Morgunblaðið - 05.01.2019, Page 32
32 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019
Gleðilegt nýtt ár!
Opið virka daga 10-18 – laugardaga 12-17
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík – Sími 588 0488 – feldur.is
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur er Hildur Eir Bolladóttir. Félag íslenskra org-
anleikara sér um tónlistina.
ÁRBÆJARKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Petr-
ína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn
Krisztinu Kalló Szklenár. Sunnudagaskóli á
sama tíma í safnaðarheimilinu.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sigurður Jónsson
sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Kristnýju Rós Gústafsdóttur djákna. Fé-
lagar úr Kór Áskirkju syngja. Organisti Bjartur
Logi Guðnason. Guðsþjónusta á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli kl. 13 í umsjón séra Sig-
urðar og Bjarts Loga.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stund-
inni hafa Sigrún Ósk, Pétur og Þórarinn.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11. Steinunn Þorbergsdóttir og Steinunn
Leifsdóttir ásamt sr. Magnúsi Birni Björnssyni
stjórna og leiða sunnudagaskólann. Við hefj-
um stundina í kirkjunni en færum okkur svo
niður í safnaðarheimili til að lita, föndra og
þiggja veitingar.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf og fjöl-
skyldumessa kl. 11. Hressing í safnaðarheim-
ilinu eftir messu. Messuþjónar aðstoða. Um-
sjón Daníel, Sóley, Jónas Þórir og sr. Pálmi.
DIGRANESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
með sunnudagaskóla kl. 11.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Prestur
Sveinn Valgeirsson, Dómkórinn og Kári Þor-
mar dómorganisti. Minnum á bílastæðin við
Alþingi.
GLERÁRKIRKJA | Þrettándamessa kl. 11.
Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar. Kór Gler-
árkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Välja-
ots.
GRAFARVOGSKIRKJA | Frímúraramessa
klukkan 11. Séra Vigfús Þór Árnason þjónar.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Sunnudaga-
skóli á neðri hæð kirkjunnar klukkan 11.
Dans, söngvar og sögur. Umsjón hefur Pétur
Ragnhildarson.
GRENSÁSKIRKJA | Þrettándamessa kl. 11.
Sr. María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt messuþjónum. Organisti er Ásta
Haraldsdóttir og félagar úr Kirkjukór Grens-
áskirkju leiða söng. Heitt á könnunni á undan
og eftir messu.
Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12.
Miðvikudagur: Nýársbingó kl. 14.
Fimmtudagur: Núvitundariðkun kl. 18.15.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgistund kl.
11. Prestur Stefán Már Gunnlaugsson. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Magnea Tóm-
asdóttir syngur.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Kjartan Jósefsson Ognibene. Bænastund má-
nud. kl. 12.15. Fyrirbænaguðsþjónusta
þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl.
8. Kyrrðarstund fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kordía kór
Háteigskirkju syngur. Organisti Guðný Ein-
arsdóttir. Prestur Eiríkur Jóhannsson.
HJALLAKIRKJA Í Ölfusi | Jólamessa kl. 14.
Kór Þorlákskirkju. Organisti Ester Ólafsdóttir.
Hjúkrunarheimilið Skjól | Guðsþjónusta kl.
13. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari. Orgelleikari Bjartur Logi
Guðnason. Almennur söngur. Vandamenn og
vinir heimilisfólks velkomnir og aðstoð þeirra
vel þegin við flutning fólks milli hæða.
HREPPHÓLAKIRKJA | Nýársmessa kl. 11.
Vígslubiskupinn í Skálholti prédikar. Þjóðlegur
hádegisverður á eftir. Kirkjukórinn syngur und-
ir stjórn Stefáns Þorleifssonar.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Lofgjörðar-
samkoma kl. 13 með barnastarfi. Kaffi og
samfélag eftir stundina.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11, Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur
þjónar, félagar úr Fílharmóníunni leiða sönginn
undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organ-
ista. Hafdís Davíðsdóttir og Sara Grímsdóttir
leiða barnastarfið. Léttur hádegisverður að
messu lokinni.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Söngur, brúðuleikhús og biblíusögur.
Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkjuleiðir
söng undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Dís
Gylfadóttir þjónar fyrir altari. Kaffi og samfélag
eftir á.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng.
María Krístín Jónsdóttir situr við orgelið. Prest-
ur Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í
barnastarfinu. Umsjón Katrín Helga Ágústdótt-
ir, Margrét Heba Atladóttir og Ari Agnarsson.
Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Yfirskrift: „Út í óvissuna.“ Ræðumaður
Guðlaugur Gunnarsson. Barnastarf. Túlkað á
ensku.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Ath.
breyttan messutíma. Sr. Bryndís Malla Elídótt-
ir prédikar og þjónar fyrir altari, Kór Seljakirkju
syngur, organisti er Tómas Guðni Eggertsson.
Molasopi að messu lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Bjarni Þór Bjarna-
son sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir
Stefánsson er organisti. Leiðtogar sjá um
sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór
Seltjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og
samfélag í safnaðarheimilinu.
Orð dagsins: Förin yfir
Jórdan.
(Jósúa 3)
Morgunblaðið/Einar Falur
Eyrarbakkakirkja.
Tugþúsundir voru
bornar út af heimilum
sínum með skipulögð-
um hætti í boði stjórn-
valda, jafnt verskuldað
sem og vegna fátækt-
ar, ójöfnuðar, óstjórn-
ar og glæpsamlegrar
bankasýslu. Stjórnvöld
eru sem fyrr að súpa
seyðið af óhæfuverkum
í kjölfar uppgjörs
bankahrunsins þar sem hver nefndin
af annarri er skipuð til úrlausnar
húsnæðisvanda þeirra sem minna
mega sín.
Hver háskólafræðingurinn af öðr-
um kemur fram á sjónarsviðið og
reiknar án árangurs hvernig megi
skuldsetja lágtekjufólk til íbúðar-
kaupa, sem getur vart framfleytt
sjálfu sér. Stjórnvöld eru ábyrgð-
arlaus að láta í veðri vaka að ódýr
húsnæðisuppbygging muni eiga sér
stað fyrir þá lægst settu við eitt
mesta þensluskeið og hækkandi
verðbólguhorfur.
Ætlar síðan verkalýðshreyfingin
enn og aftur að ljá máls á og stuðla
að jafnri prósentuhækkun launa fyr-
ir hönd skjólstæðinga sinna, sem
mun aðeins ýta enn frekar undir
misskiptingu og ójöfnuð, þó svo sam-
ið verði um feita prósentuhækkun
sem fer síðan beint út í verðlagið.
Það er til lítils að endurvekja úr
sér gengið verkamannabústaðakerfi
til jöfnunar þeirra sem minnst mega
sín, og vitna í hversu gott húsnæðis-
kerfið var upp úr miðri síðustu öld,
sem það eflaust var áður en verð-
trygging lána var innleidd 1979.
Engu að síður brást félagslega kerf-
ið skjólstæðingum sínum endanlega
við innleiðingu verðtryggingar, þó
svo blindir verklýðsforkólfar vilji
endurvekja handónýtt og dýrt kerfi,
sem mótvægi við núverandi bygg-
ingarkostnað og vaxtarkjör.
Uppbygging sem íbúðafélagið
Bjarg stendur að, í samstarfi við
verkalýðsfélög, er óraunhæf tálsýn
og ekki til þess fallin að skila því sem
til er ætlast, þar sem einhver verður
að borga dýrt húsnæði
með einum og öðrum
hætti. Rótgróin bygg-
ingarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu eru
ekki að byggja ódýrt
húsnæði á uppgangs-
tímum fyrir íbúða-
félagið Bjarg, þó svo
óábyrgir verkalýðs-
leiðtogar og stjórnvöld
láti líta út að svo sé.
Mun eðlilegra er að
félagslega kerfið kaupi
notað húsnæði fyrir þá
lægst settu, sem er yfirleitt fyrir
hendi, og í það minnsta ódýrara en
nýtt, ekki síst á landsbyggðinni, og
sem myndi hjálpa mun fleirum. Hið
sama á við um leiguhúsnæði og upp-
byggingu á Reykjavíkursvæðinu.
Það virðist ansi oft gleymast að fólk
er bundið átthagafjötrum vegna
þess að eignir eru verðlitlar og selj-
ast ekki, engu að síður voru byggðar
fokdýrar félagslegar íbúðir, sem
varð þess valdandi að kerfið var lagt
niður. Félagslegt húsnæðiskerfi var
misnotað til atvinnubóta víðsvegar á
landsbyggðinni, þó svo nóg væri af
ódýru húsnæði í söluferli.
Íbúðalánasjóður hefur á undan-
förnum árum mokað út ódýru hús-
næði vítt og breitt um landið, en
leyndarhyggja hvílir yfir söluferli og
stenst líklega enga skoðun. Þó svo
leitað væri logandi ljósi er vand-
fundið á byggðu bóli önnur eins
óstjórn og viðgengst um alla stjórn-
sýsluna.
Það er óboðlegt að fyrrverandi
forsetar ASÍ ásamt illa áttuðum
verklýðsleiðtogum sem og stjórn-
völd leyfi sér með innantómu yfir-
klóri og þröngsýni að hjakka á
óraunhæfri uppbyggingu og byggða-
stefnu fyrir þá sem minna mega sín.
Meðan mikil eftirspurn og takmark-
að framboð fasteigna er til staðar
ásamt svívirðilegum lánakjörum
munu byggingarverktakar sem og
húseigendur haga leigu- og söluverði
í samræmi við markaðsverð. Heil-
brigður húsnæðismarkaður getur
aldrei þrifist með eðlilegum hætti
fyrir en verðtrygging í núverandi
mynd verður útrýmt og eðlileg láns-
og launakjör innleidd ásamt vit-
rænni stjórnsýslu.
Fátt er til bjargar fyrr en stjórn-
völd með afgerandi hætti láta af mis-
skiptingu, óstjórn og innantómu
hjali til að viðhalda falsvonum þeirra
verst settu. Til slíkra verka þarf
annað og meira en ábyrgðarlausa
þingmenn sem skammta sér óhóf-
legar kjarabætur og víla ekki fyrir
sér að ógna stöðugleika.
Verkalýðshreyfingin getur ekki
og á ekki að axla ein ábyrgð á að við-
halda stöðugleika. Það er ógeðfellt
að hlusta á forsætis- og fjármála-
ráðherra og þá sem hafa úr miklum
launum að moða ásamt þröngsýnum
einfeldningum, sem eru svo upp-
teknir af eigin hag þegar verja skal
misskiptingu. Það virðist loða við há-
tekjufólk og þá efnameiri að engu
megi breyta til að viðhalda stöðug-
leika.
Alþingismenn hafa þagað þunnu
hljóði eftir að þeim var skömmtuð
yfir 500.000 kr. launahækkun. Það
er illt til þess að hugsa að þjóðin eigi
allt sitt undir sjálfselskum sérhags-
munavindhönum á Austurvelli, sem
eru skjálfandi á beinunum yrði boð-
að til alþingiskosninga vegna óhæfu-
verka fjórflokksins og annarra und-
irtyllna. Ríkisstjórnarsamstarfið ber
að aflífa hið fyrsta til að verja þjóð-
arhagsmuni ásamt því að megin-
þorra þingmanna verði gert kleift að
axla ábyrgð á óhæfuverkum og sér-
hagsmunagæslu.
Er þjóðin virkilega
sauðheimsk?
Eftir Vilhelm
Jónsson » Það er óboðlegt að
fyrrverandi forsetar
ASÍ ásamt illa áttuðum
verkalýðsleiðtogum sem
og stjórnvöld leyfi sér
með innantómu yfirklóri
og þröngsýni að hjakka
á óraunhæfri uppbygg-
ingu og byggðastefnu
fyrir þá sem minna
mega sín.
Vilhelm Jónsson
Höfundur er fjárfestir.