Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019
Aukin lífsgæði
án verkja og eym
Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
„Ég er búin að æfa mikið síðustu ár; hlaupa, stöðvarþjálfun, tabata
ofl. og varð alltaf þreytt og aum í liðum og beinum eftir æfingar.
Mér var bent á að prufa Nutrilenk Gold og byrjaði ég á að taka 6
töflur á dag í nokkrar vikur. Ég fann ótrúlega fljótt mun til hins betra
svo ég ákvað að prufa að taka líka 1 töflu af Nutrilenk Active því ég
var enn með verki og eymsl í höndum. Active virkar eins og
smurning fyrir liðina en ég fann mikinn mun á mér og eru verkirnir
nú horfnir.
Í dag tek ég 4 Gold og 1 Active og ekki má gleyma Nutrilenk gelinu
sem ég nota á axlir og hné en það kælir og dregur úr bólgum.
Ég get því hiklaust mælt með öllum Nutrilenk vörunum, án þeirra
gæti ekki hreyft mig eins mikið og ég geri í dag, verkjalaus.“
Erna Geirlaug Árnadóttir, 42 ára innanhúsarkitekt
NUTRILENK
ACTIVE
sla
ICQC 2018-20
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Hjá Erlendi Sveinssyni, kvikmynda-
gerðarmanni, er býsna viðburðaríkt
ár að baki. Mestu tímamótin voru þó
efalítið í vor þegar hann útskrifaðist
með MFA gráðu eftir fjögurra ára
nám í handritaskrifum og leikstjórn
við Columbia University í New York.
Síðan hefur hann haft ærinn starfa
hér heima við gerð stuttmynda, tón-
listarmyndbanda og auglýsinga fyrir
fyrirtæki á borð við Landsbanka Ís-
lands, Icelandair, Orkusöluna og
fleiri.
Í lok ársins frumsýndi hann tvær
stuttmyndir og ein eldri, Thick Skin,
sem var hluti af skólaverkefni hans á
2. ári þar vestra, fór á flug um jólin á
Vimeo, streymisveitu með lifandi
myndefni og rúmlega hundrað millj-
ón notendur.
„Thick Skin hlaut þann eftirsókn-
arverða titil að vera Vimeo Staff Pick,
eða val starfsmanna Vimeo, en þar
starfar fimm manna teymi við að
horfa á fjölda myndbanda á hverjum
degi og velja þau bestu. Strax um
áramótin höfðu yfir eitt hundrað þús-
und manns horft á myndina,“ segir
Erlendur og heldur áfram:
„Ég var svo heppinn að kynnast
einum úr teyminu sem hreifst af
myndinni þegar hún var sýnd á kvik-
myndahátíð í Óðinsvéum í Danmörku
árið 2017. Hann bað mig að hnippa í
sig þegar ég væri tilbúinn að setja
hana á netið.“
Flottasti vettvangurinn
Erlendur segir að innan kvik-
myndabransans þyki Vimeo flottasti
vettvangurinn á netinu og töluvert
eftirsóknarverðari en YouTube, enda
sé viðmótið þægilegra, til dæmis
betri spilarar, og þar geti fagfólk bor-
ið saman bækur sínar og „komment-
erað“.
Stuttmyndin Thick Skin er rúm-
lega ellefu mínútna löng. Í stuttu máli
fylgjast áhorfendur með hvernig
neisti kviknar á milli þeirra Hönnu 19
ára (Þórey Birgisdóttir) og Jónasar
20 ára (Ísak Hinriksson) þar sem þau
eru stödd í partýi í úthverfi Reykja-
víkur. Þau lauma sér afsíðis og eiga
náin samskipti þar sem mörk eru
ekki virt og því fylgja afleiðingar, eft-
irsjá og þrúgandi þögn. Áhorfendur
þurfa að horfast í augu við mannlegar
hliðar gerandans en á sama tíma eru
þeir minntir á alvarleika brotsins og
sársaukann sem fylgir gjörðum hans.
„Myndin er í rauninni innlegg í
umræðuna um misnotkun og nauðg-
anir og til þess gerð að fá áhorfendur
til að velta fyrir sér erfiðum spurn-
ingum án þess að segja of mikið eða
komast að niðurstöðu,“ segir Erlend-
ur.
Frá því Thick Skin var frumsýnd
fyrir tveimur árum hefur hún verið
sýnd á um tuttugu kvikmyndahátíð-
um víða um heim og ekkert lát er á,
Bristol Rebel kvikmyndahátíðin á
Englandi er næst á dagskrá í febrúar.
„Hæst ber þó að nefna Palm Springs
alþjóðlegu stuttmyndahátíðina í Kali-
forníu í fyrra ásamt nýfenginni til-
nefningu Vimeo til bestu drama-
stuttmyndar ársins 2018,“ segir
leikstjórinn og handritshöfundurinn.
Kanarí og Afsakanir
Stuttmyndirnar Kanarí og Afsak-
anir, sem hann frumsýndi í Bíó Para-
dís og skemmtistaðnum Húrra í lok
ársins 2018 fara svo í svipað ferðalag
og raunar hefur sú fyrrnefnda þegar
verið sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Foyle á Norður Írlandi. „Kanarí er
útskriftarmyndin mín og þroska- og
örlagasaga ungrar konu og kærasta
hennar, sem lenda í bílslysi á fáförn-
um vegi um hávetur á Íslandi. Ís-
lenskir leikarar eru í öllum hlut-
verkum og myndin var tekin upp hér
á landi um miðjan janúar í fyrra, en
öll eftirvinnsla fór fram í Bandaríkj-
unum og Kanada.“
Erlendur segir að gerð myndar-
innar hafi verið gríðarlega metnaðar-
fullt og krefjandi verkefni. Mikið hafi
verið í lagt, til dæmis þurfti að svið-
setja árekstur, koma bílhræi fyrir í
snjóskafli úti á víðavangi og fleira í
þeim dúr. Hin stuttmyndin sem hann
frumsýndi um svipað leyti er af öðr-
um toga. „Afsakanir er videóverk,
leikin tuttugu mínútna heimildar-
mynd og um leið tónlistarmyndband
út frá samnefndri plötu tónlistar-
mannsins Auðar. Myndin er aðgengi-
leg á Sjónvarpi Símans og fer á You-
Tube síðar í mánuðinum.“
Drama fyrst og fremst
Þótt engar frumsýningar standi
fyrir dyrum í augnablikinu, situr Er-
lendur ekki auðum höndum, enda
hefur hann fengið úthlutaðan fyrsta
hluta handritsstyrks frá Kvikmynda-
sjóði fyrir kvikmynd í fullri lengd. Sjö
hæðir á hún að heita, eða það er
a.m.k. vinnuheitið. „Drama fyrst og
fremst, en líka létt og umfram allt
mannleg. Myndin gerist í blokk í út-
hverfi Reykjavíkur, rétt eins og í
Thick Skin, og fjallar um ókunnugt
fólk og hvernig örlög þess tvinnast
saman, “ svarar hann spurður um það
hvers konar mynd sé í bígerð. Mark-
miðið er að taka myndina upp í byrj-
un árs 2021 og frumsýna í árslok það
ár.
Sjö hæðir í burðarliðunum
Thick Skin, stuttmynd Erlends Sveinssonar, fékk yfir 100 þúsund áhorf á Vimeo um jólin Frumsýndi
tvær stuttmyndir 2018 og skrifar handrit að kvikmynd í fullri lengd, sem hann hyggst leikstýra 2021
Morgunblaðið/Hari
Leikstjórinn og handritshöfundurinn Erlendur hefur fengið styrk til að skrifa handrit að kvikmynd í fullri lengd.
Drama Vimeo tilnefndi Thick Skin bestu dramastuttmynd ársins 2018.
Þórey Birgisdóttir og Ísak Hinriksson í hlutverkum Hönnu og Jónasar.
Skáldið Elísabet Kristín Jökulsdótt-
ir hlaut í gær viðurkenningu Rithöf-
undasjóðs Ríkisútvarpsins fyrir rit-
störf þegar Menningarviðurkenn-
ingar RÚV fyrir árið 2018 voru
veittar. Í rökstuðningi úthlutunar-
nefndar segir meðal annars: „Eitt
mikilvægasta framlag hennar til ís-
lenskra bókmennta eru skrif hennar
um kvenlíkamann, kynvitundina og
skömmina. Hún hefur fært í orð þá
hluti sem legið hafa í þagnargildi
langt fram á okkar daga, og gerði
það áður en samfélagið var tilbúið að
hlusta. Það er fyrst með nýrri kyn-
slóð kvenna og í kjölfar samfélags-
miðlahreyfinga síðustu ára sem sam-
félagið hefur öðlast getu að meta
þetta framlag til fulls.“
Fulltrúar Rásar 2 afhentu Krók-
inn, verðlaun fyrir framúrskarandi
lifandi flutning árið 2017, en hann
hlaut Jónas Sig. Þá var tilkynnt að
hlustendur hefðu valið orðið kulnun
orð ársins og orðið klausturfokk
nýyrði ársins 2018. Orðið kulnun er
notað um viðvarandi andlega og lík-
amlega þreytu og doða, einkum í
tengslum við vinnu og hefur verið
áberandi á árinu. Nýyrðið klaustur-
fokk er haft um röð atburða sem
einkennist af mistökum sökum van-
hæfni, ranghugmynda eða
heimsku. Orðið er byggt á enska
orðinu clusterfuck, sem er sömu
merkingar, og er beinlínis hljóðlík-
ing þess.
Stofnun Árna Magnússonar út-
nefndi hins vegar sögnina plokka orð
ársins 2018. Þeir sem plokka tína
rusl meðan skokkað er eða gengið.
Einnig voru veittir 72 styrkir úr
Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og
STEFs. Sjóðurinn hefur það mark-
mið að stuðla að frumsköpun og út-
breiðslu íslenskrar tónlistar.
Sjóðurinn veitir fjárstuðning til
höfunda fyrir tónsmíði og heildstæð
verk og er sérstaklega horft til fag-
þekkingar auk þess sem metnaðar-
fyllri og yfirgripsmeiri verkefni
hljóta forgang. Einnig er tilgangur
sjóðsins að veita stuðning við ný-
sköpun verka til flutnings í RÚV.
Elísabet Kristín
hlaut viðurkennngu
Morgunblaðið/Eggert
Skáldið Elísabet K. Jökulsdóttir
hlaut viðurkenningu Rithöfunda-
sjóðs Ríkisútvarpsins.