á and-
stæðing sinn með gabbi og fyrri sögu
spilsins og þeir eru að reyna að upp-
götva hvort steinn, blað eða skæri sé
best í þessum tilteknu aðstæðum.
x x x
Innst inni hefði Víkverja ekki grunaðað svo mikil fræði lægju á bak við
þennan einfalda barnaleik, en þegar
hann kynnti sér málin kom í ljós að
„skæri-blað-steinn“ er dauðans al-
vara fyrir sumum.
x x x
Nokkuð margar keppnir er að finnafyrir þá sem þyrstir í slíkt og
hefur meira að segja verið keppt í
„heimsmeistaramóti“ í „skæri-blað-
steinn“ frá árinu 2002.
x x x
Nú hefur Víkverji engin plön um aðfara á slíkt mót. Enda vita lík-
lega allir hvaða merki hann setur allt-
af út fyrst í þessum leik.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég skil ekki hvað ég aðhefst. Það sem
ég vil geri ég ekki, hitt sem ég hata,
það geri ég.
(Rómverjabréfið 7.15)