Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Orku náttúrunnar vinnur að því að
stækka varmastöð Hellisheiðar-
virkjunar. Þessum áfanga á að
ljúka fyrir árslok 2019. Heildar-
kostnaður við stækkunina er áætl-
aður um milljarður króna.
Núverandi afl varmastöðvar-
innar, sem var tekin í notkun árið
2010, er 133 megavött. Stækkunin
nú er upp í 200 megavött, sam-
kvæmt upplýsingum Eiríks
Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa
Orkuveitu Reykjavíkur. Gert er
ráð fyrir að varmastöðina megi
stækka frekar, eftir því sem heita-
vatnsþörfin á höfuðborgarsvæðinu
vex, í 400 megavött. Stækkunin nú
rúmast innan núverandi aðalbygg-
ingar Hellisheiðarvirkjunar.
Verið er að vinna úr tilboðum
vegna útboðs á varmaskiptunum,
sem er stærsti búnaðurinn vegna
stækkunarinnar. Búið er að bjóða
út kaup á öðrum stærri búnaði,
s.s. lokum o.fl. Meðal þess sem á
eftir að bjóða út er uppsetning
búnaðar.
Er tvískipt virkjun
Hellisheiðarvirkjun er samþætt
varma- og raforkuvirkjun á
sunnanverðu Hengilssvæðinu og
var reist í áföngum frá 2006.
Virkjaðir eru tugir borhola, 1.000-
2.200 metra djúpar. Úr holunum
streymir jarðhitavökvi, sem er
blanda af gufu og vatni.
Þessum vökva er safnað í skilju-
stöð. Þaðan fara svo gufa og vatn
eftir tveimur aðskildum aðveitu-
æðum í stöðvarhús virkjunarinnar.
Það er tvískipt, annars vegar raf-
stöð og hins vegar varmastöð.
Gufan knýr túrbínur til raf-
orkuframleiðslu og fer rafmagnið
inn á dreifikerfi Landsnets. Heita
vatnið er leitt í varmastöðina þar
sem það er notað til að hita upp
kalt ferskvatn. Upphitaða vatnið
er leitt í leiðslum neðanjarðar til
höfuðborgarsvæðisins. Varmastöð-
in var gangsett árið 2009.
Vegna stækkunar varmastöðvar-
innar nú þarf virkjunin meira
magn af köldu vatni. Í því skyni
hyggst Orka náttúrunnar bora
þrjár kaldavatnsholur í Engidal til
öflunar ferskvatns fyrir Hellisheið-
arvirkjun. Var verkið boðið út ný-
lega og verða tilboð opnuð 17.
desember næstkomandi.
Engidalur er í um 5 kílómetra
fjarlægð frá Hellisheiðarvirkjun.
Núverandi lögn frá Engidal mun
anna þessu aukna vatnsmagni,
samkvæmt upplýsingum Eiríks.
Á síðasta ári kom um helmingur
heita vatnsins í hitaveitu Veitna á
höfuðborgarsvæðinu frá virkjunum
tveimur á Hengilssvæðinu; Nesja-
vallavirkjun (300 megavött varma)
og Hellisheiðarvirkjun (133 mega-
vött varma).
Hinn helmingurinn kom frá
jarðhitasvæðunum í Mosfellsbæ
(Reykir og Reykjahlíð), Laugar-
nessvæðinu og úr Elliðaárdal.
Hellisheiðarvirkjun stækkuð
Varmastöð Hellisheiðarvirkjunar verður stækkuð upp í 200 megavött Orka náttúrunnar áformar
að bora þrjár kaldavatnsholur í Engidal Um helmingur heita vatnsins kemur frá Hengilssvæðinu
Ljósmynd/Orka náttúrunnar
Hellisheiðarvirkjun Þaðan er heitt vatn leitt til höfuðborgarinnar og rafmagn fer inn á dreifikerfi Landsvirkjunar.
Engidalur
Hveradalir
Hellisheiðar-
virkjun
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
:
O
rk
uv
ei
ta
Re
yk
ja
ví
ku
r/
LM
Í
Fyrirhugaðar kaldavatns-
borholur fyrir Hellis-
heiðarvirkjun á vatnstöku-
svæði við Engidal
Vatnstökusvæði
við Engidal
SVÍNAHRAUN
H
E
N
G
IL
L
1
Myndlistarkonan Sossa Björnsdóttir, sem ný-
verið fékk menningarverðlaun Reykjanes-
bæjar, verður með sitt árlega jólaboð á vinnu-
stofunni laugardaginn 1. desember frá kl. 16
til 20. Anton Helgi Jónsson mun flytja ljóð fyr-
ir gesti og gangandi og hljómsveitin Klassart
sér um tónlistarflutning.
Sossa verður einnig með opið á sunnudag-
inn, frá kl. 16-20, en hún vekur athygli á að
vinnustofa hennar, í Mánagötu 1, verður lokuð
frá miðjum desember og fram að áramótum.
Sossa er uppalin í Keflavík, lærði myndlist í
Myndlista- og handíðaskóla Íslands, var í
framhaldsnámi í Kaupmannahöfn og lauk
mastersgráðu við listaháskóla í Boston. Hún
hefur verið með fjölda sýninga hér á landi og
erlendis.
Sossa með árlegt jólaboð á vinnustofunni
Myndlist Sossa Björnsdóttir
verður í jólaskapi um helgina.
Flosi Eiríksson
hefur verið ráð-
inn fram-
kvæmdastjóri
Starfsgreina-
sambands Ís-
lands og tekur
við af Drífu Snæ-
dal, nýkjörnum
forseta ASÍ. 17
sóttu um stöð-
una. Flosi er húsasmiður og við-
skiptafræðingur að mennt og var
um árabil bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Undanfarin ár hefur hann starfað
hjá Íslandsstofu við fræðslu og ráð-
gjöf. Áður starfaði hann m.a. hjá
ráðgjafarfyrirtækinu KPMG.
Flosi til Starfs-
greinasambandsins
Flosi Eiríksson
Tvö pör voru handtekin í Breiðholti í
fyrrakvöld, með skömmu millibili.
Annað parið var grunað um vörslu,
sölu og dreifingu fíkniefna. Það var
vistað fyrir rannsókn máls í fanga-
geymslu lögreglu og sleppt að lok-
inni skýrslutöku.
Skömmu síðar var annað par
handtekið í Breiðholti, grunað um
líkamsárás, akstur bifreiðar undir
áhrifum fíkniefna, akstur þrátt fyrir
sviptingu ökuréttinda, fyrirmælum
lögreglu ekki hlýtt, hótanir o.fl.
Parið var vistað fyrir rannsókn
máls í fangageymslu lögreglu. Bif-
reiðin reyndist vera ótryggð og voru
númer því klippt af, segir í dagbók
lögreglunnar.
Lögreglan tók tvö
pör í Breiðholti
STUTT
Holtagörðum-Lóuhólum-Akureyri-Selfossi-
Bolungarvík-Vestmannaeyjum
ÞÚ FÆRÐ
HJÁ OKKUR!
S; 537-5000 dyrarikid@dyrarikid.is