Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019
Þurr augu!
Fæst í öllum helstu apótekum.
Tvöföld virkni
Sex sinnum lengri ending
Thealoz Duo® er ný aðferð við meðhöndlun augnþurrks sem sækir
innblástur beint til náttúrunnar.
Til þess að koma jafnvægi á tárafilmuna notum við náttúrulegu efnin
trehalósa sem verndar frumurnar á yfirborði hornhimnunnar og
hýalúronsýru sem smyr yfirborð hornhimnunnar og gefur henni raka.
Augnheilbrigði
TREHALÓSI
Finnst í mörgum jurtum og
hjálpar þeim að þrífast við þurrar
aðstæður. Trehalósi verndar
frumurnar og gerir þeim kleift að
starfa með fullum afköstum.
HÝALÚRONSÝRA
Er að finna í augunum og
hefur einstaka getu til að binda
vatn. Hjálpar til við að smyrja
og viðhalda táravökvanum á
yfirborði augans.
Án rotvarnarefna
VINDORKA OG RAMMAÁÆTLUN
Í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið
býður verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar
til opins fundar um vindorku
miðvikudaginn 9. janúar 2019 kl. 13-17.
Fundurinn verður haldinn í sal Þjóðminjasafnsins.
Beint streymi verður frá fundinum.
Nánari upplýsingar og dagskrá málþingsins
er að finna á www.ramma.is
Atvinnuleysi í nóvember síðast-
liðnum mældist 2,9%. Þetta kem-
ur fram í nýbirtum tölum Hag-
stofu Íslands. Er það talsvert
meira atvinnuleysi en í nóvember
2017 þegar það mældist 1,8%. Nú
í nóvember voru á atvinnuleysis-
skrá 5.900 manns en 12 mánuðum
fyrr voru atvinnulausir 3.500.
Samkvæmt vinnumarkaðsrann-
sókn Hagstofunnar er gert ráð
fyrir að 204.700 manns á aldr-
inum 16-74 ára hafi verið á
vinnumarkaði í nóvember síðast-
liðnum. Miðað við heildarmann-
fjölda nam atvinnuþátttaka því
81%. Af þeim voru starfandi
198.800, en 5.900 án atvinnu eins
og áður sagði.
Atvinnuleysi
mældist 2,9%
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, sagði á hádegisverðar-
fundi Samtaka atvinnulífsins, þar
sem litið var á árið fram undan, að
brothætt staða ríki í efnahagslífinu
um þessar mundir. Lítið megi þar út-
af bregða. Yfirstandandi hagvaxtar-
skeið, sem staðið hefur í átta ár, sé
eitt það lengsta í Íslandssögunni, og
spár í ríkisfjármálum geri ráð fyrir
áframhaldandi fimm ára hagvexti.
„Því miður erum við með þessa
óvissu í samfélaginu núna sem helg-
ast af kjarasamningsviðræðum, og
þess vegna geng ég svo langt að
segja að efnahagsleg velferð þjóðar-
innar og allra Íslendinga muni
ákvarðast í útkomu þessara kjara-
samninga,“ segir Halldór í samtali
við Morgunblaðið.
Í máli Halldórs á fundinum kom
jafnframt fram að sé horft til baka á
söguna, sjáist að Íslendingar misstu
vanalega tökin á efnahagsmálunum á
toppi hverrar hagsveiflu.
Á fundinum sagði Halldór að horfa
þyrfti til þess hvað útflutningsgrein-
arnar í landinu þoli í kostnaðarhækk-
unum. Það væri svo hægt að yfirfæra
á aðrar greinar. „Þetta er það sem
Samtök atvinnulífsins, verkalýðs-
félögin og stjórnvöld þurfa að ná
saman um. Við verðum að spyrja
okkur hvað útflutningsgreinarnar
þola. Þetta á sérstaklega við um lítið
samfélag eins og Ísland þar sem
efnahagsleg velferð markast af gengi
útflutnings, sem hefur reyndar geng-
ið gríðarlega vel undanfarin ár.“
Kaffitímar arfleifð fortíðar
Halldór segir að í yfirstandandi
kjarasamningaviðræðum sé ein af
kröfum verkalýðsforystunnar hækk-
un dagvinnulauna. „Við getum mætt
henni með ýmsum hætti. Við þurfum
að mæla hlutina eins og aðrar þjóðir
gera, þar á meðal hin ríkin á Norð-
urlöndum. Þar spilar inn í upptaka
virks vinnutíma. Kaffitímar eru að
mínu mati arfleifð fortíðar, og þeir
eru ekki inni í greiddum stundum
neins staðar nema á Íslandi. Afnám
þeirra myndi þýða styttingu viðveru
á vinnustað um þrjár klukkustundir
á viku.“
Brothætt staða efnahagsins
SA segir efnahagslega velferð þjóðarinnar ákvarðast í útkomu kjarasamninga
Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
Arleifð fortíðar Halldór Benjamín segir það að telja kaffitíma innan
greiddra vinnustunda sé tímaskekkja sem ekki þekkist nema hérlendis.
5. janúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 117.23 117.79 117.51
Sterlingspund 147.41 148.13 147.77
Kanadadalur 86.07 86.57 86.32
Dönsk króna 17.844 17.948 17.896
Norsk króna 13.402 13.48 13.441
Sænsk króna 12.961 13.037 12.999
Svissn. franki 118.63 119.29 118.96
Japanskt jen 1.089 1.0954 1.0922
SDR 162.74 163.7 163.22
Evra 133.26 134.0 133.63
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 161.3788
Hrávöruverð
Gull 1287.95 ($/únsa)
Ál 1857.0 ($/tonn) LME
Hráolía 54.29 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, gerði það að umtalsefni á blaðamannafundi samtakanna í gær
hversu hátt launahlutfall á Íslandi væri. Launahlutfall er mælikvarði á
hvernig virðisaukinn skiptist á milli launþega og fjármagnseigenda og
stendur það hlutfall í 64,8% á Íslandi og hefur það hækkað úr 56,6% frá
árinu 2011 samkvæmt riti SA sem vísar í OECD. Hvergi annars staðar á
meðal OECD-ríkja er hlutfallið hærra. Í Sviss nemur hlufallið 60,9%, í
Danmörku er það 60,4% og í Frakklandi er það 60,3%.
Aukinheldur er minnst á meðallaun og kaupmátt launa í sama riti.
Meðallaun á mánuði á Íslandi árið 2017 voru þau önnur hæstu af OECD-
ríkjum eða 5.868 evrur sem jafngilda um 785 þúsund krónum á gengi
evrunnar í gær. Svisslendingar tróna á toppnum og greiða út í meðalaun
um 6.400 evrur. Næst á eftir Íslandi kemur Lúxemborg og því næst Dan-
mörk og Noregur. Þrátt fyrir að hvergi innan OECD sé verðlag jafn hátt og
á Íslandi er kaupmáttur sá þriðji hæsti sé miðað við svokallað jafnvirðis-
gildi og gengi Bandaríkjadals gagnvart evru en jafnvirðisgildi sýnir hve
mikið þarf af gjaldmiðlum einstakra landa til að kaupa sama magn vöru
og þjónustu í öðrum löndum samkvæmt Hagstofunni. Aðeins Lúxemborg
og Sviss standa þar betur en Íslendingar sem eru í 3. sæti en næstir á
eftir koma Bandaríkjamenn og Danir.
Launahlutfall hvergi hærra
KJARAMÁL
Laun Kaupmáttur Íslendinga er sá þriðji mesti af OECD-ríkjum.
Morgunblaðið/Ómar
Ragnhildur
Geirsdóttir er
hætt sem aðstoð-
arforstjóri WOW
air en hún hefur
gegnt stöðunni
síðustu 18 mán-
uði. Í tilkynningu
á vef WOW air
segir að hún muni
taka við stöðu
forstjóra Reikni-
stofu bankanna síðar í mánuðinum.
Ragnhildur er verkfræðingur og við-
skiptafræðingur að mennt. Hún tek-
ur við starfinu af Friðriki Snorra-
syni sem sagði upp störfum á síðasta
ári eftir að hafa starfað hjá RB í tæp
átta ár.
Fer frá
WOW til RB
Ragnhildur
Geirsdóttir
Allt um sjávarútveg