Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú um mánaðamótin eru tveir mán-
uðir liðnir síðan Vegagerðin tók við
rekstri Hvalfjarðarganga og gjald-
töku var hætt.
Samkvæmt upplýsingum Friðleifs
Inga Brynjarssonar, sérfræðings
hjá Vegagerðinni, er erfitt að full-
yrða á þessum tímapunkti hvort um-
ferð um göngin hafi aukist eftir að
gjaldtöku var hætt en fyrstu vís-
bendingar eru að aukningin sé
óveruleg.
Skýringin helst til sú, að mati
Friðleifs, að rífleg afsláttarkjör voru
veitt til þeirra sem fóru oft um göng-
in auk þess sem verð fyrir staka ferð
hefur verið á sömu krónutölu og við
opnun. Af þessu megi draga þá
ályktun að verðið í göngin hafi verið
lítil hindrun fyrir ökumenn.
Friðleifur segir að þetta muni
skýrast frekar þegar liðið er nokkuð
á næsta ár og jafnvel ekki fyrr en í
byrjun þarnæsta árs (2020) þegar
mælingar yfir heilt umferðarár
(2019) liggja fyrir.
Reynslan hefur verið góð
Rekstur ganganna hefur gengið
nokkuð vel að mati Vegagerðar-
innar, en vinnuaðferðir eru enn í
þróun, að sögn G. Péturs Matthías-
sonar upplýsingafulltrúa stofnunar-
innar. Í daglegum störfum eru það
mest tveir starfsmenn frá þjón-
ustustöðinni á Hafnarfirði, sem fara
reglulega í göngin. Auk þess hefur
verið vakt við göngin nema yfir há-
nóttina. Þá sinnir vaktstöð í Reykja-
vík göngunum allan sólarhringinn en
hún vaktar líka einkum vetrarþjón-
ustuna. Eftirlitið fer fram í gegnum
myndavélakerfi í tölvum.
Þetta þýðir að sú vakt sem áður
fór fram í gjaldskýli norðan ganga
fer nú þannig fram í vaktstöð, að
sögn G. Péturs. Ekki er áætlað að
vakt verði á staðnum, en fólk hefur
verið í gjaldskýlinu frá því Vega-
gerðin tók við göngunum til að
tryggja yfirfærsluna. Svo verður
enn um sinn en ekki til langframa.
Sami fjöldi starfsfólks vakt-
stöðvar og verið hefur í vetrarþjón-
ustu sinni eftirlitinu. En með til-
komu þjónustu við Hvalfjarðargöng
þarf Vegagerðin að starfrækja vakt-
stöðina allan sólarhringinn allt árið
en áður einungis meðan vetrarþjón-
usta varði.
„Vaktstöðin í Reykjavík kallar síð-
an út menn til aðstoðar þurfi þess
rétt eins og gert var í gjaldskýlinu
áður. Að miklu leyti eru þetta sömu
aðilar og áður sem þjónusta göngin,
þ.e.a.s. varðandi dráttarbíla og þess
háttar,“ segir G. Pétur.
Með þessu fyrirkomulagi sé verið
að líkja eftir því kerfi sem notað er í
Noregi. Þar eru fjórar vaktstöðvar á
landinu öllu sem m.a. vakta öll jarð-
göng á sínu svæði (það eru yfir 1.000
göng í Noregi). Í Noregi eru um 30
neðansjávargöng og í 10 þeirra er
umferð á bilinu 5 til 10 þúsund bílar
á dag. Hvergi er þar mönnuð vakt
við göngin.
Eins og fram hefur komið hafa
verið gerðar breytingar á veginum
norðan megin Hvalfjarðar. Tvö
minni gjaldskýli, sem voru sitt hvor-
um megin við aðalskýlið, hafa verið
fjarlægð og merkt ein akrein fram
hjá gjaldskýlinu hvorum megin.
Stóra skýlið mun standa áfram
þannig að alltaf sé hægt að koma á
vakt tímabundið ef sérstök ástæða
er talin til. Verið er að setja upp
vegrið umhverfis gjaldskýlið og lýk-
ur þá þeirri aðgerð í bili.
Óveruleg aukning umferðar í göngin
Tveir mánuðir síðan gjaldtöku í Hvalfjarðargöng var hætt og Vegagerðin tók við rekstrinum
Bendir til þess að gjaldið hafi ekki verið hindrun fyrir fólk Göngin vöktuð allan sólarhringinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvalfjarðargöngin Það var stór stund þegar gjaldtöku var hætt 28. september eftir 20 ár. Ríkið tók síðan við göngunum frá Speli, sem byggði göngin.
HEFILBEKKIR FYRIR
SKÓLA, VERKSTÆÐI OG HEIMILI
Elite 2000
Verð: 248.900
Hobby
Verð: 32.500
Nordic
Plus 1450
Verð: 69.800
Skápur: 27.490
Ramia
Premium star
Einm
Hæðars
mia
an
Verð: 95.800
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
a 1700
9.800
ced 1500
Rami
Verð: 9
mia
öfaldur
ð: 179.800
Ra
Tv
Ver
eningur
tillanlegur
Ný
vefverslunbrynja.is
Ra
adv
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is