Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 70

Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 70
70 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 ÚLPUDAGAR FIMMTUDAG TIL MÁNUDAGS 20% AFSLÁTTUR AF ÚLPUM OG REGNKÁPUM Í kaflanum sem hér fer á eftir er lít- illega fellt innan úr . Tilvísunum er sleppt. Þegar flakkarar á síðustu áratugum 19. aldar eru teknir til skoðunar, kem- ur í ljós að í hópnum voru allmargir góðir sögumenn. Nokkrir kváðu líka rímur eða lásu upp á kvöldvökunni og aðrir ferðuðust beinlínis um sveitir með skemmtiatriði og uppákomur. Það síðastnefnda kemur dálítið á óvart, enda nefna fræðimenn fram- takið hvorki þegar fjallað er um skemmtanalíf alþýðu á 19. öld eða ís- lenska leiklistarsögu. Leiklist í sveit- um landsins var þannig öllu fjölbreytt- ari á þessum árum en menn hafa átt- að sig á. Sumt förufólkið í þess- um hópi leit líka alls ekki þannig á að það væri á flakki, heldur færi mikilsverðra er- inda, þó aðrir hafi litið öðruvísi á málin. Gunna, sem kynnti sig alltaf sem systur Gests á Björnólfsstöðum og var þess vegna kölluð Gunna Gests, fór til dæmis um Húnavatnssýslur með rokkinn sinn og spann, en hún spáði líka í spil. Eyfirðingurinn Mar- grét Guðmundsdóttir spáði í bolla og það gerðu fleiri förukonur. Af þessu hefur fólk á bæjunum áreiðanlega haft nokkuð gaman, en ekki síður af sögum þeim, þulum og kvæðum, sem margar förukonur gátu ausið úr óþrjótandi brunni. Sagnaskemmtun og upplestur var líf og yndi margra í hópi förufólksins og þar sjáum við það sem menning- arbera. Einn af slíkum förumönnum var Jón greifi, sem var í kaupavinnu um sláttinn, en flakkaði utan þess tíma um sunnanlands með prentaðar bækur í poka og las upp þar sem hann gisti. Það sem hann las helst voru þjóðsögur og Íslendingasögur. Sögu- Hannes sem einnig flakkaði sunn- anlands er annar sem þótti segja snilldarlega frá, en hann sagði sög- urnar „upp úr sér“ öfugt við Jón greifa. Það voru mest þjóðsögur sem hann hafði heyrt sagðar eða lesnar. Hann var sagður mjög viðkvæmur fyrir gagnrýni og ekki mátti hlæja að honum eða grípa fram í, þá var úti um söguskemmtunina í það skiptið. Af öðrum slíkum má nefna Helga malara sem sagði sögur og Hannes roðauga sem flakkaði um Suðurland og kvað rímur eða sagði sögur sem a.m.k. krakkar höfðu mjög gaman af. Sumt af þessu fólki er jafnvel ekki kennt við flakk, heldur kallað sagnamenn í heimildunum, ef það var sérlega fært í íþrótt sinni. Til dæmis nefna heimild- armenn Jón blinda á Mýlaugsstöðum sem ferðaðist um og sagði sögur af mikilli list ávallt sagnamann. Höfundar sagnaþátta og heimild- armenn segulbandasafns Árnastofn- unar og þjóðháttasafns Þjóðminja- safnsins nefna marga fleiri sannkallaða sagnabrunna, sem hafa orðið mönnum minnisstæðir. Meðal þeirra er sagnakonan Hallfríður sem einn heimildarmaður þjóðháttasafns segir frá, en annars er ekkert vitað um: Ein er sú kona sem vert er að minn- ast er fór mikið á milli bæja, en átti heimili á sama stað, en lifði mest á því er henni var gefið og hélt sér uppi á bæjum tíma og tíma. Hún hét Hall- fríður, fædd árið 1848. … Mér er minnisstæðast hvað hún sagði vel frá. Og fór með þulur og kvæði, Grýlu- kvæði, Gilsbakkaþulu og ótal fleiri. Sérstaklega flutti hún Grýlukvæði vel, það var unun á að hlýða. Aðrir förumenn skemmtu með leik- atriðum og eftirhermum á þeim bæj- um sem þeir sóttu heim og léttu þann- ig lund manna á gististöðum sínum. Erfitt er að meta hvort þeir lista- mannshæfileikar sem þar komu í ljós hafi að hluta verið ástæðan fyrir að flökkulífið varð hlutskipti þeirra. Lík- legara er að flakkararnir hafi viljað fá útrás fyrir þessa hæfileika og um leið hafi þeir séð að með því að koma sér upp sérkennilegum skemmtiatriðum yrði viðmótið í þeirra garð jákvæðara og ekki amast eins við flakkinu. At- hyglisvert er að ekki hafa fundist frá- sagnir um förukonur sem höfðu komið sér upp sérstöku leikatriði. Í þessum hópi flakkara með leik- hæfileika voru sumir sem sungu skringilega söngva bændum og búaliði til skemmtunar, til að mynda Bjössi sólskinsauga sem stundum var kall- aður Björn búfræðingur, en hét Björn Jónsson (1856-1908). Hann var illa tal- andi, en fór á milli bæja í Þingeyj- arsýslu og Eyjafirði og söng hástöfum og lék orðin um leið með miklum til- þrifum. Gvendur ralli var annar sem flakkaði víða um og hafði í frammi alls kyns skrípalæti og söng til að skemmta fólki. Á síðari hluta 19. aldar fór Einar grettir um norðanlands, með kálfshala í farangrinum og skringilæti til skemmtunar. Ein helsta list hans var að „kálfast“. Sú íþrótt var í því fólgin að hann hengdi á sig hal- ann og líkti síðan eftir kálfunum, þeg- ar þeim er hleypt út í fyrsta sinn á vor- in. Annar förumaður, Jón Eyjólfsson í Vopnafirði, hafði hlutverki að gegna þar sem ungt fólk kom saman til að skemmta sér. Hann var um skeið eft- irsóttur til að tralla fyrir dansi, en er harmonikkurnar héldu innreið sína í landið gufaði eftirspurnin eftir trallinu upp. Halldór Þorkelsson (1845-1895) sem ávallt var kallaður Halldór Hóm- er flakkaði um Austurland frá því um 1865 og fór um með leikatriði, eins og einn heimildarmaður þjóðháttasafns lýsir: Hann var frábrugðinn öðru föru- fólki, því hann var einskonar trúður, sem fór um og skemmti og tók hlut- verk sitt all alvarlega. Hann söng og lék m.a. barnagælur o.fl., sem hann samdi sjálfur. Ekki þótti það mikill skáldskapur þá en líklega hefði hann komist á skáldalaun núna. Full ástæða er til að staldra aðeins við og kanna lífsferil Halldórs Hómers betur. Hann var fæddur árið 1845 í Múlasýslu og var á faraldsfæti frá því um tvítugsaldur. Um hann var mikil þjóðsagnamyndun og ein skýring- arsagan um örlög hans segir að sem ungbarn hafi hann þótt óvenju skyn- ugur og efnilegur. Móðir hans hafi síð- an skilið hann eftir hjá álfhól í túninu eitt sinn, meðan hún gekk til engja ásamt öðru fólki. Sagan segir að þegar hann hafi verið sóttur hafi hann verið gjörbreyttur og var álfunum kennt um. Halldór Hómer ólst upp hjá for- eldrum sínum þar til hann var sjö eða átta ára gamall. Hann þroskaðist fremur seint og var því sendur til Guð- mundar Magnússonar móðurbróður síns sem var hinn mesti búforkur og átti að gera hann að nothæfum smala og koma honum til manns. Fljótlega kom í ljós að Halldór var frábitinn allri vinnu. Framkvæmdi hann öll verk bæði seint og illa og svaf yfir ánum sem hann átti að gæta. Að lokum sá Guðmundur þann kost vænstan að láta Halldór hætta allri smala- mennsku og reyndi að láta hann dunda við heimaverk og heyskap. Það gafst heldur ekki vel. Hins vegar kom snemma í ljós að Halldór hafði ánægju af ýmiss konar skrípaleikjum og eft- irhermum og þegar hann var kominn fram yfir fermingu gafst Guðmundur upp á honum. Halldór flutti þá vist- ferlum á Borgarfjörð eystra og fór síð- an á flakk. ... Halldór Hómer leit á sig sem skáld og listamann og það var köllun hans að helga sig listinni og leyfa öðrum að njóta hennar. Hann tók því að syngja og leika og dansa á bæjunum þar sem hann kom, auk þess sem hann tók að sér prestsverk sem skemmtiatriði. Í prestskrúðanum tónaði hann marg- víslega texta, skírði flöskur í stað barna, tók fólk til bæna og gifti líka vinnufólk á bæjum sem hann gisti á. ... Halldór Hómer gerði það mjög oft til skemmtunar að gifta vinnufólk á bæjunum þar sem hann stoppaði og var alveg fáanlegur til að gefa saman tvo karlmenn, ef stúlkur voru ekki til taks, eða öfugt: Tók hann venjulega aura fyrir sína þjónustu, þ. á m. vissan „púss- unartoll“, mig minnir það væru 10 aurar. Guldu allir slíkt ánægðir. En títt var að það voru svo kærðir fyrir honum einhverjir sambúðarörð- ugleikar að morgni, og krafist skiln- aðar. Það þótti honum leiðinlegt, og reyndi að tala á milli, en ef það gekk ekkert, varð hann að skilja parið aftur. Það var dýrara en giftingin. Skilnaðarathöfnin fór þannig fram að hann lét hjónin stilla sér upp hvort á móti öðru og halda hvort í sinn end- ann á hrosshársreipi. Síðan sargaði hann bandið sundur með miklum se- remoníum og tilfæringum, nákvæm- lega í miðju, og kallaði það að losa hjónin við háðungarhaft. Heimild- armenn segja að Halldór hafi tekið giftinguna alvarlegar en aðrir sem þátt tóku í athöfninni og verið fremur ófús að veita skilnað, en telja má víst að það hafi fyrst og fremst verið hluti af leiknum. Hið sama gildir örugglega um tilburði hans í þá átt að sækja um prestsembætti, en sagt var að einu sinni hafi hann ætlað að sækja um slíkt þegar Hofteigur var laus. Ætlaði hann að fara suður og biðja biskup um vígslu en sagðist hafa orðið of seinn því skömmu síðar var prestakallið veitt. Þeir sem segja frá Halldóri Hómer eru sammála um að hann hafi verið af- bragðs leikari, en aldarhátturinn ekki gert honum kleift að stunda þá list. Hann hafi verið of snemma á ferð, eins og Sigurbjörn Snjólfsson segir frá í viðtali: … ef að hann hefði verið svona 70 árum seinna á ferðinni, þá hefði hann sennilega verið kominn í tölu þeirra sem að leika í Þjóðleikhúsinu því hann var áreiðanlega fæddur leikari. Hann var fæddur leikari, en þá var nú ekki aðstaða til þess að þróa eða þroska þá list með mönnum. En hann var þannig að hann var eiginlega alltaf að leika. Hann var alltaf að leika, allt sitt líf. Sagnamenn og skemmtikraftar Í bókinni Á mörkum mennskunnar – Viðhorf til förufólks í sögnum og samfélagi fjallar þjóð- fræðingurinn Jón Jónsson um þær frásagnir sem til eru af sérkennilegu fólki og fátæku förufólki sem flakkaði um landið fyrr á öldum. Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Björn Jónsson sem kallaður var Bjössi sólskinsauga eða Björn búfræðingur. Teikning/Vigfús Sigurðsson/Ásbúðarsafn Halldór Þorkelsson, sem kallaður var Halldór Hómer.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.