Morgunblaðið - 15.11.2018, Side 80
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
CLARA könglar. 2 í pakka. LED ljós. Ø8 x 10 cm.
Gengur fyrir rafhlöðum. 2.995 kr. Nú 2.097 kr.
JÓLIN ERU
KOMIN Í ILVA
Íslenska á
ferðaöld er yf-
irskrift mál-
ræktarþings Ís-
lenskrar
málnefndar sem
fram fer í fyrir-
lestrasal Þjóð-
minjasafns Ís-
lands í dag kl.
15.30. Lilja
Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, flytur
ávarp og ályktun Íslenskrar mál-
nefndar um stöðu íslenskrar
tungu 2018 er kynnt. Aðrir frum-
mælendur eru Ólafur Steph-
ensen, Donata Honkowicz-
Bukowska, Hafdís Ingvarsdóttir,
Gígja Svavarsdóttir og Bragi Valdi-
mar Skúlason.
Íslenska á ferðaöld á
málræktarþingi í dag
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 319. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
„Fyrir mig var það mikil áskorun að
koma hingað út, þekkja engan leik-
mann og verða bókstaflega að
hella mér út í að læra allt um alla,“
segir handknattleiksmarkvörð-
urinn og Hafnfirðingurinn Ágúst Elí
Björgvinsson sem yfirgaf FH í sum-
ar og gekk til liðs við Sävehof.
Hann stefnir á að endurheimta
landsliðssætið. »4
Mikil áskorun að flytja
út og þekkja engan
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Kvartett Jóels Pálssonar ásamt
söngvaranum Valdimar Guðmunds-
syni fagnar útgáfu plötunnar Dagar
koma með tónleikum í Norræna
húsinu í kvöld kl. 21. Um er að
ræða sjöundu hljómplötu Jóels
með eigin verkum og þá fyrstu sem
inniheldur söng. Meðal skálda sem
eiga ljóð á plötunni eru
Gerður Kristný og
Bragi Ólafsson. Flytj-
endur á tónleikunum
auk Jóels og Valdimars
eru Eyþór Gunn-
arsson á píanó, Ein-
ar Scheving á
trommur og Valdi-
mar K. Sig-
urjónsson
á kontra-
bassa.
Fagnar nýrri plötu
í Norræna húsinu
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Félagið var stofnað af fimm kjarna-
konum árið 1928 í þeim tilgangi að
hvetja ungar konur til mennta og
berjast um leið fyrir réttindum
þeirra,“ segir Margrét Kristín
Sigurðardóttir, formaður Félags
háskólakvenna, í samtali við
Morgunblaðið og vísar í máli sínu til
þess að í gær var þess minnst að lið-
in eru 90 ár frá stofnun Félags há-
skólakvenna. Af því tilefni var blásið
til afmælishátíðar sem haldin var í
hátíðarsal Háskóla Íslands.
Þær Eliza Reid forsetafrú, Ilmur
Kristjánsdóttir leikkona og Kristrún
Heimisdóttir lögfræðingur voru
meðal þeirra sem ávörpuðu við-
stadda á hátíðinni auk þess sem
Sigríður Thorlacius söng nokkur vel
valin lög. Þá var jafnframt veittur
500 þúsund króna rannsóknar-
styrkur í tilefni 90 ára afmælisins og
rann hann til Ingunnar Gunnars-
dóttur, doktorsnema í umhverfis- og
auðlindafræði við Háskóla Íslands.
„Okkur finnst vel við hæfi að veita
henni þennan styrk nú þegar um-
hverfis- og loftslagsmál eru í sviðs-
ljósinu,“ segir Margrét Kristín.
Margt breyst frá stofnun
Félag háskólakvenna var stofnað
7. apríl 1928 af háskólakonunum
Önnu Bjarnadóttur, Jóhönnu Dag-
mar Magnúsdóttur, Katrínu Skúla-
dóttur Thoroddsen, Kristínu Ólafs-
dóttur og Thyru Ingibjörgu Jens-
dóttur Loftsson. „Á þessum tíma
voru örfáar konur með háskólagráðu
á Íslandi, en eitt fyrsta verk félags-
ins var að safna fé til að kaupa eitt
herbergi á nýjum stúdentagarði Há-
skóla Íslands sem átti að tryggja
rétt kvenstúdents til búsetu á há-
skólagarði,“ segir Margrét Kristín
og bendir á að Alþjóðasamtök há-
skólakvenna séu sú fyrirmynd sem
horft var til þegar Félag háskóla-
kvenna var stofnað.
„Margt hefur breyst á þessum 90
árum sem liðin eru frá stofnun. Og
það er gaman að velta þeirri spurn-
ingu upp hvort þessar fimm kjarna-
konur hafi ímyndað sér að einhvern
tímann yrðu tveir þriðju hlutar há-
skólanema konur líkt og nú er,“ seg-
ir Margrét Kristín og bendir á að fé-
lagsmenn í Félagi háskólakvenna
séu nú nokkur hundruð talsins.
„Hluti af félagsgjaldinu rennur til al-
þjóðasamtakanna sem styrkja ungar
stúlkur til mennta í löndum þar sem
ekki er sjálfgefið að konur mennti
sig.“
Þá var í fyrra í fyrsta skipti valin
háskólakona ársins og varð dr. Unn-
ur Anna Valdimarsdóttir við lækna-
deild HÍ fyrir valinu, en í ár var það
dr. Anna Þorvaldsdóttir tónskáld.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fögnuður Félag háskólakvenna hélt í gær upp á tímamótin í hátíðarsal Háskóla Íslands. Hér hlýða gestir á erindi
Elizu Reid forsetafrúar. Lengst til hægri á fremsta bekk er Margrét Kristín Sigurðardóttir, formaður félagsins.
Háskólakonur héldu
upp á 90 ára afmæli sitt
Félag háskólakvenna var stofnað af fimm skörungum