Morgunblaðið - 05.01.2019, Page 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019
Signý Yrsa Pétursdóttir flugumferðarstjóri á 50 ára afmæli ídag. Hún starfar í flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkur-flugvelli og sjá flugumferðarstjórarnir þar um að hafa eftirlit
með flugumferð um allt úthafssvæðið, yfir Íslandi, Grænlandi, Fær-
eyjum og upp að norðurpólnum.
„Flugumferðin hefur
aukist gríðarlega mikið á
þessu svæði og svo hafa
líka orðið miklar tækni-
framfarir sem hafa breytt
starfinu. Sem dæmi þá
fengum við upplýsingar á
pappír þegar ég var að
byrja en núna er nánast allt
unnið í tölvum og svo er
kominn betri tækjabún-
aður í flugvélarnar sem
gefur okkur nákvæmari
upplýsingar til að fylgjast
með fluginu.“
Signý er mikil fjöl-
skyldumanneskja og svo
finnst henni gaman að lesa,
fara í ræktina og ferðast.
„Ég er hætt að fá bækur í
jólagjöf,“ segir Signý
spurð hvort hún hafi fengið
og lesið einhverjar af bók-
unum sem komu út fyrir
jólin, „en ég er farin að
nota bókasafnið villt og
galið og búin að lesa fjórar
til fimm nýjar bækur. Af
þeim fannst mér tvær
standa upp úr: Manneskju-
saga eftir Steinunni Ás-
mundsdóttur, sem er skáld-
ævisaga, og nýja bókin
hans Arnaldar sem var
mjög góð.“
Signý vill helst fá að sofa
út í dag. „Ég veit að fjöl-
skylda mín er búin að plana eitthvað fyrir daginn og ég þarf bara að
fara í kjólinn og mæta í afmælisveisluna. Það eina sem ég bað um var
að verða ekki vakin.“
Eiginmaður Signýjar er Grétar Símonarson, tölvunarfræðingur
hjá Advania. Börn þeirra eru Pétur Geir, f. 1989, Símon Brynjar, f.
1995, Birta Rún, f. 2000, og Sigursteinn Hrafn, f. 2014. Barnabarn
Signýjar og Grétars er Bjartur Pétursson.
Flugumferðarstjórinn Signý Yrsa.
Ætlar að sofa út í dag
Signý Yrsa Pétursdóttir er fimmtug í dag
S
igurður Jóhann Hafberg
fæddist 5. janúar 1959 á
Flateyri. Hann hefur búið
þar alla tíð fyrir utan þeg-
ar hann var í námi.
Sigurður lauk gagnfræðaprófi frá
Núpi í Dýrafirði og síðan stúdents-
prófi frá Verkmenntaskólanum á
Akureyri árið 1986. Hann tók próf í
útgerðartækni frá Tækniskólanum
1987, stundaði fjarnám í nútímafræði
við Háskólann á Akureyri 2000 og
lauk grunnskólakennaraprófi frá Há-
skóla Íslands 2010. „Ég kláraði ekki
lokaverkefnið í nútímafræðunum –
maður má ekki slá um sig með óklár-
uðum gráðum – en tók kennaranámið
í fjarnámi þegar ég var leiðbeinandi í
skólanum á Flateyri.“
Sigurður var á sjó frá 1975 til 1985
og síðan aftur frá 1987 til 1994. „Ég
var á línubátum, netabátum, loðnu og
Sigurður Hafberg grunnskólakennari – 60 ára
Við smíðar Sigurður ásamt sonum sínum sem smíðuðu sólpall fyrir móður sína fyrir utan Bryggjuhúsið.
Ljóðaunnandi og
ferðamálafrömuður
Sól og blíða Gengið á fjallið Þorfinn með dótturinni Írisi og dóttursyni,
Róbert Mána, árið 2010. Flateyri sést handan fjarðarins.
Reykjavík Diljá Inga fæddist 9. mars 2018 í Reykjavík. Hún vó 2.965 g og var 47 cm
löng. Foreldrar hennar eru Lilja Björk Indriðadóttir og Magnús Ingi Hjálmarsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
KRINGLU OG SMÁRALIND
10.497
VERÐ ÁÐUR 14.995
HERRASKÓR
SKECHERS SENDRO HERRASKÓR
MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI.
ÚTSALA